Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 16

Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 16
Við erum með réttu leiðina fyrir þig Eitt mínútuverð, frábær kjör! Magnaðir miðvikudagar fyrir viðskiptavini Símans Stærsta og hraðasta 3G dreifikerfi landsins Vinir óháð kerfi, bæði í Frelsi og áskrift Risa mínútupakki fyrir stórnotendur 0 kr. innan fjölskyldu og í heimasímann Vertu með vinina á 0 kr. Yfirsýn yfir alla þjónustu á þjónustuvefnum Þú færð meira hjá Símanum! 3 vinir og 300 SMS Hringdu á 0 kr. í 3 vini óháð kerfi* og sendu 300 SMS á alla hina Eitt mínútuverð í alla innanlands 1.390 kr. mánaðargjald *600 mín./ 300 SMS á mán. 300 MB á mán. fylgir til áramóta. Ódýrari mínútur Hringdu á 0 kr. í 1 GSM vin hjá Símanum* Aðeins 11,9 kr. mín. í alla innanlands 590 kr. mánaðargjald *1.000 mín./ 500 SMS á mán. 6 vinir óháð kerfi Hringdu á 0 kr. í 6 vini óháð kerfi* Eitt mínútuverð í alla innanlands 1.990 kr. mánaðargjald – Veldu áskrift eða Frelsi *Áskrift 1.000 mín./ 500 SMS á mán. Frelsi 60 mín./60 SMS á dag. 1000 mínútur Hringdu á 0 kr. í alla GSM og heimasíma á Íslandi* Frábær leið fyrir þá sem nota GSM símann mikið 7.990 kr. mánaðargjald *1.000 mín./ 500 SMS á mán. Ring Fyrirframgreidd þjónusta – fyrir þá sem vilja afgreiða sig sjálfir 0 kr. innan Ring 990 kr. mánaðargjald eða 0 kr. innan kerfis Símans 1.990 kr. mánaðargjald* *1.500 mín./ SMS á mán. Það ersiminn.is Greidd eru mánaðargjöld og upphafsgjöld skv. verðskrá. Ekki eru greidd upphafsgjöld af símtölum í vinanúmer. Nánar á siminn.is Komdu til okkar eða hafðu samband og við aðstoðum þig við að finna hagstæðustu leiðina. E N N E M M / S ÍA / N M 4 6 3 5 3 Ráðhús Reykjavíkur stendur á yngstu uppfyllingunni af þremur í norðvesturhorni Reykjavíkurtj- arnar sem upphaflega hefur náð austur fyrir Templarasund sem nú er, og því sem næst að kringlunni sem byggð var við Alþingishúsið 27 árum eftir að Alþingi tók til starfa í hinu nýja húsi árið 1881. Vonarstræti 12 – Kirkjustræti 4 Húsið sem nú stendur á horni Kirkjustrætis og Tjarnargötu reisti Skúli Thoroddsen alþingismaður, ritstjóri og fyrrum sýslumaður eft- ir uppdrætti Rögnvalds Ólafsson- ar árið 1908. Ári eftir andlát Skúla árið 1916 seldi ekkja hans, Theó- dóra, húsið en átti þó þar heima ásamt fjölskyldu sinni til 1930. Ríkissjóður eignaðist húsið 1966 og voru þar ýmsar skrifstofur, auk þess sem þar bjuggu margar fjöl- skyldur þangað til húsið var gert upp árið 1979. Þar hafa síðan verið skrifstofur alþingismanna. Skúli Thoroddsen hefur verið stórhuga maður eins og ráða má af því að miðstöðvarhitun og raflögn var í húsinu frá upphafi. Í útbygg- ingu á norðurhlið hússins hafði hann prentsmiðju sem hann flutti upphaflega með sér frá Ísafirði. Þar gaf hann út Þjóðviljann og hélt útgáfunni áfram eftir að hann flutt- ist suður. Vonarstræti 8 Sigurjón Sigurðsson trésmiður keypti lóðina að Vonarstræti 8 árið 1915 og reisti þar myndarlegt steinsteypt íbúðarhús sem enn heldur gildi sínu. Sigurjón bjó í húsinu ásamt fjölskyldu sinni fram undir 1950. Ríkissjóður keypti húsið árið 1970 og hefur starfsemi á vegum Alþingis verið þar síðan. Oddfellow Þorleifur Eyjólfsson húsameist- ari var arkitekt Oddfellowhúss- ins. Hann var einn helzti frum- kvöðull fúnkisstefnu í húsagerð hér á landi. Hann var upprunninn í Ölfusinu og lærði trésmíði hjá Jens Eyjólfssyni áður en hann hélt til náms í Þýzkalandi, ólíkt öðrum íslenzkum húsameisturum sem námu fræði sín á Norður- löndum, einkum í Danmörku. Hann tók lokapróf árið 1924 og settist að í Reykjavík eftir heim- komuna. Um það leyti má heita að steinsteypa væri orðin allsráðandi byggingarefni á Íslandi. Enn sem komið var mátti heita að hús væru steypt í líkt mót og hús úr timbri eða hlöðnu grjóti, en þegar Þor- leifur Eyjólfsson fer að láta til sín taka breyta húsin um svip. Fyrstu starfsár Þorleifs í Reykjavík er júgendstíll áberandi á húsum sem hann teiknaði en áhrifa fúnkis- stefnunnar fer að gæta um 1930. Oddfellow efndi til verðlaunasam- keppni um hönnun byggingar fyrir starfsemi sína og varð Þorleifur Eyjólfsson hlutskarpastur ásamt dönskum arkitekti. Var tillaga Þorleifs valin til útfærslu. Húsið var fyrsta stórhýsi í miðbæ Reykja- víkur með skýrum einkennum fúnkisstefnu og var það vígt síðla árs 1932. Á myndum sést að Oddfellowhús- ið hefur verið afar fallegt í upphafi. Það var teiknað sem hornhús á mótum Vonarstrætis og Thorvald- sensstrætis, sem átti að framlengja til suðurs þótt ekki yrði af því. Það var í upphafi með flötu þaki og útsýnisturni, en útlitið breyttist til muna þegar rishæð var sett ofan á það með kvistum sem eru í engu samræmi við húsið að öðru leyti, auk þess sem turninn var hækk- aður. Þá voru gluggakarmar ein- faldaðir en allt varð þetta til þess að Oddfellowhúsið glataði miklu af reisn sinni og upphaflegum stíleinkennum. Var Þorleifur ekki hafður með í ráðum þegar húsinu var breytt svo sem hér er lýst. Þorleifur teiknaði mörg athyglis- verð hús í Reykjavík. Má þar nefna verzlunar- og íbúðarhús Guð- steins Eyjólfssonar við Laugaveg og Braunsverzlun að Austurstræti 10 sem var tímamótaverk í gerð nútímahúsa. Því húsi var breytt og byggt ofan á það þannig að það er nú óþekkjanlegt. Þar er nú útsölu- staður ÁTVR. Þá skal nefnt litla „dúkkuhúsið“ sunnan við Ráð- herrabústaðinn, Öldugata 16 og 18, svo og Öldugata 19 sem hann byggði yfir sjálfan sig og fjölskyldu sína. Þar er nú leikskólinn Öldukot, en húsið þótti mjög nýstárlegt þegar það var byggt, ekki sízt vegna þess að þar var hjónarúm úr steinsteypu. Aðgát og vönduð vinnubrögð Oddfellowhúsið í núverandi mynd. 16 úttekt Helgin 29. apríl-1. maí 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.