Fréttatíminn - 24.06.2011, Síða 44
Pirates of Barbary: Corsairs, Conquests and Captivity
in the 17th-century Mediterranean heitir nýútkomin bók
eftir Adrian Tinniswood þar sem rakin er saga byggða
sjófarenda við strendur Miðjarðarhafsins, Marokkó, og
ríkja Ottómana-veldisins Alsír, Túnis og Trípolí, en þaðan
komu skipin sem í tvígang gerðu strandhögg hér sem
löngum var kennt við Tyrkjann.
Ritið hefur fengið fullt hús í dómum í breskum fjöl-
miðlum en þar er rakin eftir umfangsmiklum heimildum
saga þessara staða og þeirra sem þar bjuggu, gripdeildir
þeirra og þáttaka í alþjóðlegum hernaði, þar með talin
ránin norður á bóginn til Írlands og Íslands.
Barbaríið og Tyrkinn voru alla sautjándu öldina og fram á þá átjándu
lifandi í hugum alþýðu hér á landi, en þeir sem máttu þola herleiðinguna
suður vissu fæstir að þeir væru að öðlast víðari heimsýn en nokkurn
landa þeirra gat dreymt um. Bók Tinniswoods er nær 500 síður og gefin
út af Vintage. -pbb
Fréttir út barbaríinu
Bókadómur rosaBaugur eftir Björn Bjarnason
k ominn á eftirlaun úr argaþrasi stjórnmála sest Björn Bjarna-son niður og skrifar bók upp á
432 blaðsíður um Baugsmálið svokall-
aða og hlut sinn að þeim málarekstri
öllum saman. Bókin er heillegt yfirlit um
málin sem hófust með heimsóknum Jóns
Geralds Sullenberger, fyrrum samstarfs-
manns yfirmanna og eigenda hjá Baugi, til
nokkurra ráðamanna Sjálfstæðisflokksins,
sem leiddu til þess að Jón kærði nokkra af
stjórnendum Baugs. Lögreglan gerði hús-
rannsókn hjá Baugi á þeim dögum þegar
fyrirtækið stóð í yfirtökutilboði á meiri-
hluta í breska verslunarrisanum Arcadía –
svo það varð að engu – og í framhaldi tóku
við löng ár réttarhalda yfir nokkrum ein-
staklingum sem gegndu ábyrgðarstöðum
hjá Baugi.
Magnaðasti uppvakningur seinni tíma
Á þessum tíma var Björn Bjarnason lengst
af dómsmálaráðherra og gætti í því starfi
hagsmuna þeirra sem ráku málin fyrir
hönd ríkisins. Hann var því eitt megin-
skotmark þeirra Baugsmanna sem héldu
því fram lengi og æ síðan að ákæran hefði
verið samsæri valdamanna í Sjálfstæðis-
flokknum. Björn telur aftur á móti víð-
tækan stuðning almennings við Jón Ás-
geir Jóhannesson og félaga sem ákærðir
voru, vera kominn til fyrir sífelldan og
lymskulegan áróður svokallaðra „Baugs-
miðla“, það er Fréttablaðsins, Stöðvar 2,
Sýnar, Bylgjunnar og dótturstöðva, NFS
og Talstöðvarinnar – allra þeirra fjölmiðla
sem fyrirtæki Jóns Ásgeirs áttu í. Jón og
félagar hafi haft á sínum snærum stóran
hóp blaðamanna á öllum þessum miðl-
um sem hafi – væntanlega með tilstyrk
yfirmanna sinna – ritstjóra, vaktstjóra,
fréttastjóra, dagskrárgerðarstjóra – beint
skrifum og tali í þá veru að gera hlut hinna
ákærðu sem mestan en hlut ákærenda
sem verstan. Samsæriskenningar þessar
eru einhver magnaðasti uppvakningur
sem hér hefur fram komið og lagði þessi
draugagangur allt samfélagið undir sig í
nær sex ár.
Varnar- og ákærurit
Bók Björns er varnar- og ákærurit. Hann
er enn að ráðast á þá sem dæmdir voru
sekir um efnahagsbrot og þeirra sam-
verkamenn, hann er enn að berja á
pólitískum andstæðingum fyrir meinta
aðkomu þeirra að málinu, um leið og hann
er enn að fegra sinn hlut og sinna manna
í þessu langa og leiðinlega máli. Hann er
pikkfastur við sömu hundaþúfuna.
Nú er það ágæt aðferð að gefast seint
upp, einkum ef sögulegt mannorð manns
liggur við. Hvað er betra en að gefa út
doðrant þar sem farið er yfir málið í heild,
raktar eru allar efnisaðstæður, greinar,
ræður, ásakanir etc. í þurrlegri endursögn
sem virðist alltaf vera rétt eftir höfð, en svo
er hver umfjöllun börnuð með persónu-
legri skoðun höfundar? Hér skal fægð sú
söguskoðun sem Björn telur rétta; taldi
rétta þá, telur rétta nú. Hans sjónarmið
hafa ekkert breyst, hann sér ekkert í nýrra
ljósi, jafnvel getur hann ekki virt lögmenn
Jóns Ásgeirs og félaga neins þar sem þeir
finna allt til að halda fram rétti skjólstæð-
inga sinna. Og lesanda verður um síðir
ljóst að hann er að lesa sögulegt rit um
einæði, kviksjá inn í heim og rými stjórn-
málamanns sem er skilgetið afkvæmi
kalda stríðsins, en jafnframt innmúraður
hlekkur í valdanet stjórnkerfisflokks sem
telur sig eiga ríkisvaldið. En Björn er ekki
vissari en svo um hvernig sagan muni
dæma hann að hann telur nauðsynlegt að
skrifa sína versjón af atburðum.
Samsærisparturinn af allri þessari
sögu er eftir á að hyggja svolítið sorg-
legur, reyndar eins og allt streð Björns
við að bakka sína menn upp. Á endanum,
eftir allt málastappið, voru Jón Ásgeir og
Tryggvi Jónsson dæmdir fyrir bókhalds-
brot, þótt Björn sé svo óheppinn í bókinni
að segja þá hafa stundað fjárdrátt eins og
hann lét leiðrétta í Mogganum á hvíta-
sunnudag. Nákvæmnin er nú ekki meiri.
Honum er líka býsna títt að vitna til þess
hvað „Baugsmenn“ og „Baugsmiðlar“
segja og gera eins og það sé einhver
mönnuð skrifstofa úti í bæ sem vinni alla
daga; í venjulegri heimildavinnu sem á að
standast kröfur, væri í hverju tilviki greint
frá því hver talaði og hvaðan heimildin
væri komin, en Björn munar ekki um að
vinna svona. Það er ótrúlega lágkúrulega
að verki staðið.
Beygur við dóm sögunnar
Það er ekki auðvelt verk að vinna svona
bók, lesandinn trúir samantekt höfundar-
ins, fær á honum traust þótt auðvelt sé að
greina túlkun Björns, víða svo einþykka
að auðvelt er að draga sína eigin dóma
af framgangi í málflutningi Björns, til
dæmis frásögn hans af athugasemdum
Matthíasar Johannessen við fréttaflutning
Fréttablaðsins í apríl 2007. En að lestri
loknum vaknar lesandinn upp við að hér
er ekki ástæða til að treysta neinu; allt
verkið er ekki skrifað samkvæmt óhlut-
drægnireglu, vandaðri heimildarýni, það
er skrifað til að fegra eigin feril. Hvaða
brýna þörf rekur menn til þess verður ekki
ljóst, ef til vill sá beygur að sagan muni
á endanum dæma feril Björns þannig að
frægðarsól hans hafi skinið hæst í máli
vegna bókhaldsbrota. Og það á tíma þegar
dómsmálaráðherrann missti af skipulögðu
ráni á öllum helstu fjármálastofnunum
landsins innan frá, þar á meðal Seðlabank-
anum sjálfum. Ekki beint að vera í takt við
tímann.
32 bækur Helgin 24.-26. júní 2011
Bókadómur júní eftir Hörpu Árnadóttur
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Chilenska skáldið Pablo Neruda hlaut Nóbelsverðlaunin í bók-
menntum 1971. Tveimur árum seinna var hann allur. Það var uppreisn
í heimalandi hans. Vinur hans og forseti landsins, Salvador Allende,
var fallinn í umsátri um forsetahöllina. Tólf dögum seinna andaðist
Neruda eftir snögg veikindi á sjúkrahúsi heilagrar Maríu í Santiago.
Neruda hafði þá uppi áætlanir um að flytjast til Mexíkó. Það er forn-
vinur Neruda, Manuel Araya, sem hefur nú heimtað að hafin verði
rannsókn á dauða Neruda og fullyrðir Araya að Neruda, sem hafði
leitað hælis í sjúkrahúsinu vegna heimsókna herlögreglunnar og var í
meðferð vegna krabbameins í blöðruhálskirtli, hafi hringt í sig þegar Araya og kona Neruda
hafi farið af sjúkrahúsinu til húss Neruda að sækja þangað persónulega muni þeirra hjóna.
Hafi Neruda fullyrt að hann hefði verið sprautaður í svefni. Við komuna á sjúkrahúsið síðar
þann dag hafi Neruda verið orðinn fárveikur og látist þá um kvöldið. Nú er hafin rannsókn
á dauða Allendes í Chile og verður andlát Neruda líka tekið til rannsóknar af sama rann-
sóknardómara. -pbb
Var Neruda myrtur af
flugumönnum Pinochets?
Sumarland í Skagafirði Lesið fyrir svefninn –
Í rúmið með Bíbí
Rosabaugur
yfir Íslandi eftir
Björn Bjarnason,
fyrrum dóms-
málaráðherra,
er önnur tveggja
bóka síðustu
vikna sem fjalla
um samtímaleg
efni; hin er eftir
Eirík Bergmann,
Sjálfstæð þjóð
kallast hún. Í
liðinni viku stóð
valið milli þess
hvor væri tekin
með í rúmið,
Björn eða Eiríkur.
Langur ritdómur
nafna míns Jóns
Hannibalssonar
um bók Eiríks hér
í blaðinu varð til
þess að ég sat
uppi með Björn.
Á forlagi Crymogeu
er komið út bókverk
eftir Hörpu Árnadótt-
ur, fallega innpakkað
í grátt umslag, saum-
uð bók sem minnir
um margt á vatnslita-
bækur Evrópuálfu
frá síðustu öldum.
Þar eru á andstæðum
síðum fígerðar vatns-
litamyndir Hörpu og
handskrifaðir textar
sem lýsa því hvernig sumarið sígur yfir landið í
Skagafirðinum þar sem Harpa dvaldi um mánaðar
skeið í skjóli Bæjarbænda á Höfðaströnd. Bókin er
fylgirit frummyndanna sem eru nú til sýnis á Lista-
safni Alþýðusambands Íslands.
Gripurinn er fallegur, vatnsliturinn gefur einskær-
an svip af höfuðlitum blóma, himins, grasa og fífu,
eggja og litbrigða, um leið og listakonan skráir upp-
lifun sína í blöndu texta sem eru í senn dagbók og
ljóðrænar stemningar. Textinn er þýddur á ensku í
prenttextum í bókarlok. Þetta er fagurfræðilega kór-
réttur gripur, fíngert útlit samsamar sér vel í efninu,
fágað, snoturt, smágert.
Lesandinn skynjar um leið endimörk náttúrutil-
beiðslunnar eins og hún hefur verið ástunduð í ís-
lenskri lýrik, hvernig pastoralinn, sveitasælukveð-
skapur hefur lagt ljóðheiminn hér undir sig þar sem
afkvæmi túndrunnar eru lofuð í sínu veikburða lífi
skamman sumartímann. En verkið samsamar sér
vel og er fallega unnið í þaula.
Crymogea hefur á skömmum tíma markað sér
bás í íslenskri bókaútgáfu. Verk eins og þetta ætti
í raun að vera númerað sem „multiple“ listaverk í
fáeinum eintökum. Önnur verk útgáfunnar eru öll
sama markinu brennd; falleg bókverk í listageir-
anum þar sem bókin verður sjónrænn gripur um-
fram annað. En öll eru þau átakalítil og brjóta engin
form. Á sama tíma og því er fagnað að slík bókaút-
gáfa skuli þrífast hér á landi verður lesandinn þess
áskynja að hér er lokað á stríðið, átökin í samtím-
anum, boðið upp á skjól fyrir hávaða og átökum.
Listin verður í því samhengi augnayndi, heimur
sem er sér og læst ekki vita af hinu sem er allt um
kring: í þennan heim sumarsins kemur ekki akandi
umferð, skýjahnoðrar skera ekki rafmagnslínur eða
rák þotunnar um heiðan himin. -pbb
Önnur prentun á met-
sölubókinni Tíu árum
yngri á tíu vikum, eftir
Þorbjörgu Hafsteins-
dóttur, er komin í
verslanir og rauk beint í
annað sæti metsölulista
Eymundssonar.
2. prentun komin
rosabaugur yfir
íslandi
Björn Bjarnason
Bókafélagið Ugla,
432 bls. 2011.
Mögnuð bók um
víðförula sjóræningja.
júní
Harpa Árnadóttir
Crymogea, 168 bls. 2011.
Harpa Árnadóttir
Fangar í bók sinni
sumarið í Skagafirði.
www.noatun.is
www.noatun.is
Pantaðu veisluna þína á
eða í næstu Nóatúns verslun
Grillveislur
1299
á mann
vERÐ FRá
mEÐ mEÐl
æti
Grísahnakkasneiðar
Lambalærissneiðar
Kjúklingabringur
Lambafille
Þín samsetning
Grillveislur Nóatúns
Pablo Neruda fékk
Nóbelinn 1971.
Gripurinn
er fallegur,
vatnsliturinn
gefur ein-
skæran svip
af höfuð-
litum blóma,
himins, grasa
og fífu, eggja
og litbrigða.
Björn Bjarnason
Fægir í bók sinni þá
söguskoðun sem hann
taldi rétta þá og telur
rétta nú. Hann sér
ekkert í nýju ljósi.