Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 3
Aukin
Hvers vegna leggjura við í
FBM svona mikla áherslu á
menntamálin í okkar iðngreinum?
er oft spurt. Einnig er sagt að ekki
sé til neins að vera að eyða mikl-
um fjármunum í nám sem æ færri
vilja leggja fyrir sig og óþarft sé
að læra iðngrein þar sem hægt sé
að fá næga vinnu í okkar starfs-
umhverfi án þess að leggja á sig
langt iðnnám.
Lykilatriði í því að við höldum
stöðu okkar á vinnumarkaði er
góð grunnmenntun og öflug end-
urmenntun, símenntun er það sem
gildir í nútímatækniþjóðfélagi.
Þess vegna stofnuðum við okkar
eigin endurmenntunarstofnun, ti!
að auðvelda okkur að takast á við
nýja tækni með námskeiðahaldi.
Ekki er síður nauðsynlegt að huga
að grunnmenntuninni í okkar iðn-
greinum til að þær dagi ekki uppi
með úrelt námsfyrirkomulag sem
stenst ekki þær kröfur er nútíma-
samfélag gerir til okkar senr iðn-
aðarmanna.
Prentiðnaðurinn er orðinn fjár-
frekari og jafnframt eykst fram-
leiðni allra starfsmanna. Tækni-
þróunin leiðir til að þörfin fyrir
starfsþjálfun og endurmenntun
eykst. Menntunin eykur á starfs-
öryggi og leiðir til meiri arðsemi.
Til þess að standast samkeppni er
nauðsynlegt að leita stöðugt auk-
innar menntunar. Prentiðnaðurinn
þarf á skipulegri starfsþjálfun og
endurmenntun að halda. Það er
þörf á markvissri fagmenntun um
prentiðnaðinn, tölvutækni og
prentferli, ennfremur um nýja
miðla og tækniþróun. Endur-
HÆFNI og
Leidari
ENDUR-
menntunin verður að gefa félags-
mönnum kost á að fylgjast með
tækninýjungum til að þeir haldi
sínum störfum þrátt fyrir
tækninýjungar. Þeir sem missa
vinnuna verða að eiga kost á
menntun í ný störf. Mikilvægt er
einnig hvar á að veita slíka þjálf-
un, en það er hægt í skólum eða á
vinnustað. Hvað varðar endur-
menntun er rétt að hún eigi sér
stað í sérstökum endurmenntunar-
stofnunum, það er forsenda þess
að í kennslunni séu teknar upp
síðustu nýjungar og að augum sé
beint til framtíðar.
Starfsgreinaráð í upplýsinga-
og fjölmiðlagreinum hefur sent
frá sér þær hugmyndir er það tel-
ur vænlegar til að koma til móts
við nýjar kröfur í grunnmenntun
og ekki síður að þær séu þannig
að ungt fólk fáist til starfa í okkar
iðngreinum, sem bjóða upp á
mikla starfsmöguleika.
I þessu blaði af Prentaranum
eru settar fram þær leiðir er við
teljum að séu vegvísar til framtíð-
ar.
Nokkrum sinnum hefur sú hug-
mynd komið upp að Prenttækni-
stofnun tæki upp meira samstarf
við aðrar endurmenntunarstofn-
anir, en án árangurs. Nokkur ár
eru síðan reynt var að stofna til
samstarfs við Menntafélag bygg-
ingariðnaðarins og Fræðsluráð
málmiðnaðarins en ekki var þá
hljómgrunnur þar á bæ fyrir sam-
starfí. Einnig hefur af og til verið
hugað að samstarfi við Rafiðnað-
arskólann m.a. með sameiginleg-
um tölvunámskeiðum, en til þessa
hefur ekki verið nægilega víð-
tækur samstarfsáhugi allra aðila.
A þessu er nú að verða nokkur
breyting, ákveðið hefur verið að
hefja viðræður við Rafiðnaðar-
skólann um þann möguleika að
vera með sameiginlegan Marg-
miðlunarskóla og Prenttækni-
stofnun hefur tölvunámskeið í
samvinnu við Menntafélag bygg-
ingariðnaðarins og Fræðsluráð
málmiðnaðarins. Öll rök segja
mér að þessi félög sem reka
öfluga endurmenntun og skóla
fyrir sína félagsmenn ættu að taka
höndum saman og vera með eina
sameiginlega endurmenntunar-
stofnun í stað þess að vera hvert í
sínu horni. Það yrði öllum okkar
félagsmönnum til hagsbóta.
Sept 99 sá.
PRENTARINN ■ 3
prentarinn
Ritnefnd Prentarans:
Georg Páll Skúlason,
ritstjóri og ábyrgðarmaður.
Jakob Viðar Guðmundsson,
Kristín Helgadóttir,
Sævar Hólm Pétursson,
Þorkell S. Hilmarsson.
Ábendingar og óskir
lesenda um efni í blaðið
eru vel þegnar.
Leturgerðir í
Prentaranum eru:
Helvítica Ultra Compress,
Stone, Times, Garamond o.fl
Blaðið er prentað á 135 g
Ikonofix silk.
Prentvinnsla:
Svansprent ehf.
Forsíðuna hannaði Ingunn
Anna Þráinsdóttir, prentsmið-
ur í Héraðsprenti. Forsíðan er
framlag hennar í forsíðusam-
keppni Prentarans.
Rauði grunnurinn undir öllu
saman er leðurbandið á nýju
prentun Sálmabókarinnar. Hönd-
in ofan á rauða grunninum er
hönd Ingunnar. Textinn um letur-
stærðir er skannaður úr glósubók
föður hennar úr Prentskólanum
frá árinu 1959 og textinn neðst á
síðunni er tilvitnun skrifuð af
henni, úr sömu glósubók.
Ingunn Anna stundar nú nám í
hönnun og listum í Halifax í
Kanada.