Prentarinn - 01.01.1998, Qupperneq 3

Prentarinn - 01.01.1998, Qupperneq 3
LEIÐARI SÆMUNDUR ÁRNASON Vinnuumhverfi Vinnuvemd er eitt af þeim málum sem við starfsfóik í prentiðnaði þurfum að vera mjög meðvituð um, bæði ytri og innri umhverfisvemd. Innra umhverfi er vinnu- staðurinn, loftræsting, lýsing, hávaði og meðferð hættulegra efna og hvemig við vinnum að því að skipta út hættulegum efnum fyrir hættuminni. Eitt af því sem gert hefur verið er átak í að minnka notkun leysiefna við þvott á vélum og taka í notkun jurtahreinsa. Prentiðnaðurinn er hluti þeirra starfsgreina sem nota mikið af efnum. A Norðurlöndum höfum við hin síðari ár litið notkun hættulegra efna alvarlegum augum og mælt með notkun umhverfisvænna efna. Eitt dæmi um þetta er „Subsprintprojektet". Markmið verkefnisins var að innleiða jurta- olíur við hreinsun véla í stað leysiefna. I verkefninu tóku flest félögin í Nordisk Grafisk Union þátt og það hefur gengið framar öllum vonum. I dag er áætlað að um eða yfir 55% prentvéla hér á landi séu hreinsaðar með jurtahreinsum. En betur má ef duga skal, halda þarf áfram áróðri fyrir jurtahreinsum og stefna að útrýmingu leysiefna úr vinnuumhverfi prentara. Jákvætt átak hefur verið unnið í því að vinna efni úr skolvatni frá framköllunar- vélum og einnig olíuúrgangi frá prentsmiðj- um. Hafa nokkrar prentsmiðjur lagt í mikinn kostnað við að koma þeim málum í viðun- andi horf. Koma þarf algjörlega í veg fyrir að skolvatn berist í niðurföll. Þama getur innri umhverfisvemd unnið þarft verk í ytri umhverfisvemd, þ.e. að spilliefni berist ekki út í náttúmna. Því hafa félögin sem starfa innan NGU gert með sér starfsáætlun til nokkurra ára er gengur undir nafninu Agenda 21 og miðar að því að dreifa stað- reyndum og þekkingu um vinnuvemd og þörfinni fyrir að þróa staðbundnar starfsáætl- anir. f gegnum sambönd NGU bæði á lands- vísu og alþjóðlega getum við haft áhrif á þróunina varðandi lög- og samningsgerðir sem hafa að markmiði að vemda umhverfið. Einnig gætum við þróað sameiginlega stefnu í þessum málum til gagns fyrir aðildarfélög innan NGU. Dæmigert fyrir prentiðnaðinn eru hinar mörgu starfsgreinar. Honum fylgir notkun margra ólíkra efna. Svo er einnig um að ræða losun í andrúmsloft og vatn. Aðrar aðferðir hafa jafnframt þróast og orðið al- mennari svo sem rafræn myndmeðhöndlun og tölvustýrð prentformagerð auk stafrænnar tækni (digitalteknik) við prentun. Vinna ber að því að umhverfisvæn efni komi í stað hættulegra efna. Vinna skal að sparneytinni tækni við framleiðslu og framleiðsluaðferðir sem hafa að markmiði að draga úr magni þess sem er umfram, nota eins lítið og mögulegt er af hráefni, minnka losun í loft og vatn og nota minni orku. Sparneytin tækni er umhverfis- væn, þungamiðja hennar er: • Góð þekking á efnanotkun (minni úrgangur og losun) • Notkun umhverfisvænna efna • Rafræn myndgerð (losun efna og silfurs minnkar - sparnaður) • Rafræn prentformagerð (spamaður á hráefnum og minni losun skaðlegra efna) • Ný tækni fyrir hreinsun og endurvinnslu efna ásamt virkri flokkun úrgangs og endurvinnslu prentlita og annars efnis (sparar peninga og dregur úr losun hættulegra efna) • Endurvinna silfrið, láta það ekki fara til spillis (sparar peninga og dregur úr losun hættulegra efna). Sjá um hreinsun og reglubundið eftirlit á loftræstibúnaði. Jákvæð áhrif fyrir starfsfólk: • Minni efnanotkun. • Áhættan vegna slysa og atvinnusjúkdóma minnkar. • Vinnuvemdin eykst. • Líðan á vinnustaðnum verður betri. • Umhverfið á vinnustaðnum batnar. • Verkafólk fær kennslu og tilsögn í að nýta sparneytnari tækni. • Áhrif fyrirtækisins á ytra umhverfið batnar verulega. Vemdun umhverfisins er ekkert einkamál hvers og eins. Umhverfið er sameign og verður að vernda með alþjóðlegum reglum. Við í verkalýðshreyfingunni höfum bæði hefð og reynslu af margra ára starfi við að betrumbæta vinnuumhverfið. Því er mik- ilvægt að við hvetjum fyrirtækin og sveitar- félögin til að vemda ytra umhverfið. Með þetta að markmiði ættum við sem störfum í prentiðnaði að geta gert það sem í okkar valdi stendur til að bæta starfsum- hverfi okkar. ■ prentnrinn ■ MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA Ritnefnd Prentarans: Bjargey G. Gísladóttir, ritstjóri og ábyrgðarmaður. Margrét Friðriksdóttir Ólafur Örn Jónsson Pétur Ágústsson Stefán Ólafsson Sævar Hólm Pétursson Fréttaskot og annað efni er vel þegið og eins óskir og ábendingar lesenda til ritnefndar. Leturgerðir í Prentaranum eru: Universe, Times o.fl. Blaðið er prentað á mattan 135 g Ikonofix. Útlit og prentvinnsla: Prentþjónustan ehf • Gústa Prentun og frágangur: Grafík ehf. Forsíða Prentarans er af skreytingu sem unnin er af Svani Jóhannessyni. Tæknin heitir marmorering og er aðallega notuð til að skreyta pappír í bókbandi. Þetta er mjög gömul og þekkt aðferð og m.a. er notaður sérstakur sjávargróður við vinnsluna. PRENTARINN ■ 3

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.