Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 48

Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 48
48 tíska Helgin 29. apríl-1. maí 2011  Kauptu stílinn alexa chung Hönnun sem eykur þægindi Raphael Young hefur lengi verið þekkt nafn innan tískubransans fyrir glæsilega hönnun á skótaui. Nú hefur hann frumsýnt nýjustu afurð sína og segir að hún muni umbreyta skóhönnun framtíðar- innar. Þessi nýja lína einkennist af himinháum hælum og sveigjan- legum gúmmísólum sem ku auka á þægindin. Young hefur eytt síðustu árum í að þróa þessa vöru- hönnun og segir sjálfur að hún hafi heppnast gríðarlega vel. Nýja skólínan verður sett í sölu seinna á árinu og mun skóparið kosta um 550 dollara. Megan losar sig við húðflúrið Kynþokkafulla leikkonan Megan Fox er þekkt fyrir sitt djarfa útlit og það vakti mikla athygli um heim allan þegar svo virtist sem hún hefði gengist undir all- margar lýtaaðgerðir. Hún er ekki hætt að eiga við útlit sitt og í þetta sinn eru það ekki breytingar á andliti. Leikkonan, sem skartar fjölbreytilegu og áberandi húðflúri víða á líkamanum, er víst komin með bakþanka og finnst eitthvað af þessu skrauti aðeins tilheyra fortíðinni. Andlitsmyndin af Marilyn Monroe, sem hún lét húðflúra á hægri handlegg, er til dæmis farin að dofna og svo virðist sem Megan sé að ganga í gegnum langt leiserferli til þess að losa sig við gyðjuna. Vero Moda 4.990 kr Topshop 5.995 kr Friis & Company 3.990 kr. Kaupfélagið 15.995 kr. friis & Company 10.990 kr. Tekur mikla áhættu Breska sjónvarps-stjarnan Alexa Chung er mikill frumkvöðull þegar kemur að tísku og hefur hún verið útnefnd oftar en einu sinni best klædda kona Bretlands. Hún hefur alltaf farið sínar eigin leiðir og tekur gjarna mikla áhættu sem alltaf verður að einhverju trendi. Alexa Chung mætti svona til fara í sam- komu hönnuðarins Alexanders Wang í lok febrúar og það leynir sér ekki hve stíll hennar er fág- aður og flottur. Bronsað útlit í sumar Svo virðist sem bronsað útlit sé nýjasta vortrendið. Snyrtivörufyrirtækið MAC var ekki lengi að átta sig á því og hefur í kjölfarið hafið framleiðslu á nýrri sumarlínu sem nefnist Surf. Hún er ætluð fyrir ströndina, sólina og gleðina og eru vörurnar sam- bland af náttúrulegum litum. Vörurnar eru flestar vatnsheldar og innihalda sólarvörn sem hentar vel fyrir sumarið. Þarna er um að ræða maskara, sólar- púður í blautu formi sem færir mikinn glans og brons í andlitið og varalit sem er áberandi og heillandi. Línan verður sett í sölu í lok maí á Bandaríkjunum og mun að öllum líkindum berast stuttu seinna hingað til lands. www.nordicaspa.is FRÁBÆR VAXTAMÓTUN MIKIL FITUBRENNSLA GEGGJAÐ FJÖR & SKEMMTILEG TÓNLIST HANDKLÆÐI OG HERÐANUDD Í POTTUNUM SÉRSNIÐIN ÆFINGAÁÆTLUN MEÐ EINKAÞJÁLFARA 4 VIKNA NÁMSKEIÐ SKRÁNING444-5090 HEF ST 10. M AÍ B U T T L I F T GEGGJAÐUR ÁRANGUR! Jennifer Lopez af- hjúpar leyndarmál Ofurskutlan Jennifer Lopez, sem nýlega var krýnd fegursti kvenmaður heims af tímaritinu People Magazine, er ekki feimin við að afhjúpa leyndarmál þegar kemur að fegurð sinni. Í nýlegu viðtali sagðist hún hafa fundið sitt fyrsta gráa hár aðeins 23 ára gömul, á þeim tímapunkti þegar hún fór að leika í bíómyndum. Þá fór stressið og álagið að aukast og sagðist hún vera lifandi dæmi um að það fjölgi gráu hárunum. Hún hefur þó alltaf verið talin hárprúð og hefur verið dugleg að hlúa að hárinu. Passar vöxt gráu háranna vel og heldur þeim í skefjum með hárlitun minnst einu sinni í mánuði.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.