Bókbindarinn - 01.04.1975, Blaðsíða 21
BÓKBINDARINN
21
SAMKOMULAG
samninganefnda Bókbindarafélags íslands
og Félags íslenska prentiðnaðarins um
breytingar á samningsákvæðum
um veikindadaga:
4. KAFLI
VEIKINDAFRÍÐINDI
4.1.1
1. VEIKINDI. Launþegi, sem verið hefur 12 mánuði eða
lengur hjá sama vinnuveitanda, skal fá full laun í veik-
indum í allt að 33 virka daga. Hann skal til viðbótar full-
um launum fyrir dagvinnu fá eftirvinnukaup allt að
tveim klst. á hvern dagvinnudag, eða hámark 10 klst. á
viku, ef eftirvinna hans s.l. 10 vikur, áður en hann veikt-
ist, nær því meðaltali. Sé meðaltal aukavinnunnar undir
þessu hámarki, ræður meðaltalið eins og það er í reynd.
Tveir fyrstu veikindadagarnir í hverju veikindatilfelli
verða þó ekki bættir með aukavinnukaupi. Hluti úr degi
telst ekki til veikinda nema hann tilheyri samfelldum
lengri veikindum.
2. Launþegi, sem verið hefur skemur en 12 mánuði í þjón-
ustu sama vinnuveitanda, fær 2% dags kaup vegna veik-
inda fyrir hvern unninn mánuð, en þó aldrei færri en 10
virka daga, enda hafi viðkomandi starfað minnst sama
dagafjölda á hinum nýja vinnustað áður en hann veiktist.
Ef viðkomandi aðili verður fyrir slysi á vinnustað, eða
til og frá vinnu, skal hann njóta sömu bóta og þeir, sem
starfað hafa 12 mánuði á sama vinnustað. Fastur starfs-
maður, samkv. fyrstu málsgrein, nýtur og óskertra há-
marksréttinda 12 mánaða tímabils í þeim tilfellum, að
langvarandi veikindi beri að í byrjun 12 mánaða tímabils.
3. Færa skal sönnur á veikindi með læknisvottorði eigi síð-
ar en þegar laun vegna veikinda eru sótt.
4. Laugardagar teljast því aðeins til veikinda að viðkom-
z
n
SigurSur Hreinn
Jónsson. Sveinsbréf
10. maí 1975. P.O.B.
Akureyri. Meistari
Vigfús Björnsson.
Sigurbjörg Ingvars-
dóttir. Skarð - Hólar.
Sveinspróf 29. júní
1975. Meistari Olfert
Nábye.
Daníel Engilbertsson.
Bókfell. Sveinspróf
26. júní 1975. Meist-
ari Guðmundur Þór-
hallsson.