Fréttatíminn - 29.04.2011, Page 51
Á hljómgrunnur.is er að finna aðgengi-
legt yfirlit yfir tónlistarviðburði sem
eru fram undan. Rokk, djass, popp,
klassík og allt þar á milli.
Föstudagur 29. apríl
Megas og Senuþjófarnir með vandræði
Faktorý Bar kl. 22
Megas og félagar mun leika lög af (Hugboð um)
Vandræði sem er mest selda plata á Íslandi um
þessar mundir. Á plötunni er að finna 17 lög
Megasar við texta hans og Þorvaldar Þorsteins-
sonar. Á efnisskránni verða að auki lög af fyrri
plötum Megasar og Senuþjófanna.
Aðgangur 1.500 kr.
Skálmöld og Sólstafir
Nasa kl. 22
Tvær af stærstu þungarokkshljómsveitum
landsins leiða saman hesta sína og halda
stórtónleika á Nasa. Skálmöld ruddist fram á
sjónarsviðið á síðasta ári. Fyrsta plata þeirra,
Baldur, segir sögu víkings sem missir allt sitt
í árás, hvernig hann ferðast yfir ófærur til að
hefna og allt fram yfir dauða. Textar Skálm-
aldar hafa vakið sérstaka athygli, kjarnyrtir og
dýrt kveðnir, og sækja innblástur í þjóðar-
arfinn. Sólstafir hafa vakið mikla athygli fyrir
frumlegt indí-skotið og epískt síð-þungarokk.
Síðasta plata þeirra, Köld, frá árinu 2009, hlaut
mikið lof gagnrýnenda. Aðgangur 2.500 kr.
Karlakór Eyjafjarðar
Hof, Akureyri, kl. 20.30
Karlakór Eyjafjarðar heldur árlega vortónleika.
Hann mun njóta liðstyrks frábærra hljóð-
færaleikara en þeir eru Páll Barna Szabó píanó-
leikari, Birgir Karlsson gítarleikari, Haukur
Ingólfsson bassaleikari og Rafn Sveinsson
trommuleikari. Þar að auki stíga fram þeir
Birgir Björnsson, Engilbert Ingvarsson og
Haukur Harðarson og syngja bæði ein- og
tvísöng. Á dagskrá er fjölbreytt tónlist, allt frá
angurværum ástarljóðum til kraftmikilla karl-
mennskusöngva.
laugardagur 30. apríl
Kvöldstund með Janis Joplin
Tjarnarbíó kl. 20
Söng- og leikkonan Bryndís Ásmunds túlkar
hina einstöku Janis Joplin ásamt hljómsveit.
Bryndís sló í gegn sem Janis Joplin í sýningunni
um söngkonuna í Íslensku óperunni og var
tilnefnd til Grímunnar sem besta söngkona
ársins 2009.
Nína verður tvítug
Salurinn, Kópavogi, kl. 20.30
Hinn 4. maí verða liðin tuttugu ár síðan Stefán
Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson fluttu lag
Eyjólfs, Nína, á sviðinu í CineCitta-kvikmynda-
verinu í Rómaborg. Upp frá því hefur óður
sá verið fluttur oft og víða og má fullyrða að
lagið fylli nú flokk allra vinsælustu dægurlaga
Íslandssögunnar. Í tilefni afmælis Nínu ætla
Stebbi og Eyfi að halda einstaka tónleika í
Salnum. Þar munu faðir og frændi afmælis-
barnsins, ásamt fleiri hljóðflæraleikurum,
flytja blandaða dagskrá, með sérstakri áherslu
á Evróvisjónlög sem þeir hafa ýmist komið
nálægt í gegnum tíðina, tekið þátt í að skapa
eða eru þeim hugleikin.
sunnudagur 1. maí
Martraðaprinsinn eftir Brynjar Jóhannsson
Café Rósenberg kl. 21
Söngleikurinn Martraðaprinsinn er þrettán
laga söngleikur sem verður fluttur í heild sinni
á þessum tónleikum. Flytjendur eru Brynjar
Jóhannsson, Þórunn Pálína Jónsdóttir, Ingi
Valur Grétarsson, Ingimundur Óskarsson og
Eysteinn Eysteinsson.
Aðgangur 1.000 kr.
Stjórn og starfsfólk Eflingar-stéttarfélags styður þá kröfu Félags
heyrnarlausra sem hefur barist fyrir því í þrjá áratugi að táknmálið
hljóti opinbera viðurkenningu. Þetta eru grundvallar mannréttindi
sem heyrnarlausir hafa farið fram á. Við hvetjum Alþingi Íslendinga
til að viðurkenna táknmálið sem er grunnur að öðrum réttindum
þessa hóps svo sem til túlkunar, aukinna tækifæra í menntun og
tryggara umhverfi fyrir nýfædd heyrnarlaus börn.
Stjórn Eflingar-stéttarfélags
Við styðjum Félag heyrnarlausra í baráttu
fyrir viðurkenningu táknmálsins
Stendur með þér!
Efling-stéttarfélag sendir félagsmönnum sínum og öllu launafólki baráttukveðjur 1. maí
Fjölmennum í 1. maí gönguna og kaffið í Valsheimilinu á eftir