Prentarinn - 01.04.1994, Page 14
Raunlitaprentun að
Karl Emil Gunnarsson, Prenttæknistofnun
■ ■ ■ ■■■
Gífurlegar breytirtgar hafa ord-
iö á tækni og virtnubrögðum í
prentsmíö undanfarinn áratug
- svo miklar, að kalla má bylt-
ingu. Ekki er ætlunin að tíunda
þessa byltingu frekar hér, svo
mikið hefur verið um hana
fjallað, að það væri að bera í
bakkafullan lækinn. Aftur á
móti hefur öllu minna verið að
gerast í prentsalnum á sama
tíma. Prentaðferðir eru mestan
part enn þær sömu og þær
voru á 7. áratugnum vegna
þess, að takmarkanir fjögurra
lita prentunar hafa ekkert
breyst. En nú eru teikn á lofti
um breytingar íprentsalnum
og þær kallast raunlitaprentun
(á ensku „hi-fi colour") -
prentun með sex eða sjö lit-
um, sem gefur dýpri, líflegri
og sannari liti en áður hefur
verið mögulegt að prenta með
staðallitunum fjórum.
14 mmmNm/94
Hingað til hefur fjögurra lita prentun snúist um
að leysa áratuga gömul vandamál: Að losna við
móra, fá litina fjóra til að falla saman og að ná
fram þeim litum, sem viðskiptavinurinn biður
um. Reyndar hefur tölvubylting síðustu ára í
prentsmíðinni að mörgu leyti undirstrikað tak-
markanir fjögurra lita prentunar enn frekar.
Með háþróuðum forritum er leikur einn að
gera ýmislegt á tölvuskjá, sem síðan er ekki
vinnandi vegur að prenta með fjórum litum.
Framsýnir og framsæknir menn þóttust sjá,
að við svo búið mætti ekki standa. Tveir frum-
herjar, Mills Davis, prentari og forstjóri Davis
Inc., og Don Carli, hugbúnaðar- og tæknisér-
fræðingur og forstjóri Nima Hunter Inc., riðu á
vaðið og buðu fyrirtækjum í prentiðnaði og
framleiðendum búnaðar til samstarfs um þró-
un tækninýjunga, „til að gera prentun líflegri,
skarpari og jafnframt auðveldari og hagkvæm-
ari". Samstarf þetta hefur verið kallað Davis
Inc. raunlitciverkefnið (á ensku „Davis Inc. HiFi
Color Project") og eru þátttakendur nú um eitt-
hundrað talsins. Hugmyndin um raunsanna lit-
prentun er á góðri leið með að verða að veru-
leika.
Hvað er raunlitaprentun?
Raunlitaprentun fékk töluvert rúm og athygli á
Agfa tæknisýningunni í Boston 31. okt. - 2. nóv.
sl. Mills Davis sýndi raunlitaprentun í sex lita
MAN Roland prentvél og haldnir voru fyrir-
lestrar, þar sem leitað var svara við þeirri
spurningu hvað raunlitaprentun væri. Svarið
veltur á því, hver verður fyrir svörum. Til
dæmis segja þeir Davis og Carli, sem var einn
fyrirlesara á sýningunni, að hugmyndin á bak
við verkefnið sé ekki einhver ein aðferð heldur
margir kostir - nokkrir þegar í notkun (t.d.
slembiröstun), aðrir sem enn eigi eftir að upp-
götva - til að ná þvílíkum gæðum í litprentun,
að hefðbundnar aðferðir eigi sér ekki viðreisnar
von.
Prentað var í sex litum í þessari hugbúnaðarstýrdu
MAN Roland vél.
í þessari umfjöllun verður yfirlýsingagleðinni
stillt öllu meira í hóf og raunlitaprentun skil-
greind þannig, að um sé að ræða prentun með
fleiri litum en staðallitunum fjórum, til að víkka
hið prentanlega litasvið og ná þannig litum og
litbrigðum, sem ekki fást, sé einungis notaður
cyan, magenta, gulur og svartur farfi. Viðbótar-
litimir em þá yfirleitt eitthvert afbrigði af frum-
litum ljóssins, rauðum, grænum og bláum.
Forsendurnar fjórar
Forsendumar fyrir því, að hægt sé að prenta
með fleiri litum en fjómm, em einkum fjórar.