Prentarinn - 01.01.1998, Síða 4
■ ■■ FELAGSSTARF
/
Isumar útskrifaðist fyrsti hópur sveina í bókagerðargreinum sem
hóf nám eftir breyttu námsfyrirkomulagi árið 1993. Það sem
gerði þessa útskrift öðruvísi var að hópurinn útskrifaðist allur á
sama tíma. Þ.e. samkv. fyrirkomulagi náms-
ins er gert ráð fyrir að náminu ljúki
með sveinsprófi í beinu framhaldi af
lokaönn í skóla.
I tilefni af þvf var ákveðið að
standa að veglegri útskriftar-
veislu í september sl. sem
FBM stóð að ásamt Samtökum
iðnaðarins. Til veislunnar
var boðið nýsveinum, leið-
beinendum, kennurum úr
Iðnskólanum o.fl. ásamt því að
sveinunum var boðið að taka með
sér gest. U.þ.b. 50 manns mættu til
þess að fagna þessum áfanga.
Félag bókagerðarmanna veitti verðlaun fyrir besta árangur á
sveinsprófi. Þeir sem hlutu verðlaun voru eftirtaldir: Hermann Þór
Snorrason og Sigríður Hrönn Sigurðardóttir fyrir prentsmíð og
Sigurður Gunnarsson og Björgvin Pálsson fyrir prentun. ■
Þann 13. nóvember sl. stóð félagið fyrir menning-
arkvöldi í félagsheimilinu. Kvöldið var hið
skemmtilegasta með skemmtiatriðum á heimsmæli-
kvarða þar sem fram komu Guðmundur Ólafsson leikari,
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur og Jósep Gíslason prentsmiður og
hljómlistarmaður. Eitt skyggði þó á annars ágætt kvöld, mæting
var með minnsta nióti. ■
Eins og hefð er orðin fyrir hélt FBM jólakaffi fyrir eldri félags-
menn og maka þeirra þann 14. desember. Það þarf ekki að
spyrja að þátttökunni hjá þessum hóp sem fyllir félagsheimilið á
hverju ári. Einar Már Guðmundsson las upp úr bók sinni Fótspor á
himnum við mikla hrifningu viðstaddra og Jósep Gíslason töfraði
fram jólastemmninguna á píanóið. ■
Félagið hélt jólaball síðasta sunnudag í aðventu í félags-
heimilinu á Hverfisgötu. Eins og á síðasta jólaballi fylltu
félagsmenn húsið og skemmtu sér vel. Bömin tóku vel undir söng
og gleði jólasveinanna. ■
Netkynning fyrir konur
Kvennaráð FBM stóð fyrir Internet-kynningu fyrir konur á
haustdögum. Upphaflega var ætlunin að halda eina kynningu
þann 5. nóv. Kom hún í stað hefðbundins fundar í Kvennaráðinu.
sem eins og allir vita eru haldnir fyrsta miðvikudagskvöld
í hverjum mánuði. Er skemmst frá því að segja að
aðsóknin fór fram úr björtustu vonum, 32 konur
skráðu sig og urðum við í snarhasti að skipuleggja
aðra kynningu sem haldin var viku seinna. Þátt-
takendum bar saman um að þægilegt væri að hafa
tölvunámskeið sem eingöngu væru ætluð konum.
stjórnmálafræðinemi og
„netfíkill" tók að sér að leiða okkur í allan
sannleika um leyndardóma vefsins. ■
W <
\j?.
4 ■ PRENTARINN