Prentarinn - 01.04.1994, Page 4
Ögnanir og möguleikar
í framtíðinni
Gudbrandur Magnússon, Prenttæknistofnun
Miklar breytingar eru
framundan í prentiðn-
aöi, en alls ekki fyrir-
séð hverjar þær veröa.
Mörg þeirra starfa,
sem unnin veröa árið
2000, eru alls ekki til f
dag og sú tækni sem á
eftir að bylta hug-
myndum okkar ekki
komin fram á sjónar-
sviöiö. Prátt fyrir
þennan fyrirvara er
ýmislegt í farvatninu,
sem gerir okkur kleift
að búa okkur undir
þær breytingar sem
framundan eru í
prentiðnaöi.
Margir af helsfu sérfræðingum prentiðnaðar Ameríku og Evrópu hittust á Agfa
ráðstefnunni í Boston til að ræða um framtíð prentiðnaðar. Svipmynd frá sýn-
ingarsvæðinu.
Starfsfólk í prentiðnaði ætti að
vera orðið því vant að glíma við
breytingar, við breyttum úr hæðar-
prenti í offset, úr blýsetningu í
pappírsumbrot og aftur í tölvu-
umbrot. Þessar breytingar getum
við tímasett nákvæmlega, en það
sem nú blasir við er allt annars
eðlis. Framundan er ekki bara ein
breytingin enn, heldur röð breyt-
inga, sem munu kollvarpa hug-
myndum okkar. Við þurfum jafn-
vel að endurskoða hugmyndir
okkar um það í hvaða starfsgrein
\’ið verðum staddir eftir 10 ár, það
er ekki víst að við köllum það
prentiðnað. Við megum ekki
gleyma því h\'ersu mikið hefur
gerst á síðustu 10 árum; fyrir 10
árum var t.d. Macintosh tölvan
rétt nýkomin fram á sjónarsviðið.
Breytingar næstu 10 ára munu ger-
ast helmingi hraðar að minnsta
kosti.
Hefðbundinn prentiðnaður mun
skreppa saman á næstu árum, um
það virtust allir helstu sérfræðing-
ar á Agfa tæknisýningunni í
Boston 31. okt. - 2. nóv. sl. sam-
mála. í tengslum við sýninguna
voru fjölmargar ráðstefnur þar
sem helstu sérfræðingar Ameríku
og Evrópu fluttu fyrirlestra og
spáðu í spil prentiðnaðarins.
Almenn kunnátta
Einu er hægt að slá föstu hvað
varðar framtíðarstörf í prentiðn-
aði. Þau verða öll með einum eða
öðrum hætti tengd tölvunotkun.
Þeir sem ekki kunna með tölvur að
fara verða undir í baráttunni. Þetta
á við um allar greinar prentiðnað-
ar, prentsmíð, prentun og vélabók-
band. Dr. Arnold Spinner hjá
prentmiðlunardeild New York há-
skóla sagði að mikilvægast væri að
starfsfólk prentiðnaðar í framtíð-
inni byggi yfir hæfileikum til að
komast af í gjörningaveðri brevt-
inga. Nefndi hann þar fyrst og
fremst samskiptahæfileika, hóp-
vinnufærni og tækniþekkingu.
Þetta þrennt þyrfti að haldast í
hendur. Þetta vakti athygli mína
sérstaklega vegna þeirrar áherslu
sem lögð er á hópvinnu í nýju iðn-
námskerfi prentiðnaðarins. Þá
kom það fram í máli margra, að
hindrun fyrirtækja og iðnaðarins í
heild fælist ekki í takmörkunum
tækninnar, heldur viðhorfum og
skipulagi.
Menntun starfsfólks var það
sem margir fyrirlesarar lögðu
áherslu á. Það væri ekki nóg að
kaupa vélar ef ekki væri jafnframt
fjárfest í þekkingu, þannig að
menn gætu notað vélamar og selt
verkefnin. Þetta fékk sérstakt mik-
ilvægi vegna þess að fyrirlesarar
virtust almennt sammála um það,
að kostnaður við prentverk ætti
eftir að hækka á næstunni og þar
með yrði samkeppnin við aðra
miðla harðari. Ástæðan er hærra
verð á pappír og dýrari prentvélar
og styttri afskriftartími þeirra.
Jafnframt spilar þarna inn í, að
kostnaður við framleiðslu tölvu-
miðla er hlutfallslega minni en
prentmiðla og fer lækkandi.
Útvíkkun útgáfuidnaðar
Fyrirtækjum, sem fyrir nokkrum
árum sérhæfðu sig í litgreiningum
og filmuvinnu, fer hratt fækkandi.
Þekking fagmanna á þessu sviði
verður æ minna virði vegna þess
að hún er forritanleg, mynd-
vinnslu- og litstýringarforrit hafa
tekið við þ\’í sem fjöldi manna
áður hafði að atvinnu sinni. Því er
spáð, að allt að 70% af allri prent-
smíðavinnu færist á næstu árum
til viðskiptavina: auglýsingastofa
og útgáfufyrirtækja. Það mætti því
lýsa þróuninni þannig, að útgáfu-
iðnaður sé að \'íkka út á sama tíma
og hefðbundinn prentiðnaður
skreppur saman.
Fvrirlesarar á Agfa ráðstefnunni
voru almennt sammála urn að
prentsmíðin yrði að mestu utan
prentsmiðju\’eggja. Möguleikar
þeirra prentsmiða, sem eftir yrðu,
fælust í ráðgjöf og aðstoð við við-
skiptavini varðandi útlit og tækni-
legan frágang. Til þess að geta
stundað slíka ráðgjöf þurfa þeir að
sjálfsögðu að hafa til að bera af-
burða kunnáttu á tölvuvinnunni.
Þeir þurfa ekki síður að kunna þá
list að miðla af kunnáttu sinni -
vera þjónustuliprir og þægilegir í
samskiptum við fólk.
Hingað til hefur enska orðið
„pre-press" („fyrir prentun") lýst
þeirri vinnu sem fram fer áður en
verk er prentað og þetta höfum
við kallað prentsmíð. Nú er nýtt
4
PREUTARINN 4,'94