Prentarinn - 01.09.1999, Page 11

Prentarinn - 01.09.1999, Page 11
Gróðursetning í trjálundinum okkar. austur, en allt kom fyrir ekki, við enduðum á Reykjavíkurflugvelli og þá fengu sumir sjokk því óramir um Grænland virtust vera að rætast, það var kallað út í vél; „Farþegar með flugi Fl-123 til Narsarsuuak eru vinsamlega beðnir um að ganga um borð um hlið 2“ Þá stóðu eigendurnir upp Svipmyndir úr fjölbreyttu starfi starfsmannafélagsins. og allir fylgdu á eftir. Þegar vélin var komin á loft bauð flugstjórinn okkur velkomin um borð og ferð- in til Akureyrar væri hafin. Eins og yfirmanna okkar er von og vísa var þetta virkilega grand og flott, gist var á Hótel KEA, flott- ustu búllunni í bænum og boðið var upp á 3ja rétta máltíð með öllu tilheyrandi og smakkaðist sérlega vel. Svo tjúttuðu allir langt fram eftir nóttu við undir- leik bandsins gríðarlega og sumir vom ekki enn farnir að sofa þegar heim var haldið. Öll vorum við sammála um að þessi ferð hefði verið vel heppnuð í alla staði, góður matur, góð stemning, gott fólk og gott fyrir- tæki. Fádæma áhugi er innan þessa fyrirtækis að setja niður tré og runna og þessa vegna fengum við úthlutað svæði á Nesjavöllum. Þar var rogast með tré, skít og annað ógeð sem fylgir þessari áráttu og nú standa þarna um það bii 50 tré og bera okkur vitni um græna fingur og stóran maga eftir grillveislu sem haldin var eftir þetta erftði. Fótbolti, golf og keila em okk- ur mjög hugleikin enda miklir hæftleikar sem búa í þessu frá- bæra starfsfólki. Við höfum tekið þátt í fótbolta- móti FBM og besti árangur okkar er þriðja sæti. Golfmót okkar, Hjá GuðjónÓ open, er haldið ár hvert í Sandgerði og þar er barist um titilinn „The Master of the Brown Jacket“ og vinningshafi ár hvert klæddur í brúnan jakka með mik- illi viðhöfn. Skorað var á okkur í keilu eitt sinn og var það félagsskapur sem nefnir sig Fílarnir og hafa aðsetur sitt í Bílanausti. Er skemmst frá því að segja að við sigruðum þessa félaga okkar enda nefndum við okkur Mýslurnar vitandi að fílar eru drulluhræddir við mýs. Keilulið okkar hefur keppt við fleiri fyrirtæki og er enn ósigrað. Árlega höfum við bjórkvöld sem haldið er í mars. Þar era mál rædd, um þau samið og síðan grátið inn á milli, allt auðvitað í gríni. I nóvember fyrirhugar starfs- mannafélagið árshátíð á Hótel Örk þar sem hellisbúarnir munu gista og hrella þá vistmenn á Heilsuhælinu sem ekki eru sofn- aðir. Auðvitað allt í gríni með rósa- víni. Stjórn Starfsmf. Saga prentsmiðjunnar Prentsmiðjan Hjá GuðjónÓ var stofnuð í maí 1992. Þrír fyrrver- andi starfsmenn GuðjónÓ keyptu þrotabúið og á þeirn árum sem liðin eru frá stofnun hennar hefur starfsemin eflst og blómstrað, og eru starfsmenn prentsmiðjunnar í dag um 20 talsins. Höfum við sett okkur það takmark frá upphafi að verða leiðandi sem vistvæn prent- smiðja og er stefna okkar sú að ekkert annað efni en vatn fari í niðurfall prentsalar okkar og að öllum þeim efnum og afgöngum sem hægt er að endurnýta sé safn- að saman til endurvinnslu. Því sem ekki nýtist til endurvinnslu er fargað á vistvænan hátt. Jurtaolía er notuð við hreinsun prentvéla og að sjálfsögðu notum við sem oftast vistvænan og 100% end- urunninn pappír. Á þessu ári var ákveðið að byggja við húsnæði okkar að Þverholti 13. Þessi bygging er rétt um 300m2 að stærð og svarar vax- andi þörf fyrir lagerpláss auk að- stöðu fyrir starfsfólk og fl. Félagsstarfsemi I nóvember 1996 ákvað stjórn Hjá GuðjónÓ að allir starfsmenn prentsmiðjunnar skyldu fara á skyndihjálparnámskeið. Mæltist þetta misjafnlega fyrir í fyrstu meðal starfsmanna, þar sem fólk þurfti m.a. að rífa sig upp snemma á laugardagsmorgni. En fljótlega breyttist viðhorf manna í botnlausa hamingju yfir því að læra hjartahnoð, blástursaðferð og að binda um sár. Síðan þetta nám- skeið var haldið fær fólk ekki frið ef það misstígur sig eða hóstar, þá er því umsvifalaust skellt á gólfið með fæturna upp í loftið (til að fá blóðstreymi til heilans). Lenti fólk hinsvegar í vandræð- um með Hafnfirðinginn, þar sem ekki var ljóst á hvomm endanum heilinn í honum var. Starfsmannafélag var fljótlega stofnað og er starfsemin mjög líf- leg og skemmtileg. Af því sem við höfum gert mætti helst nefna að farið var til Edinborgar og haldin þar árshátíð með endalausri gleði og ást. í nóvember 1997 hélt stjórn prentsmiðjunnar upp á það að fimm ár vom liðin frá því að þeir tóku við rekstri og stjóm fyrir- tækisins. Af því tilefni buðu þeir starfsfólki sínu ásamt mökum í óvissuferð. Spurningar vöknuðu og starfsmenn spáðu í spilin og einhverra hluta vegna voru allir vissir um að þeir væru að fara til Grænlands. Dagurinn rann upp og hinn 1. nóvember hittust allir starfsmenn í Þverholtinu og lang- ferðabíll kom okkur á Árbæjar- safn þar sem við snæddum morg- unverð. Að því loknu skoðuðum við gömlu prentsmiðjuna og sat þar ekki hann Ólafur KR Hannes- son og sýndi okkur brellurnar við gamla handverkið. Virkilega huggulegt og gamaldags. Að því loknu hélt bílferðin áfram áleiðis PRENTARINN ■ 1 1

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.