Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 27
AUKUM ATVINNU - BÆTUM KJÖRIN
Göngum saman 1. maí
Samtök launafólks
á almennum og
opinberum markaði
1. maí gangan í Reykjavík
Söfnumst saman á horni Snorrabrautar
og Laugavegar kl. 13.
Upphitun með vel völdum lögum
lúðrasveitanna.
Lagt af stað niður Laugaveg kl. 13:30.
Örræður fluttar meðan á göngunni stendur.
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin
Svanur leiða gönguna niður á Austurvöll.
Útifundur á Austurvelli kl. 14:10 - 15:00.
Dagskrá útifundar á Austurvelli
Ávarp fundarstjóra: Ingvar Vigur Halldórsson, stjórnarm
aður í Eflingu
Ræða: Signý Jóhannesdóttir, varaforseti ASÍ
Hljómsveitin Dikta
Ræða: Garðar Hilmarsson, 2. varaformaður BSRB
Hljómsveitin Dikta
Ávarp: Heiða Karen Sæbergsdóttir, formaður Sambands í
slenskra framhaldsskólanema
Í lok fundar syngjum við saman Internationalen við un
dirleik Lúðrasveitar
verkalýðsins og Lúðrasveitarinnar Svanur.
drengur og þekki hann ekki af neinu slæmu. Eiður á
einhvern flottasta feril sem við höfum séð. Hann lenti í
erfiðleikum sem ungur maður þegar hann ökklabrotn-
aði og fólk hélt að hann væri bara búinn. Hann sýndi
af sér manndóm og dug og tókst á við það af mikilli
elju. Hann fór til Chelsea og vann titla. Þaðan fór hann
til Barcelona og var í liði sem vann Evrópudeildina
sem er feiknalegt afrek. Fótboltinn hefur þannig
kúrfu að maður toppar á einhverjum tíma. Mér finnst
Eiður Smári vera dæmdur of hart og menn eru mjög
óvægnir við að höggva í hann. Þetta er maður eins og
ég og þú og fótboltaferillinn mun enda. Það er eins og
fólk geri sér ekki grein fyrir að ferillinn hjá Eiði mun
síga líka.“
Sá eftir vinnunni hjá Stoke
En þú hefur valið þér sérstakt vinnuumhverfi þar sem
þjálfarar eru miskunnarlaust látnir taka pokann sinn
ef illa gengur. Þú hefur þjálfað fjölmörg lið, verið rekinn
sums staðar og hætt annars staðar. Hvaða lið hefur þér
þótt erfiðast að yfirgefa?
„Það var virkilega erfitt vinnuumhverfi hjá Stoke.
Þegar búið var að klára úr kampavínsglösunum áttaði
ég mig á því að ég var einn úti í baráttunni að takast
á við mjög krefjandi verkefni. Það var virkilega töff.
Það komu tímar þar sem ég spurði sjálfan mig út í
hvað ég væri kominn. En liðið fór í rétta átt og þetta
var líka mjög skemmtilegt. Ég sá mikið eftir vinnunni
hjá Stoke. Ég var í fínum málum faglega en það var
vilji stjórnarformannsins að skipta mér út. Mér þótti
það mjög sárt í nokkra daga. Svo horfði ég í aðra átt og
hélt áfram. Maður lætur ekki brjóta sig niður.“
Hvernig blasir fótboltinn við þér í sumar og hvaða lið
heldur þú að verði Íslandsmeistari?
„Ég held að FH sé með best skipaða leikmannahóp-
inn og ég held að þeir verði mjög góðir. KR-ingarnir
verða öflugir, Vestmannaeyingar verða öflugir og Vals-
arar. Þetta ár verður mikil prófraun fyrir Breiðablik
sem vann titilinn í fyrra. Nú þurfa þeir að sanna að
þeir geti verið með í baráttunni. En ef ég ætti að setja
pening á eitthvert lið þá yrði það FH.“
Veðjarðu einhvern tíma peningum í fótbolta?
„Nei, ég er ekki mikill gamblari. Því miður. Ég var
í tipphópi fyrir einhverjum árum og við unnum nóg til
þess að fara út að borða öðru hverju. En það var aðal-
lega til gamans gert.“
Hvaða lið myndir þú helst vilja þjálfa?
„Draumurinn væri að fara til Katalóníu og vera
nálægt sjónum í borg draumanna. Það hlýtur að vera
draumur hvers manns en ég geri mér grein fyrir því
að það líta ekki margir til Íslendinga í leit að fótbol-
taúrlausnum. Mér hefur boðist að fara aftur til Eng-
lands en ég hef ekki viljað fara frá Íslandi. Ég er í starfi
núna sem mér þykir vænt um. Það hefur kannski ekki
þær faglegu forsendur sem ég vil takast á við en það
er mikil áskorun. Þetta er frumstæðara verkefni en ég
hef áður fengist við og mér finnst það skemmtilegt.“
Það er liðinn áratugur síðan þú vannst síðast titil,
ertu hættur að eltast við titla?
„Hvað er titill? Hvað er sigur?“
Í fótbolta er það ansi augljóst.
„Já, en sigrarnir í lífinu geta verið margvíslegir. Það
sem ég get áunnið með Vestfirðingum er að styrkja
stöðu þeirra og koma þeim í rétta átt. Það er sigur og
stefnan er sett á það.“
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Ég hef unnið allt sem hægt er að vinna af titlum hér
heima, bæði sem leikmaður og þjálfari. Og oft. Ég lít
á þetta sem mikla áskorun. Menn biðu ekki beinlínis í
röðum eftir að taka við þessu verkefni.
www.rumfatalagerinn.is
OPIÐ Á
SUNNUDAG
1. MAÍ
SUMARBÆKLIN
GURINN
OKKAR ER KOM
INN ÚT!
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt
Helgin 29. apríl-1. maí 2011