Prentarinn - 01.04.1994, Blaðsíða 12
Kristbjörg Hermannsdóttir;
bókbindari
„Mér fannst allt við þetta nám-
skeið gott. Þarna voru ótalmargir
hlutir sem voru nýir fyrir mér, þó
ég hafi útskrifast sem bókbindari í
vor. Svona námskeið eykur sjálfstraustíð og mað-
ur verður tilbúinn að takast á við ný verkefni. Eg
myndi hiklaust ráðleggja öðrum að fara á svona
námskeið og fer sjálf ef framhald verður á þessu.
Það eina sem mér fannst slæmt var að ég var eini
kvenmaðurinn á þessu námskeiði. Þær hefðu mátt
vera fleiri, en ég þakka guði fyrir að Bjarni var
með, þó ég eigi náttúrlega að þakka Bjama."
Bjarni Ingólfsson, bókbindari
„Þetta er fyrsta námskeið sem ég
fer á um bókband og er á vitrænu
plani. Það er greinilegt að Þor-
steinn hefur lagt á sig mikla vinnu
við undirbúning þessa námskeiðs.
Önnur námskeið hjá Prenttæknistofnun hafa ekki
vakið eins áhuga minn og þetta. Það er í raun
ótrúlegt hve margir ónýttir möguleikar em í broti
og brotvélum. Einnig lærði ég mikið á því að núll-
stilla brotvélar, það hefur alveg vantað hér á landi
fram að þessu."
Þorgeir Baldursson, forstjóri
„Ég hvet mitt fólk til að tileinka sér
þá fjölbreyttu möguleika sem eru í
broti og bæta þannig við þekkingu
sína. Möguleikar á námi í bók-
bandi hafa ekki verið margir,
kannski fyrst og fremst vegna þess að þegar boðið
er uppá námskeið fyrir bókband hafa menn ekki
nýtt sér það. Það er gagnlegt að vita og kunna
meira en það sem maður notar dags daglega og
þannig taka þátt í framtíðarsamkeppni sem bygg-
ist á fjölhæfu starfsfólki."
Þór Ingi Erlingsson,
umsjón prentverks
„Þetta var þarft og gott námskeið.
Og þó ég sé búinn að vera 35 ár í
faginu og skipuleggja verk fyrir
prentun hef ég aldei spáð í hvemig
brotvélar vinna. Ég lærði ný brot sem ég þekkti
ekki og ég hafði t.d. ekki hugmynd um að hægt
væri að skera pappírinn um leið og hann er brot-
inn. Auk þess var farið í gegnum allt í sambandi
við bókband svo þetta var fín upprifjun. Og þó að
maður hafi lært að hluti á að gera svona og svona,
getur verið gott að vita af hverju."
Ásta Lorange,
umsjón prentverks
„Þetta var alveg nauðsynlegt nám-
skeið. Ég lærði um marga mögu-
leika í broti sem ég vissi ekki af og
margt af því sem ég lærði hef ég
notað síðan. Þetta námskeið fær mann til að hugsa
lengra. Nú hugsa ég þegar ég er að skipuleggja
prentverk hvemig hægt er að nýta vélar betur en
gert er í dag."
Tölvukrókur FBM og Prenttæknistofnunar
Sú nýbreytni var tekin upp í haust að hafa sérstakan
leiðbeinanda í Tölvukróknum á miðvikudagskvöldum
og hefur það mælst vel fyrir. Margir hafa hagnýtt sér þá
kennslu undir handleiðslu Rafns Árnasonar.
Þessa skemmlilegu mynd sendi Stefán Olafsson útlitshönn-
uður á DV okkur. Hún er frá kveðjusamsæti sem samstarfs-
menn Geirs Þórðarsonar á Frjálsri fjölmiðlun héidu honum
síðasta vinnudag hans í bókbandinu. Geir er sá bókbindari í
landinu sem hefur lengstan starfsaldur, 54 ár. Hann byrjaði
14 ára að vinna í ísafoldarprentsmiðju. Hann starfaði síðan
hjá Hilmi og Frjálsri fjölmiðlun. Þess má til gamans geta,
að ef Geir hefði unnið nokkra mánuði í viðbót hefði hann
endað í vinnu hjá ísafoldarprentsmiðju þarsem hann byrj-
aði, því eins og menn vita keypti Frjáls fjölmiðlun ísafoldar-
prentsmiðju fyrir skömmu.
Útskrift nýsveina
I nóvember sl. var nýsvein-
um í prentsmíð, prentun og
bókbandi afhent sveinsbréf
í félagsheimili FBM. Alls
luku 18 sveinsprófi, 11 í
prentsmíð, 5 í prentun og 2 í
bókbandi.
F.v. MatthíasB. Matthíasson,
Þorsteinn Sigurmundsson,
Kjartan Örn Steindórsson,
Kristbjörg Hermannsdóttir og
Elías B. Ómarsson.
I
J
12
PRENTARINN 4/94