Prentarinn - 01.12.1995, Page 17
Rafeindaprentuð dagblöð
slá sjónvarpið út
Hingað til hefur sjón-
varpið verið fyrst með
fréttirnar, en í fram-
tíðinni er talið að
dagblöð geti veitt
harða samkeppni,
nema þegar um
beinar sjónvarpsút-
sendingar er að ræða.
í þessari baráttu
munu dagblöðin nota
sömu tækni og
sjónvarp tii að flytja
upplýsingar og prenta
síðan í marglita-
prentvélum er byggja
á rafeindatækni.
Prentvélarnar verða
staðsettar þar sem
lesendur dagblaða eru
og þar sem fjöldi fólks
á leið um, við lestar-
stöðvar, strætisvagna-
stöðvar, í flughöfnum,
göngugötum, stór-
mörkuðum og fleiri
stöðum.
Svona hljómar uppskriftin að
verkefni fyrir dagblöö sem er í
þróun hjá hinu ísraelska fyrirtæki
Scitex og var kynnt á dagblaðaráð-
stefnu og sýningu IFRA (Alþjóða-
samtök blaðaútgefenda) í Amster-
dam fyrir skömmu.
Áætlun Yoav Lorch.
Með glænýtt eintak at' hinu breska
dagblaði The Daily Telegraph í
höndunum greindi stjórnandi
verkefnisins Israelinn Yoav Lorch
frá því sem til stendur. Rétt áður
hafði efni blaðsins verið sent í
gegnum ger\ ihnött frá ritstjórn
The Daily Telegraph í London
beint inní fjöllita rafeindaprentvél
á básnum hjá Scitex á sýningu
IFRA. Þar var blaðið prentað án
nokkurra vandræða.
Allt ferlið, frá því gervihnattar-
sendingin hófst á ritstjóminni í
London þar til fyrstu fjórlita eintök-
in lágu tilbúin í Amsterdam tóku
nokkrar mínútur, upplýsti Lorch og
greindi síðan frá áætlun sinni:
„Fyrir nokkrum árum yfirtók
Scitex japanskt rafeindaflutninga-
kerfi fyrir dagblaðasíður. Kerfi
þetta er meðal annars notað af
hinu ameríska dagblaði USA
Today þegar efni blaðsins þarf að
komast á 32 prentstaði blaðins um
öll Bandaríkin.
í tengslum við DRUPA 95 í maí
síðastliðnum fengum við aðgang
að nýrri rafeindatækni og fundum
út að með nýrri útgáfu af flutn-
ingakerfi USA Today gátum við
sent fulluppsettar dagblaðasíöurn-
ar beint inná rafeindaprentvélarn-
ar í gegnum gervihnetti. Næsta
verkefni var að finna notkun fyrir
þessa nýju tækni. Hvað með
Ólympíuleikana á næsta ári? sögð-
um við hvert við annað. Hvað með
að senda dagblaðasíður frá rit-
stjórnum dagblaða víðsvegar um
heim til rafeindaprentvéla í
Ólympíuþorpinu, svo gestir
Dagblöd Iramtidarinnarfnútimans?) verða sótt íprentvélarsem standa á miðju
verslunargólfi.
Ólympíuleikanna geti fengið nýjar
fréttir að heiman?
Tilraunir í Bankok og Hong Kong
Við höfum gefið verkefninu nafnið
PressPoint og fengum leyfi Atlanta
Ólympíunefndarinnar til að gera
þessa tilraun. Þegar við fórum að
ræða við fulltrúa dagblaðanna
kom okkur mjög á óvart, þegar í
ljós kom að ritstjórnir blaðanna
höfðu meiri áhuga á að fá tilbúnar
síður frá fréttariturum sínum í
Ólympíuþorpinu fullgerðar heim
til hinna ýmsu ritstjórna, frekar en
að þeir sendu síður til Atlanta.
Við erum nú að prufa
PressPoint-verkefnið í Evrópu og
Asíu. Frá Evrópu sendast dag-
blaðasíður til rafeindaprentvéla í
Bankok og Hong Kong, þar sem
fólk getur keypt ný rafeindaprent-
uð dagblöð fyrir hálfan til einn
dal, um það bil 24 tímum áður en
venjuleg dagblöð koma með flugi
frá Evrópu.
Með tækninni getur prentunin
allt í einu keppt við sjónvarp í bar-
áttunni um nýjustu fréttir, ef ekki
er um að ræða beinar útsendingar.
PressPoint gæti orðið stærsta
tækninýjung í sögu prenttækninn-
ar," segir Yoav Lorch.
Dagblödin á tánum
Menntunarfulltrúi Grafisk For-
bunds, Otto Pedersen, var á IFRA
ráðstefnunni í Amsterdam. Hann
hafði eftirfarandi um PressPoint
verkefnið að segja:
„Maður verður einu sinni enn að
viðurkenna að hugtök eins og tími
og staður verða meiningarlaus,
þegar hægt er að flytja upplýsingar
á milli tveggja punkta á svo til eng-
um tíma. Ög það er heillandi þegar
fjarlægðin á milli þessara punkta
er tveir heimshlutar.
Þessir miklu möguleikar raf-
eindatækninnar hafa vakið dag-
blöðin af þyrnirósarsvefni og það
er aðdáunarvert hvernig dagblöð
reyna að tengja saman prentgripi
og rafeindaþjónustu af einu eða
öðru tagi. Menn hafa séð nauðsyn
þess að vera með í þessari þróun.
Fyrir mig er ekki nokkur vafi á
því að dagblöðin verða áfram til
staöar í fjölmiðlaflórunni, sem bet-
ur fer.
PressPoint-verkefnið verður til
þess að brjóta niður hefðbundnar
hugmyndir um dagblaðagerð og
er enn ein áhugaverða nýjungin í
þeirri marglitu mynd sem fjölmiðl-
un er."
Þýtt itr Dansk Gritfin nóv. 1995.
PRENTARINN 4/95 17