Fréttatíminn - 24.06.2011, Qupperneq 10
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Þarft þú heyrnartæki?
Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
Átt þú í eriðleikum með að heyra í
fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir
tala lágt eða óskýrt? Hváir þú oft?
Ef svo er getur það verið merki þess að
heyrn þín sé farin að skerðast.
Erum með mikið úrval vandaðra
heyrnartækja frá Oticon sem eru búin
fullkomnustu tækni sem völ er á.
Í tilefni af 10 ára starfsafmæli Heyrnartækni þá
ætlum við að styrkja KRAFT í sumar með ákveðinni
upphæð af hverju seldu heyrnartæki. KRAFTUR er
stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendur þeirra.
Umtalsverð hækkun byggingarkostnaðar
7,6%
hækkun á
byggingavísitölu
Síðustu 12 mánuði
Hagstofa Íslands
Landsmót FornbíLaeigendur hittast á seLFossi
Fjölskylduvænt en þó reykspólað
„Þetta er frábær félagsskapur karla og
kvenna á öllum aldri,“ segir Jóhannes
Bachmann, fulltrúi Fornbílaklúbbsins
sem heldur landsmót sitt á Selfossi nú
um helgina, 24.-26. júní. Áherslan er
lögð á að hafa mótið fjölskylduvænt og
skemmtilegt svo búast má við því, að
sögn Jóhannesar, að einhver drekaeig-
andinn reykspóli í tilefni mótsins. Mótið
er haldið í samvinnu við Bifreiðaklúbb
Suðurlands og sveitarfélagið Árborg. Doll-
aragrín bandarískrar gullaldar og fleiri
fornir vagnar verða því á ferð á sunn-
lenskum vegum um helgina.
Í ár verða þátttakendur ekki eingöngu
íslenskir því hópur hollenskra forn-
bílaeigenda kom hingað til lands með
Norrænu á dögunum. Þeir aka hringinn í
kringum Ísland og mun hluti þeirra taka
þátt í hópakstri Fornbílaklúbbsins í kvöld,
föstudag, en ekið verður um Þrengslaveg
til Selfoss. Ýmislegt verður í gangi móts-
dagana; delludagar, drullu-torfæra, mótó-
kross og fleira.
Jóhannes segir hóp þeirra í klúbbnum
sem eiga ameríska dreka fjölmennastan
en allar gerðir bíla séu þar að finna.
Einar J. Gíslason landsmótsstjóri sé
t.d. mikill Buick-maður og eigi fjórtán
bjúkka á númerum. Stundum sé hins
vegar þýskt þema
í klúbbnum og þá
aki þýskir bílar
í fararbroddi.
Sjálfur segist
Jóhannes vera
á milli bíla, hafi
ekið á flaggskipi
Mercedes Benz,
árgerð 1984, að
hætti erkiskúrksins J.R. Ewing í Dallas,
en langi nú mest í Mercury Coogar 1968
eða Javelin frá svipuðum tíma. Vilji hann
hins vegar skella sér á „nýjan“ fornbíl
bjóðist um þessar mundir Thunderbird
‘64 og Buick Roadmaster, árgerð 1956. Sá
er aðeins ekinn 42 þúsund mílur og kost-
ar 2,8 milljónir króna. Kaupi Jóhannes
ekki gæti Einar J. bætt fimmtánda bjúkk-
anum í safnið.
Fornbílamenn sýna sig og sjá aðra á selfossi um helgina, meðal annars
á glæsilegum Chevrolet-bílum eins og þessum. Með í för verður hópur
hollendinga á fornbílum sínum.
ÖryggismyndavéLar bæjarmÖrkin á seLtjarnarnesi
Myndavél upplýsti
skotárás á Eiðistorgi
öryggismyndavélar vakta nú báðar inn- og útgönguleiðirnar á seltjarnarnesi. Myndavélarnar
voru settar upp um áramótin og er prófunum lokið. lögreglumál var leyst í síðustu viku með
hjálp myndavélanna. Ljósmyndir/Hari
Þ essar vélar voru settar upp á báðum stöðum samtímis um síðustu
áramót,“ segir Ásgerður
Halldórsdóttir, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi, um öryggis-
myndavélar sem vakta inn- og
útgönguleiðir á Seltjarnarnesi,
annars vegar við Vegamót, á
horni Nesvegar og Sörlaskjóls
og hins vegar við Eiðistorg.
Á fimmtudag var skotið
tveimur skotum úr loftbyssu
á kyrrstæðan, mannlausan
bíl á Eiðistorgi og segir Ás-
gerður að lögreglan hafi leyst
málið daginn eftir með hjálp
myndavélanna. Hún segir afar
skýrar reglur um aðgang að
efni myndavélanna í samræmi
við lög um persónuvernd og
lögreglan sé sú eina sem hafi
aðgang að efninu með aðstoð frá
tölvumanni frá Skyggni.
Ásgerður segir að hug-
myndin að þessu hafi kviknað
hjá starfsmanni bæjarins sem
hefði kynnst þessu í Hollandi
þar sem myndavélar væru út um
allt. Lega bæjarfélagsins hentar
vel og því var ákveðið að fara út
í þetta. Ásgerður segir að kostn-
aðurinn við uppsetningu vél-
anna og þess tækjabúnaðar sem
þurfti að fjárfesta í vegna þeirra
sé um sex milljónir króna.
„Þetta er í samræmi við þær
áætlanir okkar að gera Sel-
tjarnarnes að öruggum bæ. Við
erum með myndavélar, höfum
verið að auka nágrannavörsluna
og síðan er það hverfisgæslan
þar sem bílar frá okkur aka um
bæjarfélagið. Allt þetta hjálpar
til við að gera bæinn okkar
öruggan,“ segir Ásgerður og
bætir við að framtakið hafi
fengið mjög jákvæðar viðtökur
meðal bæjarbúa.
Og á þessu ári hefur verið
tilkynnt um þrjú innbrot á Sel-
tjarnarnesi sem er mun minna
en undanfarin ár.
Seltjarnarnes er ekki eina
bæjarfélagið sem hefur öryggis-
myndavélar við bæjarmörkin.
Gunnar Lúðvíksson, fjár-
málastjóri Seltjarnarness, segir
í samtali við Fréttatímann að
bæði Hveragerði og Bláskóga-
byggð séu með slíkar vélar og
að Álftanes sé með það til skoð-
unar að setja myndavélar við sín
bæjarmörk.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Enginn fer inn eða út af seltjarnarnesi án þess að myndavélarnar nemi það.
así og sa staðfesta
gildistöku
samninganna
samninganefnd ASÍ ákvað fyrr í
vikunni að staðfesta gildistöku þeirra
kjarasamninga sem undirritaðir voru 5.
maí síðastliðinn. Samtök atvinnulífsins
staðfestu einnig gildistöku samning-
anna. samningarnir munu því gilda
til janúarloka 2014 með umsömdum
endurskoðunarákvæðum. bæði ASÍ
og SA gagnrýna stjórnvöld fyrir að
hafa ekki lagt fram fjárfestingar- og
hagvaxtaráætlun sem liggja átti fyrir
í maílok. hið sama gildi um óvissu
og hringlandahátt varðandi kvóta-
frumvörp ríkisstjórnarinnar og tafir
í úrlausnum skuldavanda heimila og
fyrirtækja. -jh
vísitala byggingarkostnaðar, sem reiknuð er um miðjan júní,
hækkaði um 2,3% frá fyrri mánuði samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands. Er tólf mánaða hækkunin komin upp í 7,6% en var
5,5% mánuðinn á undan. Þessi mikla hækkun er í takt við
það sem búast mátti við, segir Greining Íslandsbanka, enda
skýrist hún að stærstum hluta af nýgerðum kjarasamningum
á almennum vinnumarkaði. Þannig hækkuðu vinnuliðir
vísitölunnar um 6,7% milli mánaða og sjá má að hækkunin
er nokkuð umfram þá almennu hækkun launa upp á 4,25%
hinn 1. júní og kann að vera að sú 50 þúsund króna eingreiðsla
sem kom til útborgunar þegar samningarnir voru undirritaðir
hafi einnig haft sitt að segja. Frá sama tímabili í fyrra hafa
vinnuliðir vísitölunnar hækkað um 14,5%. -jh
OECD varar við
tilraunum til breytinga á
kvótakerfinu
skýrsluhöfundar Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar, OECD, eru nokkuð bjartsýnir
á efnahagslega framtíð íslands og segja styrk-
leika landsins einkum felast í orkuauðlindum
en mikilvægt sé að draga úr atvinnuleysi.
spáð er 3% hagvexti. í skýrslunni, sem kynnt
var í vikunni, eru íslensk stjórnvöld vöruð við
tilraunum til að breyta kvótakerfinu. Mikilvægt
sé að sjávarútvegurinn beri sig. íslendingum
hafi gengið vel að stýra sjávarútveginum og
það sé kvótakerfinu að þakka en það sé byggt
á vísindalegri ráðgjöf og úthlutun aflaheimilda.
Þetta hvetji kvótaeigendur mjög til að tryggja
góða nýtingu á auðlindinni. stofnunin leggur
til að auðlindagjald verði hækkað svo að ríkis-
sjóður fái meira í sinn hlut. -jh
10 fréttir helgin 24.-26. júní 2011