Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.04.2011, Page 18

Fréttatíminn - 29.04.2011, Page 18
Í lífinu koma alltaf upp krefjandi aðstæður þar sem við finnum fyrir kvíða, depurð eða öðrum erfiðum tilfinningum. Og þá skiptir máli að gera sér ljósa grein fyrir hugsunarhætti sínum. Hann hefur mikil áhrif á líðan okkar en er ekki alltaf í takt við raunveru- leikann,“ segir Anna sem hefur um- sjón með námi í fræðunum við Endur- menntunarstofnun Háskóla Íslands. „Við erum öll ólík og sem börn mótumst við af umhverfinu á ýmsan hátt. Við myndum okkur hugmyndir á unga aldri um annað fólk og heiminn í kringum okkur, um það hvernig við eigum að vera og ekki síst hvort við séum eins og við eigum að vera. Þessar hugmyndir eða viðhorf sem eru ýmist kölluð kjarnaviðhorf eða inngrónar hugmyndar eru meira og minna ómeðvitaðar og fylgja okkur fram á fullorðinsár. Þær fara bæði eftir því sem við okkur var sagt, hvernig komið var fram við okkur og fyrir- myndunum sem við höfðum í æsku. Það gefur því augaleið að þessar hugmyndir sem mótast áður en við öðlumst gagnrýna hugsun eru mis- hjálplegar og sumar jafnvel skaðlegar. Því er það mikilvægt skref á þroska- brautinni að verða meðvituð um lífs- viðhorfin sem við höfum í farteskinu úr foreldrahúsum. Kortleggja hvernig maður mótaðist. Þá getum við endur- skoðað og breytt hugsunarhætti okkar ef við viljum og breytt þar með líðan okkar til betri vegar.“ Afsannar hrakspár Anna segir að hugræn fræði og atferl- ismeðferð auðveldi fólki að gera sér grein fyrir hvað það getur gert til að stuðla að betri andlegri líðan og ekki síst að verða virkari í lífi sínu. „Kvíði viðhelst oft vegna þess að maður forðast það sem veldur kvíða. Ef þú ert til dæmis mjög feimin við annað fólk mundi tilhugsunin um að fara á mannamót valda þér miklum kvíða. Þú telur þér því trú um að best sé að sleppa því og líður strax betur af því að kvíðinn minnkar. Þér líður betur í augnablikinu en viðheldur vanlíðan og kvíða til lengri tíma litið því þú missir af tækifærum til að komast að því að fólk er miklu vinsamlegra en þú ímyndaðir þér og að þú ert miklu áhugaverðari og hefur meira að gefa en þú ímyndaðir þér. Með því að forða þér kemurðu í veg fyrir að þú öðlist nýja reynslu sem afsannar hrakspár þínar og fyrirfram gefnar neikvæðar hugmyndir.“ Þunglyndir túlka sér í óhag Hugræn atferlismeðferð er hagnýt meðferð sem byggist á rannsóknum og námskenningum. „Að kynna sér þennan fræðilega grunn sem hugræn atferlismeðferð byggist á getur nýst öllum. Hugræn atferlismeðferð snýst ekki um að verða einhver Pollýanna og hugsa bara jákvætt, heldur átta sig á hvaða merkingu og skilning við leggj- um í atburðina í lífi okkar. Ef ég sæki til dæmis um starf og fæ það ekki, get ég litið svo á að það sé ekkert skrítið þar sem ég hafi verið ein af mörgum hæfum umsækjendum. Túlkun mín felur með öðrum orðum ekki í sér neinn neikvæðan dóm á sjálfri mér. En ég gæti líka hugsað sem svo að engum hafi litist á mig og að ég sé ekki nógu góð í þetta starf. Svo gæti ég haldið áfram og varpað þessum hugsunum yfir á framtíðina: Gefið mér að ekki þýði að sækja um önnur störf, ég muni hvort eð er ekki fá þau þar sem ég sé ekki nógu hæf, ekki nógu góð. Ef mér tekst ekki eitthvað get ég litið svo á að það sé mannlegt og enginn heimsend- ir. En ef ég hef tilhneigingu til þung- lyndis er hætta á að ég túlki hlutina mér í óhag, spái illa fyrir um framtíð- ina, dæmi sjálfa mig of harkalega og líti annað fólk neikvæðum augum. Til- finningarnar sem fylgja í kjölfarið geta verið depurð, þunglyndi og óöryggi sem magna upp neikvæðar hugsanir. Þannig verður til vítahringur sem helst í hendur við orkuleysi, óvirkni og einangrun. Rannsóknir hafa sýnt að hugræn atferlismeðferð dugar vel við þunglyndi og að fólki sem fær slíka meðferð hættir síður til að falla aftur niður í þunglyndi en þeim sem fá ein- göngu lyfjameðferð.“ En hvernig greinir maður vitleysu frá skynsemi? „Með því að skoða tilfinningar sínar og hugsunarhátt og meta með með- ferðaraðilanum hvort maður geti lagt jákvæðari merkingu í hlutina sem er engu að síður í takt við raunveru- leikann.“ Snýst þetta þá um að verða gagnrýn- inn á hugsanir sínar? „Já, það má segja það. Ganga ekki út frá því að hugsanir manns endur- spegli veruleikann. Við göngum oft með ímyndaðan „veruleika“ í hug- anum og horfum á heiminn í gegnum hann sem gefur okkur bjagaða mynd af lífinu. En við megum heldur ekki gleyma að sýna sjálfum okkur samúð þegar okkur líður illa. Það er ekkert rangt við að segja við sjálfan sig: Þetta fór ekki eins og ég hafði vonað, ekkert skrýtið að mér líði illa.“ Ræktum með okkur þakklæti Má segja að hugræn atferlismeðferð taki á þessum ímyndunum? „Já, hún gerir það. Það er auðveld- ara að horfast í augu við sjálfan sig með manneskju sem kann til verka og leggur sig fram við að sýna skilning og setja sig í spor manns. Þá verður maður fúsari að stíga fram og taka áhættu sem er iðulega nauðsynlegt til þess að eitthvað geti breyst. Rann- sóknir hafa sýnt að traust og gott með- ferðarsamband er eitt lykilatriðið í því að sálfræðimeðferð beri árangur.“ Í haust verður í boði nám í hug- rænni atferlismeðferð á vegum Endur- menntunar Háskóla Íslands í sam- starfi við sálfræðideild Oxford-háskóla og íslenska félagsins um hugræna atferlismeðferð. Um er að ræða eins og tveggja ára hagnýtt nám sem ætlað er háskólamenntuðum fagstéttum sem geta nýtt nálgun hugrænnar meðferð- ar í starfi sínu. „Við fáum úrvals kenn- ara utanlands frá ásamt íslenskum kennurum og hluti námsins er þjálfun eða handleiðsla í því að veita þessa tegund meðferðar með fagmennsku og mannúð.“ Anna hefur einnig kennt og skrifað um sjálfsstyrkingu og leiðir til að bæta sjálfsmat sitt, meðal annars í bók sinni Leggðu rækt við sjálfan þig sem hefur verið notuð í sálfræðikennslu. „Þessar aðferðir eru líka hluti af hugrænni at- ferlismeðferð og því hefur hún svo víð- tækt notagildi. Við þurfum öll á því að halda að efla sjálfsöryggi okkar til að geta tjáð tilfinningar okkar og þarfir og bætt þar með samband okkar við aðra. Gott sjálfsmat og góð tengsl við aðra eru kjarninn í lífshamingjunni.“ Eru fleiri atriði sem geta gert fólk hamingjusamt? „Já, það er mikilvægt að rækta með sér hugarfar þakklætis. Vera þakk- látur fyrir lífið og möguleikana sem felast í því að vakna á hverjum morgni. Ætlast ekki til þess að lífið sé auðvelt né fyrirhafnarlaust. Það er einn liðurinn í því að geta orðið hamingju- samur.“ Anna segir að rætur hugrænnar at- ferlismeðferðar nái langt aftur, meðal annars í búddadóm og gríska stóu- speki. „Það var gríski heimspekingur- inn Epiktetos sem sagði að það væru ekki ytri atburðir sem röskuðu ró mannanna heldur merkingin sem þeir legðu í þá. Búddadómur var í sinni upprunalegu mynd ekki trúarbrögð heldur hagnýt sálarfræði. Sumir segja að Búdda hafi verið fyrsti sálfræð- ingur sögunnar. Markmið hans var að binda enda á sjálfskapaðar þjáningar mannanna.“ Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Hug- myndir sem mót- ast áður en við öðlumst gagnrýna hugsun eru mis- hjálplegar og sumar jafnvel skaðlegar. Leiðréttir lærðan misskilning Anna Valdimars- dóttir segir mikil- vægt að kortleggja hvernig maður mótast í æsku til að geta breytt hugsunarhættinum. Ljósmynd/Hari Hugsanir okkar endurspegla ekki alltaf veruleikann. Hugræn atferlismeðferð felst meðal annars í því að gera sér grein fyrir lífsviðhorfum sínum og hvaða merkingu maður leggur í hlutina. Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur segir hugræna atferlismeðferð gagnlega öllum en henni er beitt við kvíða, depurð, þunglyndi, þráhyggju og ýmiss konar vanda eins og lágu sjálfsmati og samskiptavanda. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana. 18 viðtal Helgin 29. apríl-1. maí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.