Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.04.2011, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 29.04.2011, Qupperneq 14
Reykjavíkur, segir hún þetta: „Fyrsta skrefið væri að færa timburhús í eigu Alþingis, sem nú stendur við Vonarstræti 12, yfir í Kirkjustræti, við hlið timbur- húsanna sem þar standa nú. Húsa- röð við Kirkjustræti yrði síðan öll gerð upp e.t.v. eftir svipuðum leiðum og Bernhöftstorfa.“ Nú er það orðið sem Guðrún og Hjörleifur færðu í tal árið 1990 en hvað um Alþingisreitinn að öðru leyti? Reiturinn afmarkast af Kirkjustræti, Tjarnargötu, Vonarstræti og Templarasundi og er allur í eigu Alþingis nema lóð Oddfellowhússins. Deiliskipulag reitsins frá 2009 gerir ráð fyrir gíf- urlegri mannvirkjagerð til viðbótar þeim húsum sem fyrir eru, eins og sést á meðfylgjandi uppdrætti. Auk Alþingishússins og húsanna sem tengjast því vestan megin, gömlu húsanna við Kirkjustræti, og Vonarstrætis 8 er Oddfellowhús- ið eina byggingin á reitnum. Tvö síðasttöldu húsin eru steinsteypt og verða því ekki færð úr stað, en samkvæmt deiliskipulaginu stend- ur til að fylla hann að mestu leyti af nýbyggingum á vegum Alþingis. Þetta á einkum við um vesturhlut- ann meðfram Tjarnargötu og síðan að Oddfellowhúsinu, sem verður þá sambyggt hinni nýju byggingu þingsins. Ljóst er að þetta verður tröllaukið mannvirki ef af verður, en þar sem hæst ber verður það jafnhátt Oddfellowhúsinu, þ.e. fimm hæðir. Ekki þarf að lýsa því fyrir þeim sem þekkja til á Alþingisreitnum hve óhrjálegt er þar umhorfs og hefur svo lengi verið. Í seinni tíð hefur þar verið komið fyrir tveimur víðáttumiklum bílastæð- um sem sízt eru augnayndi. Annað stæðið er fyrir vestan og norðan Oddfellowhúsið en hitt við hornið á Vonarstræti og Templarasundi. Undir síðartalda stæðinu er bíla- geymsla neðanjarðar. Fornleifar Fornleifarannsókn fer fram á lóðunum meðfram Tjarnargötu. Uppgröftur hófst sumarið 2008 en hrunið varð til þess að haustið 2009 var ákveðið að loka rúst- unum til bráðabirgða og rannsaka minjarnar ekki frekar að sinni. Að sögn Völu Bjarkar Garðarsdótt- ur, sem stjórnar rannsókninni, hefur ekkert verið að gert síðan og óvíst hvenær rannsókninni verður fram haldið. Við uppgröftinn kom í ljós að þarna er mikið af minjum frá upphafi byggðar í Reykjavík, meðal annars frá víkingaöld. Vala lítur svo á að það hafi verið mistök að loka rúst- unum en halda rannsókninni ekki áfram þar sem ekki hefði þurft nema tvo til þrjá mán- uði til að ljúka henni. Hún telur hætt við því að minjarnar spillist ef þær eru látnar óhreyfðar lengi þar sem jarðlög eru þunn og við- kvæm á þessum stað. Markmið fornleifarann- sóknarinnar er að varpa ljósi á þróun mannvistar í Reykjavík, og þar með á landinu öllu, frá land- námi og fram á 18. öld. Framhald á næstu opnu H ús það er lengst af var númer 12 við Vonarstræti var í vetur flutt á hornlóð á mótum Kirkjustrætis og Tjarnargötu. Það er í eigu Alþingis eins og hin gömlu húsin sem standa í röð við Kirkjustræti. Arkitektarnir Guðrún Jóns- dóttir og Hjörleifur Stefáns- son munu fyrst manna hafa sett fram hugmynd um að flytja húsið á þennan stað en þau hafa bæði verið í fremstu röð þeirra sem hafa stuðlað að endurgerð gamalla húsa í Reykjavík, og reyndar víðar um land, enda sér þess nú víða stað. Í grein í afmælisriti til heiðurs Pétri M. Jónassyni prófessor sjötugum árið 1990, Brunnur lifandi vatns, þar sem Guðrún fjallar um miðbæ Áherslusvið: Norðurslóðir – ný viðfangsefni, jarð- og lífvísindi Vísindamenn á öllum sviðum grunnvísinda og hagnýtra rannsókna geta sótt um. Krafa er um virka þátttöku ungra vísindamanna. Til að umsókn sé tekin gild þurfa samstarfsaðilar að sækja um bæði í Frakklandi og á Íslandi. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á heimasíðu Rannís. Tengiliður er Elísabet M. Andrésdóttir, elisabet@rannis.is Jules Verne er samstarfsverkefni Frakklands og Íslands á sviði vísinda- og tæknirannsókna. Mennta- og menningarmálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís sér um framkvæmd þess. H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Jules Verne Vísinda- og tæknisamstarf Frakklands og Íslands Rannís auglýsir eftir umsóknum um samstarfsverkefni milli Íslands og Frakklands á sviði vísinda og tækni. Styrkirnir eru ætlaðir til að greiða ferða- og dvalarkostnað vegna gagnkvæmra heimsókna á árunum 2012-2013. Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Umsóknarfrestur er 17. september 2011 Framtíð Alþingisreitsins Gömul draumsýn um endurreisn ásýndar Kirkjustætis, sem Alþingishúsið stendur við, er smám saman að taka á sig mynd. Áslaug Ragnars skoðar hér þá sögu og aðrar áætlanir um framtíð Alþingisreitsins. Áslaug Ragnars ritstjorn@frettatiminn.is Vonarstræti 8 og Oddfellowhúsið eins og það var upphaflega. Guðrún Jóns- dóttir arkitekt. Hjörleifur Stefánsson. 14 úttekt Helgin 29. apríl-1. maí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.