Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 2

Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 2
Einar Guðmundur Guðgeirsson, fæddur 12. október 1919. Hóf nám í bók- bandi 1935 og tók sveinspróf 1941. Ein- ar varð félagi 5. októ- ber 1939. Einar starf- aði í Sveinabókband- inu og síðan í Guten- berg þar til hann lét af störfum sökum ald- urs hinn 27. ágúst 1993. Einar sat sem varamaður í trúnaðar- ráði BFÍ 1958 og 1960-61. Einar lést 7. apríl 1999. Jón Thorlacius, fæddur 1. júlí 1914. Hóf nám í setningu 1933 og tók sveinspróf 1940. Jón varð félagi 15. september 1937. Sat í stjórn Byggingarsam- vinnufélags prentara 1953-1955.í skemmtinefnd HIP 1947-1956 og félags- heimilanefnd 1956. Jón starfaði alla tíð í Félagsprentsmiðjunni eða þar til hann lét af störfum sökum ald- urs. Jón lést 14. júní 1999. Halldóra Svein- björnsdóttir, fædd 7. júní 1911. Halldóra gekk í félagið 7. maí 1931. Vann aðstoðar- störf í bókbandi í Isa- foldarprentsmiðju 1927-1932 og síðar í Félagsprentsmiðjunni 1932-1935 ogfrá 1957 þar til hún lét af störfum sökum ald- urs. Halldóra lést 15. apríl 1999. Erla Guðnadóttir, fædd 8. apríl 1935. Erla gekk í félagið 15. nóvember 1976. Vann aðstoðarstörf í Offset- prenti. Erla lést 19. júlí 1999. Steinþór Árnason, fæddur 24. maí 1938. Steinþór tók sveins- próf í setningu 5. júlí 1959. Hann varð fé- lagi 9. nóvember 1959. Steinþór starf- aði í Prentsmiðjunni Eddu 1955-1961 og 1972 -1982, ísafold 1970-1972, Hagprenti 1982-1993 og í Prent- smiðjunni Odda frá 1993. Steinþór var umsjónarmaður með orlofshúsum og or- lofslandi félagsins í Miðdal í nokkur sum- ur. Steinþór lést 24. júlí 1999. Vilhelm K. Jensen, fæddur 29. mars 1920. Vilhelm lauk námi í prentun í prentsmiðju Björns Jónssonar 1. ágúst 1940. Hann varð fé- lagi 11. nóvember 1940. Starfaði í POB og síðan í Skjaldborg til starfsloka. Vilhelm lést 1. ágúst 1999. Hafsteinn Guðmunds- son, fæddur 7. aprfl 1912, prentari, kenn- ari og bókaútgefandi í Þjóðsögu í Reykjavík. Námsferill: Prentun 1926-1932. Sveinspróf 28. janúar 1940. Meistararéttindi 11. september 1940. Var við nám í Fag- skolen for Boghaand- værk í Kaupmanna- höfn sumarið 1939. Hafsteinn starfaði í Prentsmiðju Guðjóns O. í Vestmannaeyjum 1926, ísafoldarprent- smiðju 1929-1942. Prentsmiðjustjóri í Hólum 1942-1966. Eigandi Prenthúss Hafsteins 1967-1973. Eigandi og fram- kvæmdastjóri Bóka- útgáfunnar Þjóðsögu 1954-1993. Félags- og trúnaðar- störf: Ritari hjá Félagi íslenskra prentsmiðju- eigenda 1947-1950, gjaldkeri 1952-1967. Formaður skóla- nefndar Prentskólans 1950-1980. Viðurkenningar: Sæmdur Fálkaorðu 17. júní 1976. Heiðursdoktor við HÍ 24.júní 1994. Hafsteinn arfleiddi FBM að öllum frum- eintökum af hönnun bókarinnar Prentlistin 500 ára. Hafsteinn lést 1. sept.1999. Ólafur B. Ólafsson, fæddur 7. nóvember 1908. Ólafur hóf nám í setningu í Guten- berg 1925 og lauk þar námi. Hann varð fé- lagi 10. apríl 1930. Ólafur starfaði í Gutenberg til 1943 og síðan frá 1955 þar til hann lét af störfum sökum aldurs. Ólafur lést 3. ágúst 1999. 2 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.