Prentarinn - 01.12.1995, Síða 8
d Qe(E)=Le(E) dA ■ Cos • £
R
Sölvi Ólafsson
Prenttæknistofnun
gekkst fyrir enn einni
nýjung í námskeiða-
haldi fyrir bókagerð-
armenn í nóvember
síðastliðnum. Par var
um að ræða námskeið
íljóstækni.
Námskeiðið er haldið
vegna þess að við
erum að ganga inní
tíma þar sem þekking
á Ijósi og litum skiptir
enn meira máli en
áður, m.a. vegna
marglitaprentunar,
aukinnar prentunar
milli landa og fleira.
Prenttæknistofnun hefur áður
haldið mjög fræðandi námskeið
um lit og ljósfræði undir stjóm
Haraldar Blöndals, deildarstjóra í
Iðnskólanum. Það námskeið er
grunnur, sem allir bókagerðar-
menn sem vilja vita meira en það
allra nauðsynlegasta, verða að
kunna skil á. En nú var sem sagt
komið að því að fara í fræðin á bak
við ljósið, einskonar framhalds-
námskeið í lit og ljósfræði.
Námskeiðið var vel sótt, þátt-
takendur voru tíu, fyrst og fremst
frá Morgunblaðinu og Prentsmiðj-
unni Odda. Kennarar voru þeir
Gísli Jónsson, prófessor við verk-
fræðideild Háskóla Islands, og
Óðinn Þórarinsson stunda-
kennari, auk Haraldar Blöndals.
Litrótsskórinn, tilraun til að raða niður litum ílitrófinu ettir ákveðnu kerti.
Gísli Jónsson prótessor kynnir kúlu sem notuð er til Ijósmælinga.
8 PRENTARINN 4/95