Prentarinn - 01.09.1999, Blaðsíða 12
Norræna samband bókagerðar-
manna, NGU, hefur í samstarfi
við GPMU í Bretlandi unnið að
verkefni fyrir ungt fólk í félögun-
um. Verkefnið hefur staðið yfír sl.
tvö ár og var takmarkið að fela
ungu fólki að gera tillögur um
hvað félögin gætu gert til að
vekja áhuga og koma til móts við
þarfir ungs fólks. Eftir talsverða
hugmyndavinnu um hvað best
væri að gera til að ná til félag-
anna, m.a. hugmyndir um bæk-
ling, veggspjald ofl. kynningar-
efni, varð niðurstaða verkefnisins
að gera heimasíðu með sam-
skiptaneti sem komin er í gagnið
á Internetinu. Slóðin er:
w w w.vfe .interbase .co.uk
Síðan er ekki að fullu tilbúin
og verður þróuð áfram á næstu
mánuðum, en fyrirhugað er að
Evrópusamband bókagerðar-
manna taki verkefnið að sér í
framhaldinu. A heimasíðunni hef-
ur verið haldið úti spjallfundum
ungs fólks á hverjum mánudegi
kl. 18 að íslenskum tíma og þar
mætir fólk frá Norðurlöndunum
og Englandi.
Markmið heimasíðunnar
Aðalmarkmið verkefnisins er
að þróa áfram hlutverk ungs fólks
í verkalýðsfélögum í Evrópu með
því að tryggja að málefni þess séu
á dagskrá hjá félögunum.
Sérstakt verkefni er að útbúa
heimasíðuna fyrir ungt fólk til að:
- geta sótt upplýsingar
- geta tekið þátt í umræðum um
æskulýðsmál í grafíska, papp-
írs- og upplýsingaiðnaðinum
- innranet á EYN heimasíðunni
- heimasíðan og innranetið
verða kynnt sérstaklega hóp-
um ungra félagsmanna í félög-
um innan Evrópusambands
bókagerðarmanna
Nauðsynlegt er að þróa heimasíð-
una fyrir:
- spjallrásir fyrir umræðuhópa
- gagnabanka
- til að vinna að jafnréttismálum
- aðgang að réttindum um þjálf-
un og vinnu
Þátttakendur
Félag bókagerðarmanna kom
að þessu verkefni á lokastigum
þess og hefur Georg Páll Skúla-
son verið fulltrúi félagsins í þeirri
vinnu.
NGU stóð fyrir ráðstefnu fyrir
ungt fólk á Norðurlöndum í byrj-
un september sl. og komu saman
ungmenni frá Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi, Islandi, Bretlandi og
Þýskalandi til að ræða æskulýðs-
starfsemi í löndunum og hvaða
leiðir séu vænlegar til að virkja
ungt fólk í hreyfingunni og jafn-
framt að tryggja að unga fólkið
gangi til liðs við félögin í barátt-
unni fyrir bættum kjörum og að-
búnaði vinnandi fólks.
Æskulýðsstarfsemi
I Svíþjóð hefur verið unnið
talsvert starf til að mæta þörfum
yngri aldurshópsins, m.a. hefur
félagið stofnað sérstaka deild sem
kallast mediaf@cket og hefur
þann tilgang að laða að félags-
menn sem vinna við margmiðlun
og skyld störf. Haldið er úti
heimasíðu sérstaklega fyrir þetta
starf sem nefnist: www.mum-
Svipmyndir frá starfi við
undirbúning heimasíðu
NCU og CPMU fyrir ungt
fóik í Evrópu.
mel.com og hefur henni verið vel
tekið, en þar er fjallað um málefni
margmiðlunar, launamál í grein-
inni og margt fleira.
Sænska félagið hefur mikinn
metnað fyrir grunnnáminu í
prentiðnaðinum og var fyrsta fé-
lagið innan sænska alþýðusam-
bandsins til að gera samning um
grunnnámið.
Engar nefndir varðandi æsku-
lýðsmál sérstaklega eru starfandi
innan félagsins og betur má ef
duga skal.
Norðmenn hafa einnig lagt
nokkra áherslu á að tryggja ungu
fólki rétt innan félagsins og ber
deildum að tilnefna æskulýðsfull-
trúa og skipa nefndir til að fjalla
um málefni tengd ungu fólki.
Þetta hefur tekist bærilega og eru
starfandi nokkrar nefndir úti um
landið.
Finnar eru með sérstaka 7
manna stjórn kosna til tveggja ára
í senn til að sinna málefnum unga
fólksins. Haldin er sumarhátíð
sérstaklega fyrir 25 ára og yngri
sem eru 1400 talsins. A hátíðina
mæta 150-200 manns árlega.
Jafnframt er íþróttahátíð og ráð-
stefnur um réttindi eru haldnar
reglulega.
Meginverkefni stjórnarinnar er
að nálgast ungt fólk sem kemur
inn á vinnumarkaðinn, kynna því
réttindi sín og reyna að virkja það
í félaginu, útskýra fyrir því til-
gang félagsins og samstöðu
launafólks í tengslum við kjara-
mál og önnur réttindamál. Uþb.
jafnmargir koma inn á vinnu-
markaðinn og þeir sem hætta
störfum fyrir aldurs sakir, en árið
2008 er gert ráð fyrir að helming-
ur þeirra sem nú eru á vinnu-
markaði verði eftirlaunaþegar og
nýir launþegar komnir í þeirra
stað. Því er afar mikilvægt að
vera virk í að ná til nýrra félaga
og vera leiðandi í greininni um
vinnumarkaðinn.
Niðurstöður
A ráðstefnunni var umræða í
hópum um hvernig félögin gætu
komið til móts við þarfir unga
fólksins og hvaða hlutverk ungt
fólk gæti haft í því að efla stéttar-
félögin í framtíðinni og vera í
stakk búið til að fá félaga til liðs
við sig. Niðurstöður voru eftirfar-
andi:
Hvernig löðum við ungt
fólk til starfa með hreyf-
ingunni?
Afstaða gagnvart ungu fólki
þarf að breytast til batnaðar. Þeir
sem stjóma félögunum hafa til-
hneigingu til að horfa framhjá
sjónarmiðum ungs fólks, hinsveg-
ar er einnig nauðsynlegt að sam-
12 ■ PRENTARINN