Prentarinn - 01.04.1994, Side 18
Alþjóðaþing
Sæmundur Árnason
Alþjóðasamband
bókagerðarmanna
(IGF) hélt sitt 16.
alþjóðaþing í
Búdapest í
Ungverjalandi dagana
6. til 8. nóv. 1994.
Þingið sóttu 194
fulltrúarfrá 41 landi
(aðildað IGF
eiga 66 þjóðir). Þann
5. nóvember, þ.e.
daginn áður en
þinghaldið hófst, var
fundur með fasta-
nefndum IGFogEGF
(Evrópusambands
bókagerðarmanna)
þarsem farið varyfir
laga- og reglugerðar-
breytingar er fyrir
lágu en þær voru 50.
Einnig tilnefningar er
borist höfðu um
aðalritara, formann,
varaformenn og
fastanefndarmenn.
Síðar sama dag héldu norrænu fé-
lögin fund til að stilla saman
strengi og þar kom fram efi um að
Olav Boye hefði nægilegt fylgi til
stöðu aðalritara, en hann var til-
nefndur af NGU (Norræna bóka-
gerðarsambandinu). Frá sjónar-
miði norrænu félaganna var þetta
mjög árangursríkur dagur þar sem
NGU fékk mjög góðar undirtektir
við sín sjónarmið.
René van Tilborg settur formað-
ur IGF setti síðan þingið þann 6.
nóvember.
René kom víða við í ræðu sinni
en mest ræddi hann um það
ástand er skapaðist er þrír starfs-
menn urðu uppvísir að misferli
með fé sambandsins og sagði hann
að nánast allt starf skrifstofu hefði
farið í að greiða úr þeim flækjum.
En í mars 1994 var aðalritara, rit-
ara og bókhaldara sagt upp störf-
um og á fundi 22. apríl báðust þeir
Valter Carlsson formaður IGF og
varaformaður spænska málhóps-
ins lausnar vegna þess að þeir
töldu sig óbeint bera ábyrgð á
starfsmönnum og einnig voru þeir
ósáttir við þá ákvörðun fasta-
nefndar að þeir ættu skilið upp-
sagnarfrest, er var greiddur.
András Bársony formaður ung-
verska félagsins bauð síðan þing-
fulltrúa velkomna til Búdapest, en
ungverska félagið sem er 132 ára
var ábyrgt fyrir þinginu og sá um
alla skipulagningu.
Starfsskýrsla stjórnar
Það sem unnið hafði verið eftir frá
ársfundi í London 1991 og lá fyrir í
skýrslum gaf ekki tilefni til mikilla
umræðna. Aðallega var spurt út í
það sem gerðist á skrifstofunni og
René sagði það reyndar flokkast
undir mistök að hafa ekki komið
auga á það fyrr og geta gripið til
viðeigandi ráðstafana.
Það helsta um samstarf við önn-
ur félög og stofnanir var, að eftir
Þing alþjóðasambands bókagerðarmanna IGF.
þingið í Loítdon 1991 voru hafnar
viðræður við Intergraf og Eurograf
(samtök atvinnurekenda) um að
vinna að sameiginlegum grunn-
samningi m.a. vegna alþjóðafyrir-
tækja. Þessar viðræður urðu nán-
ast árangurslausar, þar sem nánast
enginn áhugi var meðal atvinnu-
rekenda. Þó sagði René ekki útséð
um niðurstöðu ef horft væri til
Evrópusambandsins, vegna
margra ákvæða sem bundin eru
félagslegum rétti innan ESB og
eiga eftir að koma betur í ljós
(Maastricht).
Skýrsla fastanefndar
Skýrslan fjallaði eingöngu um fjár-
mál samtakanna og þar kemur
fram að á fyrsta fundi í maí 1992
var nefndin ósátt við ýmislegt í
skrifstofuhaldi, m.a. vegna þess að
svo virtist að hver sem væri gæti
skrifað út ávísanir og að ekki væri
ávallt leitað hagstæðustu tilboða,
einnig voru gerðar athugasemdir
vegna fundakostnaðar. Fram kem-
ur í skýrslunni að ítrekað hafi ver-
ið óskað eftir fundi með starfs-
mönnum, en illa gengið að fá þá
alla á sama fund. Annar fundur
nefndarinnar var í apríl 1993. Þá
var farið ýtarlega yfir fjármál sam-
takanna, varpað fram ýmsum
spurningum og óskað svara. A
fundi fastanefndar í byrjun þessa
árs komu fram upplýsingar er
leiddu til þess að þrír starfsmenn
voru látnir hætta, en þá lá ljóst fyr-
ir að þeir höfðu dregið sér fé m.a.
með skattsvikum, tvöföldum, jafn-
vel þreföldum greiðslum vegna
flugmiða, fæðis- og hótelkostnaðar
auk risnu.
Norrænar tillögur
NGU lagði fram ýtarlegar tillögur
um breytingar á lögum IGF, þeim
var öllum vísað til stjórnar og
fastanefndar til umsagnar og
verða teknar til afgreiðslu á næsta
þingi. NGU lagði mikla áherslu á
að skipuð yrði þriggja manna eftir-
litsnefnd sem hefði fullt umboð til
að yfirfara fjármál og bókhald IGF
og fylgjast með skrifstofuhaldi á
hverjum tíma og að nefndarmenn
sætu ekki í öðrum nefndum. Eftir
miklar umræður varð niðurstaðan
sú að í nefndina kæmi einn fulltrúi
er ekki ætti sæti í fastanefnd, þ.e.
Ingve Eriksson frá Svíþjóð, en hin-
18
PREHTARim 4/94