Bókbindarinn - 01.04.1975, Blaðsíða 23
AT VINNULE YSISBÆTUR!
HVAÐ ÁTT ÞÚ AÐ GERA
EF ÞÚ VERÐUR ATVINNULAUS ?
Fyrst leitar þú til BFl og athugar
hvort nokkra vinnu er að fá í bók-
bandi. Ef það er ekki hægt þá ferðu
á ráðningarskrifstofu Reykjavíkur —
(Vinnumiðlun) — Hafnarbúðum og
framvísar þínu félagsskírteini og sæk-
ir um atvinnu og bætur, ef enga vinnu
er að fá við þitt hæfi.
Á Ráðningarstofunni lætur þú skrá
þig daglega. Þar færð þú einnig eyðu-
blað, sem þú ferð með til þeirra at-
vinnurekenda, sem þú hefur unnið hjá
á síðustu 12 mánuðum og lætur þá út-
fylla þau.
Þegar öll þessi vottorð eru útfyllt
ferð þú með þau á skrifstofu BFl, sem
síðan sér um úthlutunina, en hún fer
fram vikulega á venjulegum skrif-
stofutíma félagsins.
ATHUGIÐ!
Rétt til bóta hafa þeir sem fullnægja
þessum skilyrðum:
a. eru orðnir 16 ára.
b. dvelja hérlendis.
c. eru fullgildir félagsmenn í verka-
lýðsfélögum.
d. hafa á síðustu 12 mánuðum stundað
tryggingarskylda vinnu í a. m. k.
1032 dagvinnustundir.
Skólafólk þarf þó ekki að hafa
stundað vinnu nema í 3 mánuði og
skólanám í 6 mánuði.
e. sanna með vottorði vinnumiðlunar,
að þeir hafi verið atvinnulausir
einn eða fleiri heila vinnudaga. Ef
umsækjandi getur ekki látið skrá
sig vegna veikinda, skal hann láta
skrá sig næsta dag sem hann getur.
Þeir sem hafa ekki bótarétt eru þeir
sem:
a. taka þátt í verkfalli.
b. njóta slysa- eða sjúkradagpeninga
skv. lögum.
c. misst hafa atvinnu af ástæðum,
sem þeir eiga sjálfir sök á (svo sem
drykkj uskaparóreglu).
d. sviptir eru frelsi sínu að opinberri
tilhlutan.
e. ófærir eru til vinnu eða neita vinnu,
er þeim býðst að tilhlutan vinnu-
miðlunarskrifstofu. Bótaréttur glat-
ast þó ekki, þó að hafnað sé vinnu
í starfsgrein, sem umsækjandi hef-
ur ekki áður stundað, enda fylgi
slíkri starfsgrein verulega meiri
áreynsla eða vosbúð en þeirri, sem
hann áður stundaði.
f. stundar vinnu í eigin þágu, sem
hann hefur beinar tekjur af.
g. á maka, sem á síðustu 12 mánuð-
um hefur haft og hefur hærri tekj-
ur en sem svarar tvöföldum dag-
vinnutaxta Verkam.fél. Dagsbrún-
ar í Reykjavík.
Atvinnuleysisbætur greiðast fyrir alla
daga nema laugardaga og sunnudaga
og engum skulu greiddar bætur lengur
en 130 daga á síðustu 12 mánuðum.