Prentarinn - 01.01.1998, Blaðsíða 5

Prentarinn - 01.01.1998, Blaðsíða 5
TÆKN I Skjalaleikfimi Síðau í haust hefur Prent- tœknistofnun gefið Hina svörtu list og auglýs- ingar ípdfsniði út á Netinu (http://www. apple. is/prent/). Þessi skjöl hafa síðan verið send sem viðhengi við tölvupóst til starfsfólks í prentiðnaðinum. HJORTUR GUÐNASON Með þessari aðferð er hægt að gefa prentverk út í rafrænu formi hvort sem er fyrir Netið eða geisladisk um leið og það er prent- að. Þannig er auðvelt að setja heilu ritsöfnin eða vörulista á geisladisk. Prentfyrirtæki geta hæglega boð- ið þessa þjónustu án mikils tilkostnaðar. Þessi aðferð við skjala- vistun er ekki ný en er nú að hasla sér völl svo um munar. Framleið- endur forritsins kalla aðferðina mestu uppgötvun síðan Gutenberg fann upp lausaletrið. Ekki treysti ég mér til að dæma hvort sú fullyrðing er rétt en þessi vistunaraðferð er alltént harla snjöll. Það er orðið mjög algengt að skjöl - hvort sem um er að ræða eina síðu eða heilu bækumar - séu gefin út í pdf (Portable Document Format) sniði. Kosturinn við það er sá, að allir sem hafa Acrobet Reader í tölvunni sinni geta opnað skjölin, skoðað þau og prentað út á prentara. Acrobat Reader er hægt að nálgast ókeypis á Netinu á slóðinni http://www.adobe.com/acrobat. Til að búa til pdf skjöl þarf að hafa Acrobat Distiller en hann þarf að kaupa. Það verður þó æ algeng- ara að stærri forrit eins og FreeFIand, Illustrator og QuarkX- Press hafi pdf sem viðbætur svo að hægt er að vista beint úr þeim í pdf snið. Skjölin verða lítil svo fremi að í þeim sé ekki mikið af myndum og grafík og er því auðvelt að senda þau yfir netið. Sjá má fyrir sér að notkun pdf sniðs eigi eftir að aukast í prentsmiðjum þar sem auðvelt er að senda prófarkir til viðskiptavina sem geta þá skoðað próförkina í sinni tölvu eða prentað út hjá sér til frekari athugunar. Hægt er að koma því þannig fyrir að viðskiptavinur- inn sem les próförkina geti gert athugasemdir við skjalið með því að hengja við það „gula miða“ (sticky notes), athugasemdir í rafrænu formi, og sent síðan skjalið til baka. Einnig er hægt að útbúa tengla í skjalinu svo að notandinn geti smellt á vefsíðuslóðir og opnað med Acrobat þannig netvafra eins og Netscape og farið beint inn á Netið. Ennfremur er unnt að útbúa tengla sem kalla fram hljóð og rnyndir (QuickTime). Prenttæknistofnun hefur boðið upp á námskeið í Acrobat frá því á síðasta ári en það verður að játa að ekki hefur fólk slegist um aðgang að þeim. Það má þó búast við að menn fari að taka við sér nú, þegar svo algengt er orðið að skjöl séu gefin út í þessu sniði. Aðferðin er ekki flókin og stutt námskeið gerir fólk fullfært um að nota hana. Eg skora a alla sem koma nálægt útgáfu að skrá sig á námskeið í notkun Acrobat sem fyrst. Tæknin bíður ekki eftir neinum. ■ m t EAFSTJCEN ^)| Stangarhyl 1A 587 8890 lax: 567 8090 Virkni íoftræsikerfa er okkar fag • Stýrikerfi • Uppsetning • Töflusmíði • Viðgerðaþjónusta • Eftirlit • Stillingar • Raka- og hitamælingar • Sótthreinsun • Viðhaldssamningar • Loftmagnsmælingar PRENTARINN ■ 5

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.