Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 6
Með því að
halda því
fram að um
sé að ræða
amfetamí-
nafleiðu þá
eru bæði
embættin
að opinbera
fáfræði sína.
STÆRSTU MÓT
SUMARSINS
AÐEINS Á SKJÁGOLFI
MAÍ
THE PLAYERS
JÚNÍ
US OPEN
JÚLÍ
BRITISH OPEN
ÁGÚST
PGA CHAMPIONSHIP
GOLFKORTIÐ VEITIR
40% AFSLÁTT
AF GOLFVÖLLUM UMHVERFIS ÍSLAND
AUK ANNARRA GLÆSILEGRA FRÍÐINDA
GOLFKORTIÐ FYLGIR MEÐ ÁRSÁSKRIFT
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT Í SÍMA 595 6000 EÐA Á SKJARGOLF.IS
Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra hefur sett
reglugerð um tímabundna
tannlæknaþjónustu án
endurgjalds fyrir börn
tekjulágra foreldra. Sækja
þarf um þjónustuna til
Tryggingastofnunar ríkisins
sem tekur við umsóknum til
1. júní næstkomandi, að því
er fram kemur í tilkynningu
velferðarráðuneytisins. Réttur
til þjónustunnar er tengdur
tekjum foreldra og fjölda
barna á framfæri. Þjónustan
er ætluð börnum yngri en 18
ára og felst í nauðsynlegum
tannlækningum öðrum en
tannréttingum. Þjónustan er
fyrir börn
af öllu
landinu
en verður
veitt á
tann-
lækna-
deild Há-
skóla Íslands í Læknagarði við
Vatnsmýrarveg 16 í Reykjavík
frá 1. maí til 26. ágúst. Heimilt
er að greiða ferðakostnað
barna af landsbyggðinni
sem fengið hafa samþykki
Tryggingastofnunar fyrir tann-
læknaþjónustunni. Miðað er
við að barnið sé sjúkratryggt,
búi og hafi lögheimili hjá því
foreldri/forráðamanni sem
sækir um og að allar skatt-
skyldar tekjur umsækjanda
á árinu 2010 séu sem hér
segir: Einstæðir foreldrar/
forráðamenn með tekjur
undir 2.900.000 kr. og hjón
eða sambúðarfólk með tekjur
undir 4.600.000 kr. Tekjuvið-
miðið hækkar um 350.000 kr.
fyrir hvert barn umfram eitt.
Heimilt er að víkja frá tekju-
viðmiði ársins 2010 ef um
verulega lækkun tekna á árinu
2011 er að ræða, svo sem
vegna atvinnuleysis. Í undan-
tekningartilvikum er heimilt
að víkja frá tekjuviðmiðum
ef um alvarlegan félagslegan
vanda er að ræða. - jh
Tannlæknaþjónusta fyrir börn tekjulágra foreldra
R íkissaksóknari hefur ákveðið að hætta rannsókn á því hvort embætti lögreglustjórans á Suðurnesj-um hafi brotið lög um meðferð sakamála með því
að leyna gögnum í máli tveggja einstaklinga sem sýkn-
aðir voru af ákærum um innflutning á fíkniefnum. Lög-
reglustjórinn Sigríður Björk Guðjónsdóttir hafði sjálf
frumkvæði að rannsókninni í kjölfar greinar sem Vil-
hjálmur Hans Vilhjálmsson, lögmaður annars ákærða,
skrifaði í Fréttatímann. Þar sakaði Vilhjálmur embættið
um að hafa leynt mikilvægum málsgögnum til að ná fram
framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir hinum ákærðu.
Deilan snýst um að greining á efnunum, sem annar
hinna ákærðu var tekinn með, leiddu í ljós að um flúo-
ramfetamín var að ræða sem er ekki á bannlista. Lög-
reglan hafði vitneskju um þá niðurstöðu 7. janúar. Í grein
Vilhjálms kemur fram að hvorki hann né skjólstæðingur
hans hafi haft hugmynd um tilvist þessarar greiningar
þegar gæsluvarðhald yfir öðrum ákærða var framlengt
19. janúar. Fyrir dómi voru báðir mennirnir sýknaðir á
þeim grundvelli að ekki var um að ræða innflutning á
efni á bannlista.
Við rannsókn Ríkissaksóknara fengust þær upplýs-
ingar hjá lögreglunni á Suðurnesjum að embættið hefði,
í samráði við embætti Ríkissaksóknara sem rak málið
fyrir dómi, talið efnið verið amfetamínafleiðu. Mats-
gerð efnagreiningarinnar hefði verið skilað til dómara
ásamt fjöldanum öllum af öðrum gögnum þegar gæslu-
varðhaldsúrskurður var kveðinn upp. Kemur fram í bréfi
Ríkissaksóknara að dómarinn hafi hvorki munað hvort
framangreind matsgerð hafi borist né hvort hún hafi
verið tekin til sérstakrar skoðunar. Ákveðið var að hætta
rannsókn þar sem ekki lægi fyrir grunur um refsiverða
háttsemi starfsmanna embættis lögreglustjórans á Suð-
urnesjum, eins og stendur orðrétt í bréfinu.
Vilhjálmur Hans segir í samtali við Fréttatímann
að þetta sé kattarþvottur hjá embættinu. „Með því að
halda því fram að um sé að ræða amfetamínafleiðu eru
bæði embættin að opinbera fáfræði sína. Héraðsdómur
sýknaði mennina á þeim forsendum að ekki var um
að ræða ólöglegt efni,“ segir Vilhjálmur Hans.
Hann hefur sent Ríkislögmanni skaðabóta-
kröfu vegna þess sem hann telur gæslu-
varðhald að ósekju og að saknæm háttsemi
lögreglunnar á Suðurnesjum hafi valdið því
að hann hafi verið í gæsluvarðhaldi lengur
en þörf krafði. Hann bíður eftir svari. Hann
gerir ráð fyrir að þurfa að
höfða skaðabótamál
gegn ríkinu.
oskar@frettatiminn.is
Rannsókn LögRegLan á suðuRnesjum
Rannsókn
hætt á meintri
gagnaleynd
lögreglunnar
Ríkissaksóknari telur ekki ástæðu til að rannsaka ásakanir um
að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum hafi leynt gögnum.
Vilhjálmur Hans
Vilhjálmsson krefur
ríkið um skaðabæt-
ur vegna ólögmæts
gæsluvarðhalds
skjólstæðings síns.
Helgin 29. apríl-1. maí 2011