Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.04.2011, Qupperneq 41

Fréttatíminn - 29.04.2011, Qupperneq 41
                                                  ­ € ‚ƒ   „   …  † ‡   ˆ   ‰   Š    Š‹ ‚   Œ    Ž‘   www.rumfatalagerinn.is OPIÐ Á SUNNUDAG 1. MAÍ SUMARBÆKLIN GURINN OKKAR ER KOM INN ÚT! Þríhyrningar, kassar og fleiri geómetr- ísk form gefa umhverfinu nýja vídd og skemmtilega hreyfingu. Réttara er að kalla formin rúmfræðileg, sem er íslensk þýðing á orðinu geometric, en það verður að segjast eins og er að enska orðið er mun þjálla þegar nota á það um hönnun og mynstur. Geómetrísk form ryðja sér til rúms með reglulegu millibili og nutu síðast mikilla vinsælda á níunda áratug síðustu aldar og einnig þeim sjöunda en litavalið virðist ráðast af þeim síðari. Ef til vill hafa þrívíddarforritin sem margir hönnuðir nota veitt þeim innblástur þar sem upphafsteikningar eru dregnar upp í rúmfræðilegu rými. En auðvitað hafa þessi form komið fram víða og allir þeir sem læra að teikna takast á við geómetrísk form. Þau geta verið tæknileg og kuldaleg við fyrstu sýn en skemmtileg þrívíddin sem birtist manni um leið og farið er af stað með þau af einhverri alvöru leiða mann inn á nýjar slóðir. Þannig er hægt að stara tímunum saman á myndverk, höggmyndalist og veggfóður í geómetrísku formi. Auk þess sem samsetning þeirra býður upp á ótal skemmtileg mynstur sem eru í senn lif- andi, nútímaleg og spennandi. Rúmfræðileg fegurð Samsetning þríhyrninga og annarra rúmfræðilegra forma býður upp á ótal skemmtileg mynstur sem eru í senn lifandi, nútímaleg og spennandi.  Geómetrísk form Helgin 29. apríl-1. maí 2011 heimili 41

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.