Prentarinn - 01.04.1994, Side 17

Prentarinn - 01.04.1994, Side 17
Eru prentvillur guðfræði? Karl Emil Gunnarsson Fátt fer meira í taugarnar á íslendingum en villur í prentuðum texta. Lesendur líta gjarnan á hverja einustu villu sem svívirðilega móðgun, gott ef ekki tilræði við blessað móðurmálið og aðför að menningu og sjálfstæði þjóðarinnar. Beplace Flnd IDhat: |Format -r| | Speciol ▼ | giftur □ Match UJhole Ulord Only ^ Match Case Replace IDIth: kuœntur |Format -r| K o |Special t| [ Replace ] [ Replace Bll ^ [ Cancel Search: rsíi Varúð! Púki á sveimi! Til þess að firra þjóðina þeim sál- arkvölum, sem prentvillurnar geta valdið henni, eru oftast nær lesnar prófarkir af þeim textum, sem eiga að koma fyrir almenningssjónir. En prófarkalestur er vanþakklátt starf. Fáir taka eftir því, að texti sé vel prófarkalesinn og enn færri hrósa lesaranum fyrir góðan lest- ur. En þegar villur komast alla leið á prent, stendur ekki á aðfinnslun- um; prófarkalesarinn er orðinn holdgervingur þess óarga illdéflis, prentvillupúkans. Það er annars merkilegt, að prentvillumar skuli vera svo yfimáttúrlegar í augum landans að leita þurfi uppruna þeirra í guðfræðinni, þ.e.a.s. hjá ámm og illþýði andskotans. Þeir sem unnið hafa við próf- arkalestur á dagblöðum þekkja þessa viðkvæmni fyrir prentvill- um kannski öðmm betur, því að stundum er prentsvertan ekki þornuð á sneplinum, þegar hitna fer í kolunum. Lítið dæmi: Síminn á borði prófarkalesara hringir að morgni og hvöss rödd segir með nokkmm þjósti, jafnvel dálitlum sjálfbirgingi: „Hvernig er þetta eiginlega með blaðið? Vinna engir prófarkalesarar þarna eða hvað?" Og lesarinn svarar með þeirri auðmýkt, sem vanin er við ónot og aðfinnslur, og gmnar hvað nú sé í uppsiglingu: „Ja, ég á nú að heita prófarkalesari." „Átt að heita, já?" segir röddin hvassa og fylgir merkingarþmngin þögn. Síðan sigri hrósandi: „Hvers vegna stendur þá „Sjaldan launar kálfur ofbeldið" í leiðaranum? Þetta kalla ég ekki prófarkalestur." Ekki þarf lengur vitnanna við: Skemmdarverk lesarans [les: prentvillupúkans] á tungunni em afhjúpuð og verða ekki bætt. Lítt stoðar að benda á staðreyndir eins og þær, að mikið hafi verið að gera á kvöldvaktinni í gær og því ekki óeðlilegt að ein og ein villa slæðist fram hjá lesaranum, þar sem ein- ungis sé lesin ein próförk og það stundum í miklum flýti vegna þröngra tímamarka og eftirrekstr- ar. Dómur er fallinn og verður ekki áfrýjað: Aumur prófarkales- arinn er ekki starfi sínu vaxinn. Og ekki eykst hróður hans, þegar varaformaður stjórnmálaflokks verður að vafaformanni á við- kvæmu skeiði í samskiptum for- ystumanna flokksins. Eða þegar Drottinn er beðinn að gefa „dán- um ró en hinum líkin, sem lifa" í tilfinningaþmnginni minningar- grein. Eða þegar umdeildur stjórn- málamaður að nafni Eggert verður Ekkert í áberandi miðopnugrein. Vituð ér enn eða hvað? Margir standa í þeirri trú, að tölvutæknin hafi gert prófarkalest- ur óþarfan eða að minnsta kosti svo auðveldan, að hann sé orðinn hreinn barnaleikur. Ekki þurfi ann- að en keyra villulei ta rf orri t og á eftir sé textinn hreinn og kembdur. Prentuvillupúkinn hefur meira að segja verið heiðraður með því að nefna eitt slíkt forrit í höfuðið á honum. En því miður gildir það sama um villuleitarforritin og öll önnur verkfæri, að veldur hver á heldur. Ef rétt er farið að, eru þessi forrit hin þörfustu þing en þó ein- ungis sem hjálpartæki; enn sem komið er, geta þau ekki komið í staðinn fyrir glöggan prófarkales- ara. Önnur tölvutæknileg hjálpar- hella prófarkalesarans em leitar- og skiptaskipanir ritvinnslu- og umbrotsforrita. Þær geta flýtt mjög fyrir við leiðréttingu, þegar sama villan kemur oft fyrir í textanum. Þó verður að fara að öllu með gát, eins og dæmin sanna: Prófarkalesari á dagblaði einu var að leiðrétta minningargrein og ætlaði að setja orðið kvæntur alls staðar í stað giftur. Þetta fannst honum tilvalið verkefni fyrir leit- ar- og skiptaverkfæri tölvunnar og notaði það hamingjusamur og í góðri trú um leið og hann söng tækniframförum á tölvuöld lof og prís. En heldur varð sá söngur hjáróma morguninn eftir, þegar umsjónarmaður minningargreina teygði álkuna inn um dyragættina allt annað en hýr á svipinn og sagði: „Maður, sem á minningar- grein í blaðinu í morgun, var að hringja og vildi fá að vita, hvar við hefðum grafið upp orðið kvænturíkur..." Það er ekki á púkann logið. Kannski er særingamaður það eina sem dugar á hann. PRENTARINN 4/94 17

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.