Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 10

Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 10
Bitna þJóðíÉlags- breytingar ó börnum? Aörar veigamiklar breytingar. Stóraukning varð á útivinnu mæðra ungra barna sem var árið 1960 um 16% en hefur aukist í yfir 80% eftir 1991, auk annarra breytinga í íslensku þjóðlífi eins og íbúafjölgunar á höfuðborgar- svæðinu, þ.e.a.s. fólk hefur flust úr sveitum til höfuðborgarinnar í miklum mæli á undanförnum árum. Fæðingum hjá konum á aldrinum 15-44 ára hefur fækkað úr 109 frá 1972 og niður í 77 eftir 1990. Svo virðist sem sumar af þessum breytingum krefjist auk- ins þjóðfélagslegs stuðnings fyrir foreldra, aukningar á forvörnum til handa börnum og unglingum og foreldrum þeirra til að fá rétti barna og unglinga fullnægt í þjóðfélaginu skv. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Brýnt er að stórauka bráða- þjónustu á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur, sem er stærsta bráðamóttaka fyrir börn og unglinga á landinu, við hvers kyns áföllum, ofbeldi, sjálfsvígstilraunum, áfengis-og fíkniefnamisnotkun og sköddun- um ásamt bráða-geðröskunum. Taka þarf til endurskoðunar öll lög og reglugerðir, einkum og sér í lagi heilbrigðisreglugerðir m.t.t. barna og unglinga, og sérstaklega að reglugerðum sé framfylgt, sem varða heilbrigði og þroska barna og unglinga. Börn eiga rétt á að fá rétta sjúkdómsgreiningu og meðferð við hæfi barna og ung- linga og vistast á sérhæfðum sjúkradeildum þar sem löggiltir sérfræðingar starfa en ekki ófaglært starfsfólk. Stórefla þarf kennslu og rannsóknir á börnum og unglingum og kennslustöður innan Háskóla Islands. Mörgum hefur fundist að um- burðarlyndi Íslendinga gagnvart slysum barna og áfengisneyslu unglinga hafi breyst í vanrækslu. Almennt virðist vera skortur á lögum, og að þeim sé framfylgt, sem kveða á um réttarstöðu barna og unglinga og foreldra þeirra. Koma þarf á fót barna- og ung- lingadómstólum sem geta stuðlað að breytingu á viðhorfum foreldra og almennings og fagfólks því börn eru framtíð þjóðarinnar. Islenskt þjóðfélag þarf að upp- ræta hvers kyns refsingu sem var eitt helsta agatæki í vitund manna á 18. öld til að ná áhrifum í upp- eldi barna. Umburðarlyndi og að- gerðarleysi og að bregðast ekki við þörfum barna og unglinga leiðir vanalega til vanrækslu og skaða. Ofbeldi gagnvart börnum og hina háu slysatíðni á Islandi virðist mega rekja fyrst og fremst til vanrækslu stjórnvalda, bæði á uppbyggingu á þjónustu og úr- ræðum til handa börnum. Er þjóðfélagið e.t.v. enn að refsa börnum líkt og á 18. öld? Helga Hannesdóttir flutti erindi sitt á Málþingi Jafnréttisráðs og Karlanefndar Jafnréttis- ráðs sem bar yfirskriftina „Atvinna og fjölskyldulíf vin- ir eða fjandmenn “ á Grand Hótel, Revkjavík, 25. mars 1999. Um reykingar ó vinnustöðum Hinn 15. júní 1999 tók gildi reglugerð um tóbaksvarnir á vinnustöðum, reglugerð nr. 88/1999, sem sett var 2. febrúar 1999. Reglugerðin er sett með stoð í lögum um tóbaksvarnir nr. 74/1984. Séu lög um tóbaksvarnir skoð- uð fela þau í sér víðtækar heim- ildir fyrir forráðamenn húsnæðis til að takmarka reykingar. Mark- mið reglugerðarinnar kemur fram í 1. gr. hennar og er að tryggja að starfsmenn sem ekki reykja verði ekki fyrir skaða og óþægindum af völdum tóbaksreyks á vinnustað og að veita fólki sem kemur á vinnustað vegna viðskipta eða þjónustu slíka vernd. Almennir vinnustaðir f þeim hluta af húsnæði stofn- ana, fyrirtækja og annarra þar sem almenningur leitar aðgangs vegna afgreiðslu eða þjónustu eru reykingar öllum óheimilar. Þetta á við um afgreiðslusvæði, forstof- ur, ganga, biðstofur, snyrtiher- bergi og hvers konar áhorfenda- svæði. f vinnurými eru tóbaksreyking- ar óheimilar. Þó má starfsmaður sem er einn um vinnurými reykja þegar hann er einn. Vinni fleiri saman mega þeir reykja séu þeir allir reykingamenn og samþykki hver og einn þessa tilhögun. Vinnurýmið má þó ekki verða reykingaafdrep fyrir vinnustað- inn. Reykingar eru óheimilar í kaffi- og matstofum. Bannað er einnig að reykja á fundum sem haldnir eru á vinnustaðnum. Heimilt er að hafa afdrep fyrir reykingar á vinnustað. Það skal vel loftræst og því þannig fyrir komið að tóbaksreykur berist ekki þaðan til annarra svæða á vinnustað. Atvinnurekanda er heimilt að takmarka reykingar starfsmanna í húsnæði og á lóð meira en að ofan getur og hefur heimild til að banna reykingar með öllu. Skólar Akvæði reglugerðarinnar banna alfarið reykingar í skólum. í gr. 2.1. sem fjallar uni reyk- ingar í grunnskólum, leikskól- um og hvers konar dagvistum barna nær bannið til húss og ióðar. Einnig eru reykingar bann- aðar í húsakynnum sem ætluð eru til félags-, íþrótta- og tómstunda- starfa barna og unglinga innan 18 ára. f gr. 2.2. sem fjallar um framhaldsskóla og sérskóla seg- ir að bannið nái til allra húsa- kynna og lóða á vegum skól- anna. Sjúkrastofnanir f lögum um tóbaksvarnir er tekið fram í 10. gr. að tóbaks- reykingar séu með öllu óheimilar á heilsugæslustöðvum, á lækna- stofum og öðrum stöðum þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta. Þetta á þó ekki við íbúðarherbergi vist- manna á hjúkmnar- og dvalar- heimilum en þar er þó skylt að gefa þeim sem ekki reykja kost á reyklausum íbúðarherbergjum. Þetta ákvæði kom inn í lögin 1996. í 2. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um skóla og heilbrigðis- stofnanir segir að reykingar séu bannaðar á hjúkrunar- og dvalar- heimilum. Nær bannið til allra húsakynna þeirra og skal ekki reykt á svölum og ekki í eða við anddyri. Vistmönnum er þó heimilt að reykja í herbergjum sínum og leyfa þar reykingar öðr- um en starfsmönnum. Ljóst er að reglugerð um tó- baksvarnir á vinnustöðum tak- markar vemlega heimildir starfs- fólks til reykinga í vinnunni. Reglugerðin verður að hafa stoð í lögunum og má ekki vera víðtæk- ari en lögin heimila. Hvort þessi mikla takmörkun fer út fyrir ákvæði laganna eða hvort lögin sjálf kunna að fara út fyrir ákvæði mannréttindaákvæða stjórnarskrár eða alþjóðasáttmála ætla ég mér ekki að fuilyrða um. Ljóst er þó að lítið er í lögunum að finna sem tryggir rétt reyk- ingafólks. Lára V. Júlíusdóttir hrl. 10 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.