Fréttatíminn - 29.04.2011, Page 10
10 fréttir Helgin 29. apríl-1. maí 2011
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins en í leyfi frá þingstörfum, hvetur til
þess að Ísland stórauki orkuframleiðslu sína og
flytji hluta orkunnar úr landi í gegnum sæstreng.
Telur hann að arður af aukinni orkuframleiðslu
geti jafnast á við olíusjóð Norðmanna, að því
er fram kemur í grein hans í Morgunblaðinu á
miðvikudaginn. „Þeir möguleikar sem felast í út-
flutningi á hreinni orku til meginlands Evrópu,“
segir Illugi, „eru stórkostlegir og mjög þess virði
að skoða gaumgæfilega. Tækifærin sem felast
í aukinni orkuframleiðslu eru því gríðarlega
mikil. Til dæmis gætu arðgreiðslur Landsvirkjunar til ríkisins numið
á bilinu 4 til 8% af landsframleiðslu. Áhrifin á ríkissjóð yrðu verulega
jákvæð og möguleikar til þess að greiða skuldir og lækka álögur á
landsmenn miklir. Miðað við þessar forsendur verða áhrifin af skatt-
og arðgreiðslum Landsvirkjunar á ríkissjóð sambærileg og áhrif
norska olíusjóðsins á hið opinbera þar í landi.“ -jh
Sæstrengur á við norska olíusjóðinn
B ardagafélagið Mjölnir mun í byrjun júní flytja í nýtt hús-næði við Seljaveg, nánar til-
tekið í Loftkastalann á annarri hæð
í Héðinshúsinu. Félagið hefur verið
til húsa á Mýrargötu en til stendur
að breyta því húsnæði í hótel og
því þurftu Mjölnismenn að flytja
sig um set. Jón Viðar Arnþórsson,
formaður félagsins, segir í samtali
við Fréttatímann að þetta húsnæði
henti félaginu mun betur en það
gamla sem var orðið of lítið. Nýja að-
staðan er rúmlega tólf hundruð fer-
metrar á tveimur hæðum og gerði
Mjölnir leigusamning til sjö ára.
„Það hefur orðið sprenging hjá
okkur á undanförnum misserum og
varlega áætlað hefur fjöldi iðkenda
aukist um 25% á síðasta ári. Við vor-
um í samstarfi við Kettlebells en nú
munum við sjá um þetta sjálf. Við
byrjum með Víkingaþrek í júní og
það hafa þegar um hundrað manns
skráð sig. Þar verða ketilbjöllur og
annað sem þarf til að koma sér í gott
form,“ segir Jón Viðar.
Aðspurður um gríðarlegan áhuga
fólks á starfsemi Mjölnis segir Jón
Viðar að það eigi sér ýmsar skýr-
ingar. „Við erum með Gunna [Nel-
son innsk. blm.] sem vekur mikla
athygli og er frábær ímynd fyrir
sportið. Síðan er góður andi hjá
okkur og það er mín reynsla að það
hefur spurst út á milli fólks. Við
höfum í það minnsta aldrei þurft að
eyða peningum í auglýsingar,“ segir
Jón Viðar.
Og þótt ketilbjöllurnar séu vin-
sælar snýst Mjölnir fyrst og fremst
um blandaðar bardagalistir (MMA).
Vinsældir þeirrar íþróttar aukast
jafnt og þétt á Íslandi og eru í takt
við það sem er að gerast í öðrum
löndum, að sögn Jóns Viðars. „Þetta
er mest vaxandi sportið í Bandaríkj-
unum og vinsælla en hnefaleikar í
sjónvarpinu. Þetta hefur farið eins
og plága um heiminn,“ segir Jón
Viðar og bætir við að á meðan það
hrynji úr öðrum bardagaíþróttum
sé gífurleg aukning hjá þeim í
blönduðum bardagalistum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Einkahlutafélagið Hreiðar Már Sig-
urðsson ehf. var úrskurðað gjaldþrota í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir skömmu.
Félagið var í eigu Hreiðars Más Sigurðs-
sonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings,
og var stofnað í kringum hlutabréfaeign
hans í bankanum. Samkvæmt ársreikn-
ingi þess fyrir árið 2009 var eigið fé þess
neikvætt um 7,8 milljarða króna. Það ár
voru vaxtagjöld um 800 milljónir og má
fastlega búast við svipaðri upphæð í fyrra.
Þar með er skuld félagsins komin í hart-
nær níu milljarða. Einu eignir félagsins
voru bréf í Kaupþingi og Existu sem eru
einskis virði í dag. Eftir því sem Frétta-
tíminn kemst næst eru kröfuhafarnir
tveir. Annars vegar Arion banki með
rúma 7,5 milljarða og hins vegar Hreiðar
Már sjálfur með tæplega 1,5 milljarð.
Nokkuð ljóst er að ekkert fæst upp í kröf-
urnar í þrotabú félagsins. Hreiðar Már er
í dag búsettur í Lúxemborg þar sem hann
rekur, ásamt gömlum félögum sínum í
Kaupþingi, ráðgjafarfélagið Consolium.
Hann sætti gæsluvarðhaldi fyrir tæpu ári
vegna rannsóknar á meintri markaðsmis-
notkun æðstu stjórnenda Kaupþings.
Gjaldþrot FélaG KaupþinGsForstjóra
Níu milljarða gjaldþrot Hreiðars Más
Hreiðar Már Sigurðsson er ekki gjald-
þrota en nafni hans ehf. er það hins vegar.
Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, í nýjum heimkynnum félagsins í Loftkastalanum ásamt Páli Bergmann, til vinstri, og
sjálfum Gunnari Nelson, til hægri. Ljósmynd/Hari
Húsnæðismál mjölnir
Bardagalist í stað leiklistar
Mjölnismenn flytja af Mýrargötu í mun stærra húsnæði í Loftkastalanum í byrjun júní.
Ameríkuflug gengur
vonum framar
Ameríkuflug Iceland Express gengur
vonum framar, að því er fram kemur í
tilkynningu félagsins. Í vetur var flogið
tvisvar í viku til New York og áformað var
að hefja daglegt flug þangað í júní. „Vegna
mikillar eftirspurnar hefur félagið bætt við
ferðum fyrr en áformað var, enda hafa nú
þegar rösklega 200 prósent fleiri bókað far
með félaginu vestur um haf á næstunni, en
á sama tíma í fyrra. Ljóst er að flug Iceland
Express til Ameríku er komið til að vera og
nýir áfangastaðir munu bætast við,“ segir
enn fremur. -jh
Vígslubiskupskosning
ógilt
Kosið verður aftur um frambjóðendur
til embættis vígslubiskups í Skálholti en
fyrri kosning hefur verið lýst ólögmæt.
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir kærði
kosninguna. Eftir fyrri umferð kosninganna
munaði einu atkvæði á henni og Jóni
Dalbú Hróbjartssyni. Sr. Sigrún Óskars-
dóttir varð hlutskörpust í kosningunni með
40 atkvæði, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
hlaut 35 atkvæði og sr. Agnes 34 atkvæði.
Endurtaka þarf kosninguna vegna þess
að þrjú atkvæði, sem tekin voru gild, voru
póstlögð þremur dögum eftir að frestur
til að skila inn atkvæðum rann út. Þau
atkvæði hefðu getað ráðið því hvort Agnes
lenti í öðru eða þriðja sæti. Kjósa átti í maí
milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu
í vígslubiskupskjörinu. -jh
Vísindadagar unga
fólksins á Hvanneyri
Átján nemendum framhaldsskóla býðst
að dvelja í Landbúnaðarháskóla Íslands
á Hvanneyri 23.-26. maí næstkomandi.
Þessir dagar eru kallaðir Vísindadagar
unga fólksins, að því er fram kemur í til-
kynningu skólans. Markmiðið er að kynna
fyrir þátttakendum heim raunvísinda. Þeir
munu skoða gróður, rannsaka jarðveg og
greina sýni. Farið verður í skóga í nágrenni
skólans og þeir skoðaðir, sýni tekin og
rannsökuð. Matvælarannsóknir og jarð-
saga svæðisins eru líka meðal viðfangs-
efna svo eitthvað sé nefnt. Áhugasamir
þurfa að sækja um pláss fyrir 6. maí. Gert
er ráð fyrir að umsækjendur verði á öðru
eða þriðja ári í framhaldsskóla veturinn
2011-12. Matur og gisting er nemendum að
kostnaðarlausu. -jh