Fréttatíminn - 29.04.2011, Blaðsíða 54
Engar áætl-
anir eru hins
vegar uppi
um alheims-
dreifingu.
H afliði Helgason rak upp stór augu þegar hann
gekk fram á blaðasala á götu
í Jaipur í Rajastan-héraði á
Indlandi. Það var þó ekki
blaðasalinn sjálfur sem kom
ferðalanginum frá Íslandi svo
spánskt fyrir sjónir heldur sú
staðreynd að hann flaggaði
eintaki af Fréttatímanum sem
var ekki komið út á Íslandi
þegar Hafliði hélt utan.
Fréttatímanum er dreift
ókeypis á höfuðborgarsvæð-
inu og Akureyri auk þess sem
nálgast má blaðið á bensín-
stöðvum N1 víða um landið.
Engar áætlanir eru hins vegar
uppi um alheimsdreifingu en
útsjónarsamir blaðasalar á
Indlandi virðast hafa gengið í
málið sjálfir.
Hafliði segir blaðasalann
hafa boðið til sölu blöð úr
öllum áttum en þar sem hann
kunni lítið fyrir sér í hindí
gat hann ekki fengið endan-
legan botn í málið. Eftir því
sem næst varð komist virtist
blaðasalinn búa yfir upplýs-
ingum um hvaðan ferðamenn
væru væntanlegir til borgar-
innar. Hann prentaði síðan út,
af netútgáfum blaða frá við-
komandi löndum, í nokkrum
eintökum og stillti sér síðan
upp á vinsælum ferðamanna-
stöðum og flaggaði blöðum frá
heimalandi túristanna.
Götuverð fríblaðsins hinum
megin á hnettinum fylgdi ekki
sögunni en blaðasalinn komst
í feitt þar sem hann fékk
nokkrar rúpíur fyrir að stilla
sér upp fyrir myndatöku.
blaðasala Víða flækist frómur
mENNiNG ÞorValdur daVíð á samNiNG Við stóra umboðsskrifstofu
Flytur til Los Angeles
Mér hefði
ekki getað
gengið
betur og
komst ekki
yfir öll við-
tölin ...
Smartland Mörtu
Marta María Jónas-
dóttir er annáluð fyrir
næmt auga og smekkvísi
þegar kemur að fata-
tísku, húsgögnum og öllu
þar á milli. Marta smarta
hefur skrifað um tísku
og sveiflur og hræringar
í heimi fræga og fallega
fólksins í rúman áratug
á hinum ýmsu miðlum.
Nú síðast gerði hún það
gott á Pressu Björns
Inga Hrafnssonar
þar sem hún var með
puttann á púlsi tískunnar
á vefnum Veröld Mörtu.
Vinsældir Veraldarinnar
áttu sinn þátt í uppgangi
Pressunnar og Marta var
orðin aðstoðarritstjóri
vefjarins þegar hún söðl-
aði skyndilega og óvænt
um fyrir stuttu og réð
sig til mbl.is. Marta ætlar
að halda uppteknum
hætti þar og opnar á
fimmtudaginn vefinn
Smartland þar sem
hún verður á svipuðum
slóðum og áður. Þeir og
þær sem þekkja til skrifa
Mörtu vita því við hverju
má búast en Marta horfir
sem fyrr til allra átta og
stílar ekkert sérstaklega
inn á drottningar, heldur
konur almennt.
H ann er að ljúka leiklistarnámi í Juilliard, einum virtasta listahá-skóla heims, og útskrifast þaðan
í lok maí. „Í skólanum er hefð fyrir því
að útskriftarnemar haldi sýningar í New
York og Los Angeles fyrir fólk úr brans-
anum. Þangað koma umboðsmenn og fólk
frá sjónvarpsstöðvunum til að berja okkur
augum. Eftir sýningarnar fengum við
möppu með lista yfir þá sem óskuðu eftir
viðtölum við okkur. Mér hefði ekki getað
gengið betur og komst ekki yfir öll viðtölin
sem mér stóðu til boða,“ segir Þorvaldur
Davíð. Hann hljóp þó á milli manna og
segist á endanum hafa landað samningi
við Untitled Entertainment, stóra umboðs-
skrifstofu sem mun aðstoða hann við að
komast í leikprufur. Fjölmargar stjörnur
eru á skrá hjá skrifstofunni, svo sem
Penelope Cruz, Hillary Swank, Mad-
onna og Aston Kutcher.
„Þetta eru fulltrúar sem auðvelda mér
aðgengi að bransanum og auka líkurnar
á að ég komist í réttu herbergin. Þetta er
það sem maður hefur verið að bíða eftir.
Nú er ég búinn að ná mér í réttu mennt-
unina, réttu umboðsmennina og þetta
lítur bara vel út. Þá er bara að byggja upp
ferilinn í útlöndum.“
Að sögn Þorvaldar er langt ferli að koma
sjálfum sér á framfæri í Bandaríkjunum.
„Ég er að safna mér pening svo að ég
geti lifað úti og farið í leikprufur. Ég von-
ast til að landa fleiri hlutverkum eins og
því sem ég er að takast á við í Svartur á
leik. Það er ofboðslega ögrandi hlutverk.
Draumurinn er að geta flakkað á milli Ís-
lands og Bandaríkjanna og haft frelsi til
að velja á milli hlutverka. Það er reyndar
staða sem fáum býðst.“ -ÞT
Fréttatíminn seldur á Indlandi
Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur skrifað undir samning við
umboðsskrifstofuna Untitled Entertainment í Bandaríkjunum
og stefnir á að flytja til Los Angeles í haust.
Þorvaldur Davíð Draumurinn er að geta flakkað á milli Íslands og Bandaríkjanna og haft frelsi til að velja á milli hlutverka.
Blaðasalinn í Jaipur situr fyrir ferðafólki og kemur
því á óvart með fréttum að heiman.
Konunglegar Vikukonur
Ritstjórn tímaritsins Vikunnar lætur sér fátt mann-
legt óviðkomandi og þar er kóngafólk í hávegum
haft. Aðstoðarritstjórinn, Guðríður Haraldsdóttir,
er mjög hrif-
inn af bresku
konungsfjöl-
skyldunni og
hefur blásið
til brúðkaups-
veislu fyrir
framan sjón-
varpstæki
í fundar-
herbergi
tímaritaút-
gáfunnar
Birtíngs.
Samkvæmt
dagskrá
átti gleðin að hefjast klukkan sjö að morgni en
bein útsending frá brúðkaupi Vilhjálms prins og
Kate Middleton hefst á RÚV og Stöð 2 klukkan
níu. Vikukonur lögðu hart að samstarfsfólki sínu
á öðrum tímaritum að taka þátt í gleðinni, virða
hirðsiði og tala til dæmis ekki illa um klæðaburð
brúðkaupsgesta. Veitingar í brúðkaupspartíinu eru
heldur ekki af verri endanum þar sem á boðstólum
eru „breskar cucumber-samlokur, sérrí og sætindi –
og að sjálfsögðu English Breakfast Tea.“
Gullaldarkappar
Margir af bestu fót-
boltamönnum síðustu
aldar taka fram skóna á
árlegu árgangamóti Fram um
helgina. Meðal kappa sem
von er á í Safamýrina eru
meðlimir gullaldarliðs Fram
sem vann alla mögulega titla
undir stjórn Ásgeirs heitins
Elíassonar. Undanfarin fjögur
ár hefur 1968-árgangurinn
unnið mótið. Hefur það
vakið nokkurn
pirring meðal
manna í yngri
árgöngum, enda
tæpast gott til
afspurnar að
menn á fimm-
tugsaldri taki
mótið ár eftir ár. Meðal
liðsmanna í 68-árganginum
eru Pétur Þ. Óskarsson,
Arnljótur Davíðsson og Þór-
hallur Víkingsson sem telja
sig hafa sannað að á svona
mótum sé það grunngeta í
knattspyrnu og leikskilningur
sem ræður úrslitum.
30
OPIÐ HÚ
S
APRÍL
EIRBERGSDA
GURINN
LAUGARDAG
INN
Úrval af heilsuvörum
og hjálpartækjum til
sýnis og sölu í verslun
okkar að Stórhöfða 25
Fjöldi tilboða
Verið velkomin
Opið frá kl. 11-16.
54 dægurmál Helgin 29. apríl-1. maí 2011