Fréttatíminn - 29.04.2011, Qupperneq 32
E f einhver rennir augunum yfir stjórnmálasögu Íslands umliðna áratugi getur það naumast farið fram hjá
honum að þar skiptast á tvenns konar tímar
sem hægt væri að kenna við
„eðlilegt ástand“ og „óeðli
legt ástand“. Fyrra ástandið
ríkir þegar Sjálfstæðisflokk
urinn er í stjórn; hingað til
jafnan í samstarfi við annan
flokk sem leggur niður þá
stefnu sem hann kann að
hafa og tekur upp þá stefnu
sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur hverju sinni, sbr. það
þegar þáverandi formaður
Samfylkingarinnar sporð
renndi frjálshyggjunni með
húð og hári til að komast í
andlegt samband við Geir.
Óeðlilegt ástand er það hins
vegar þegar Sjálfstæðis
flokkurinn er í stjórnar
andstöðu, einhverjir aðrir
flokkar sitja á valdastólum
og mynda það sem menn eru af einhverj
um óskiljanlegum ástæðum vanir að kalla
„vinstristjórn“.
Völt og máttlítil
Vinstristjórn er jafnan völt og máttlítil og
stafar það meðal annars af því að þeir flokk
ar sem hana mynda eiga erfitt með að koma
sér saman um nokkurn skapaðan hlut.
Fljótlega eftir að hún er komin til valda fara
menn því að velta fyrir sér hve lengi hún
geti lafað og hafa um það ýmsar spár. Þar
sem ástandið er þá sem sé orðið óeðlilegt
taka menn gerðum hennar með fyrirvara
og vefengja réttmæti þeirra; jafnvel er hægt
að hrinda þeim með hæstaréttardómi eða
þjóðaratkvæðagreiðslu. Skipta þá rökin í
rauninni alls engu máli, hvort sem þau eru
á þá vegu að einhverjir kjörseðlar hafi ekki
verið brotnir rétt eða þá að lög sem stjórnin
setur snúist í rauninni um að selja íslensk
börn í þrældóm í enskar kolanámur. Þetta
er allt aukaatriði, kjarninn er sá að gerðir
stjórnar sem er við völd í óeðlilegu ástandi
eru eo ipso ólögmætar.
En aðalástæðan fyrir sundrung og mátt
leysi vinstristjórnar er þó sú að um leið og
hún er búin að tylla sér í valdastóla er eins
og menn geri ráð fyrir því að tími hennar
hljóti að verða stuttur, hún sitji, ef svo má
segja, einungis til bráðabirgða. Það er því
ekki efst á blaði nema hjá fáum að taka sér
venjulega stöðu sem stjórnendur annars
vegar og stjórnarandstæðingar hins vegar,
heldur reyna þeir fyrst og fremst að búa
þannig í haginn fyrir sig að þeir séu á
réttum stað og geti gripið gæsina um leið
og eðlilegt ástand kemst á að nýju.
Órólega deildin
Því þá er um þrenn verðlaun að keppa og
Stjórnmálasaga Íslands
Fyrstu, önnur og þriðju verðlaun
Á meðan
vinstri-
stjórnin
rembist
við að
lafa er
Sjálf-
stæðis-
flokkurinn
eins og
hver
önnur
aftur-
batapíka
og fær
um síðir
pólitískan
meydóm
á ný. ...
Vinstri-
stjórn er
jafnan
sú guðs
volaða
gimbur
sem burt
ber syndir
Sjálf-
stæðis-
flokksins.
Fimm tímar í viku – hreinsun, liðleiki og styrkur
3 tímar – jóga, liðleiki og öndun
2 tímar – léttar styrktaræfingar í tækjasal
Tímar kl. 17:20
Þjálfari er Sigríður Guðjohnsen
NORDICASPA
28 daga
hreinsun
með mataræði
og hreyfingu
WWW.NORDICASPA.IS
Hjá okkur nærðu árangri!
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem
mest út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem
mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að
verja líkamann á náttúrulegan hátt.
Lúxusnámskeið
NORDICASPA
fyrir konur og karla
4 vikna
Á námskeiðinu hreinsum við líkamann af
óæskilegum eiturefnum, aukum getu hans til að
vinna rétt úr fæðunni, aukum liðleika og styrk og
komum þér af stað í nýjan lífsstíl!
Ertu að glíma við:
• Mataróþol
• Matarfíkn og sykurlöngun
• Maga- og ristilvandamál
• Verki og bólgur í liðum
• Streitu, þreytu og svefnleysi
• Þunglyndi
• Aðra lífsstílssjúkdóma
Námskeiðin hefjast 9. maí
Verð kr. 34.900
Skráðu þig núna í síma 444 5090
eða nordicaspa@nordicaspa.is
Einar Már Jónsson
sagnfræðinguri
þau veitir Sjálfstæðisflokkurinn,
kannski með einhverjum ábending
um frá kjósendum. Fyrstu verð
laun, og hin eftirsóknarverðustu,
eru þau að komast í næstu stjórn
með Sjálfstæðisflokknum. Önnur
verðlaun eru þau að verða þá leið
andi afl í stjórnarandstöðunni og
skjóta öðrum ref fyrir rass. Þriðju
verðlaunin eru loks þau að geta
dregið sig í hlé úr stjórnmálum
með ríflegt veganesti, sendiherra
stöðu eða slíkt. Menn geta vitan
lega stefnt að fleiri verðlaunum en
einum og láta svo ráðast hver þeirra
þeir hreppa, en aðrir meta kannski
stöðuna þannig að best sé að keppa
um einhver ein á listanum og róa að
því öllum árum.
Í hverri vinstristjórn er svo ein
hver „óróleg deild“ sem tekur
að sér það sögulega hlutverk að
splundra stjórnarsamvinnunni og
koma aftur á eðlilegu ástandi með
Sjálfstæðisflokkinn í stjórnarfor
ystu, og er rétt að líta á þá sér
staklega. Þessir menn taka út sín
ákveðnu laun þegar í stað, þeir
eru fólkið á forsíðunum, þeir eru í
sífelldum hringdansi úr sjónvarps
stöðvum í útvarpsstöðvar og aftur
til baka, blöðin skrifa dag eftir dag
um það sem þeir gera eða gera
ekki, og um það sem þeir ætla að
gera eða það sem þeir ætla kannski
ekki að gera. Og afganginn af
laununum greiðir Egill þeim í vel
útilátnu silfri. Hvað um þá verður
síðan er ekki alltaf ljóst, hvaða
verðlaun þeir kunna að hreppa, og
væri þörf á að rannsaka það. En víst
er að Sjálfstæðisflokkurinn horfir
til þeirra í náð og heldur yfir þeim
verndarhendi ef þörf krefur.
Afturbatapíka í leit að nýjum
meydómi
Nú kynnu ýmsir að velta því fyrir
sér hvort ekki væri einfaldara að á
Íslandi ríkti jafnan eðlilegt ástand,
hvort annað sé ekki til tafar og traf
ala, en því er til að svara að óeðli
legt ástand leikur sitt sérstaka hlut
verk í stjórnmálunum og er alveg
ómissandi öðru hverju. Því meðan
það ríkir gleymast allar ávirðingar
Sjálfstæðisflokksins og sú ábyrgð
sem hann kann að bera á því sem orð
ið er. Á meðan vinstristjórnin rembist
við að lafa er Sjálfstæðisflokkurinn
eins og hver önnur afturbatapíka og
fær um síðir pólitískan meydóm á ný.
Það tekur þó aldrei langan tíma, og
því þarf flokkurinn ekki að halda sér
til hlés, hann getur alveg eins gengið
beint inn í hlutverk andspyrnuhreyf
ingar gegn vinstristjórninni og látið
öllum illum látum. Hún er ekki annað
en samkrull valdaræningja og allt
sem miður fer í fortíð, nútíð og fram
tíð er henni að kenna. Ef niðurstaðan
af því að hafa hafnað Icesavesamn
ingnum skyldi, per hypothesin, verða
verri en sú sem hefði hlotist af því að
samþykkja þá, verður það vitanlega
Steingrími að kenna; ef hann hefði
haldið betur á spöðunum, o.s.frv.,
o.s.frv. Vinstristjórn er jafnan sú guðs
volaða gimbur sem burt ber syndir
Sjálfstæðisflokksins.
Hvað svo?
En hvað er svo fyrir höndum? Ef
marka má söguna er það annaðhvort
helmingaskiptastjórn eða viðreisnar
stjórn sem næst vermir ráðherrastól
ana. Helmingaskiptastjórnin mun þá
sjá til þess að ólígarkar Sjálfstæðis
flokks og Framsóknarflokks beri
hnífjafnan hlut frá borði, og er það
kannski lýðræðislegast og réttlát
ast, en viðreisnarstjórn tekur að sér
að reisa ólígarkana við, hverju nafni
sem þeir kunna þá að nefnast. Skyldi
nokkur þriðji kostur vera til?
32 viðhorf Helgin 29. apríl-1. maí 2011