Prentarinn - 01.09.1999, Page 21

Prentarinn - 01.09.1999, Page 21
sólmvrkva um Kaldadal Komið var til Reykholts (eða Reykjaholts eins og það hét áður) skömmu eftir hádegi og snæddur þar hádegisverður. A borðum var súpa og mjúkt og gott lambakjöt, sem er að öðrum veislukosti ólöstuðum besti matur í heimi og er kominn tími til að íslenskir bændur fái verðskuldað hrós fyrir vinnu sína og menn hætti að hnýta í þessa dugnaðarforka, sem hafa búið með landinu í blíðu og stríðu og aldrei gefist upp. Eftir matinn var staðurinn skoðaður undir leiðsögn séra Geirs Waage, sem kom á óvart með orðkynngi og málsnilld sem hrein unun var að hlusta á, sann- kallaður mælsku- snillingur. For- maðurinn hafði reyndar lofað okkur forsætis- ráðherra- eða þjóðhöfðingja- ræðu í Reykholti og það stóðst svo sannarlega eins og allt annað í þessari einstæðu og eftirminnilegu ferð. Okkur var sýndur uppgröfturinn sem nú á sér stað á húsum og virkjum Snorra, kirkjugarðurinn, þar sem Snorri hvílir, Snorralaug, sem er örugglega fyrsti heiti potturinn á Islandi og furðulegt að engin sundlaug á landinu skuli hafa komið sér upp eftirlíkingu af þessu frábæra mannvirki. Það var í Reykholti sem Snorri var veginn 1241. Sagt er að Snorri hafi einungis mælt fram sex orð sem tilgreind eru. Fyrst „Ut vil ég“ við hirð Noregskon- ungs og svo „Eigi skal höggva" þegar griðníðingar unnu á honum og mun skömm þeirra verða uppi meðan Island byggist. „Út vil ek og út hann lagði/til íslands sama dag“ stendur í frægu kvæði. Við hirð Noregskonungs var litið á Island sem útland eða skattland, svipað og Islendingar litu á Grænland. Þegar Snorri kom til Islands byrjaði hann strax að ná undir sig eigum Noregskon- ungs og einnig að semja sín snilldarverk, sem skrifuð voru á kálfskinn og fóru oft um hundrað kálfar í eina bók. Frægustu verk Snorra eru Snorra-Edda og Heimskringla, sögur Noregskon- unga, sem er eina heimild Norð- manna um uppruna sinn og þaðan er kominn hinn gífurlegi áhugi þeirra á Snorra. Sumir ganga svo langt að telja Snorra einn merkasta rithöfund allra tíma. Konungi var farið að ofbjóða uppgangur Snorra og sendi hing- að flugumenn til að vinna á hon- um, eins og segir í kvæðinu: Afþví beið hann bana síðar fyrir buðlungs vélar stríðar. Síðan gráta hrímgar hlíðar og holt um Borgarfjörð (Buðlungur = konungur, vélar = vélabrögð). Sannindi þessara orða má sjá á fögrum síðsumarsmorgni þegar sólin kyssir hnmið á laufinu og breytir því í daggardropa eða saknaðartár Borgfirðinga, sem gráta mesta rithöfund sinn fyrr og síðar. Nú var haldið til Akraness og byggðasafnið skoðað og Sigur- fari, hið fræga skip sem er eftir- líking á kútter Haraldi. Fallegur stuðlabergssteinn er þarna, sem er gjöf frá frum, en írskir menn námu land á Skipaskaga. A stein- inum er áletrun á gelísku, sem er gamalt tungumál Ira, og hljóðar þannig í lauslegri þýðingu: Til góðs vinar liggja gagnvegir þó hann séfirrfarinn. Aður var drukkið kaffi á staðn- um meðan Skagamenn, með arf- taka Rikka, Donna og Þórðar Þ. innanborðs, unnu Vestmannaey- inga 3:0 í undanúrslitum Bikar- keppninnar í knattspyrnu. I kaff- inu flutti formaður skemmtilega kveðju- og þakkarræðu og lét þess m.a. getið, að kvartanir um óstundvísi yrðu ekki teknar til greina, þar sem tímaáætlun væri gerð í lok ferða og stæðist alltaf upp á punkt og prik. A heimleiðinni var ekið um Hvalfjarðargöngin, sem liggja dýpst 175 metra undir sjó, en Kaldidalur er í 700 metra hæð, svo við höfum bæði verið hátt uppi og langt niðri. Þegar göngin voru grafin lágu úrtölumenn ekki á liði sínu. Jarðskjálftar, eldgos, sprungur og fjármálaævintýri voru meðal þess, sem upp var talið. Nú eru þessar raddir þagn- aðar, en þær fara á kreik, næst þegar djatfir menn leggja af stað A útsýnispalli við Hraunfossa: Jakobína Jakobsdóttir, Rtínar Steindórsson, Þorbjörg Valgeirs- dóttir, Lilja Sigurjónsdóttir og Giistaf Símonarson. með ný afrek. Veðrið var eins og best verður á kosið, logn og heið- skírt alla leið. Er hægt að biðja um meira? Leiðsögumenn stóðu vel fyrir sínu, en þeir voru Guð- mundur Guðbrandsson og Tómas Einarsson. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir fróðlega leið- sögn og þægilegt viðmót. Farar- stjórn var í höndum stjórnar FBM og gekk þar allt snurðulaust. Heim var komið um áttaleytið og héldu menn glaðir á braut með ljúfar minningar um gott land og gott mannlíf og hugsuðu með eft- irvæntingu til næstu ferðar á sama tíma að ári. Fjórir frœknir á ferð um Kaldadal: Asbjörn Pétursson, Torfi Þ. Olafsson, Sverrir Kjœrnested og Björn Ey- þórsson virða fyrir sér Skúlaskeið. Gestaþraut: Hvað heitir formaður FBM? PRENTARINN ■ 21

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.