Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 3

Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 3
Samlokufundur Samlokufundir eru að jafnaði haldnir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, kl. 12:00 íVerkfræðingahúsi Engjateigi 9. Félagsmenn fá samlokur og drykki án endurgjalds en utanfélagsmenn geta keypt veitingar á vægu verði. Samloku- fundir eru auglýstir á heimasíðumVFÍ ogTFÍ. Tölvupóstföng Félagsmenn eru minntir á að senda upplýsingar um tölvupóstföng sín til skrifstofunnar, audur@vfi.is eða audur@tfi.is Einungis þeir sem það vilja eru settir á póstlista og minntir sérstak- lega á viðburði á vegum félaganna. Skilafrestur Næsta tölublað Verktækni kemur út í lok maímánaðar. Skilafrestur er til 21. maí. Þeir sem vilja koma efni í blaðið og/eða skilaboðum til ritstjóra eru beðn- ir um að senda tölvupóst á sigrun@vfi.is eða sigrun@tfi.is. Tölvupóstföng félaganna Verkfræðingafélag íslands: vfi@vfi.is Tæknifræðingafélag íslands: tfi@tfi.is Stéttarfélag verkfræðinga: sv@sv.is LEIÐARINN Að vekja áhuga Tæknidagar VFI ogTFI vom haldnir í Smáralind dagana 8. -12. apríl s.l. Sam- kvæmt talningarkerfi hússins sóttu um 300 manns fýrirlestrana. Auk þess mættu um eitt hundrað nemendur úr Linda- skóla og hlýddu á kynningu á viðfangs- efnum verkfræðinga og tæknifræðinga. Síðla árs 2000 skilaði vinnuhópurVFÍ og TFI niðurstöðum sínum varðandi það hvemig félögin gætu stutt kennslu í stærðfræði og raungreinum. f greinar- gerð hópsins kom m.a. fram að í efri bekkjum grunnskólanna er aðeins um þriðjungur þeirra kennara sem kenna stærðfræði með sérmenntun á því sviði. í raungreinum, sérstaklega eðlis- og efnafræði er ástandið enn verra. Einnig kom frarn að nauðsynlegt væri að breyta viðhorfi foreldra til kennslu í þessum greinum í grunnskólum og gera þá meðvitaða um nauðsyn þess að sú kennsla sem böm þeirra fá sé nægilega góð og standist þær kröfur sem gerðar eru í nútíma skólastarfi. Árið 1996 var gerð athugun á stöðu raungreinakennslu í framhaldsskólum. Þar kom m.a. fram að of fáir nemendur velja raungreinar, skólastefna verkar letjandi á nemendur og uppeldis- og kennslufræði veldur erfiðleikum þegar ráða á fólk tíl kennslustarfa í sinni sér- grein. í greinargerð vinnuhópsins kemur fram að ekki verði séð að breyting hafi orðið frá því athugunin var gerð.Til dæmis hafi raungreinanám verið minnk- að um helming á málabrautum, félags- brautum og listabrautum á síðustu árum. Félög verkfræðinga og tæknifræðinga vilja styðja kennslu í stærðfræði og raun- greinum á grunn- og framhaldsskólastigi og stuðla að því að fleiri leggi fyrir sig nám í tæknigreinum. Má því búast við að kynning eins og sú sem reynd var í Smáralindinni verði endurtekin. Mark- miðið er að leiða nemendum fyrir sjónir að raungreinar opna dyr að skapandi og gefandi störfum og að nauðsynlegt er að hafa trausta undirstöðu úr námi. RÁÐSTEFNA ÆTLUÐ RÁÐGJÖFUM Framkvæmdasýsla ríkisins stendur fyrir heilsdagsráðstefnu miðvikudaginn 29. maí 2002 á Grand Hótel. Hún er sérstaklega ætluð ráðgjöfum á sviði mannvirkjagerðar. Kynnt verður m.a.: • Nýútkomið leiðbeiningarit: „Kaup á ráðgjöf' • Nýútkomnar verklagsreglur um skipan opinberra framkvæmda • Nýtt fyrirkomulag hönnunarsamkeppna Munið að taka daginn frá. Skráning á fsr@fsr.is. Verð kr. 7.500 með hádegisverði og ítarlegum ráðstefnugögnum. VERKTÆKNI Engjateigi 9 • 105 Reykjavik Sími: 568 8510 • Simbréf: 568 9703 • Tölvupóstur: sigrun@vfi.is • sigrun@tfT.is Btaðið VERKTÆKNI er gefiö út af Verkfræðingafélagi íslands, Stéttarfélagi verkfræðinga og Tæknifræðingafélagi íslands og er dreift ókeypis til félagsmanna. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún S. Hafstein. Blaðnefnd: Einar H. Jónsson (Tfí), Ámi Geir Sigurðsson (SV) og Kristinn Andersen (VFÍ) auk ritstjóra. Leyfilegt er að birta efni úr Verktækni ef heimildar er getið. Skoðanir sem settar eru fram i blaðinu samrýmast ekki endilega viðhorfum útgefenda. Prentvinnsla: Gutenberg • Mynd af Pertunni á fbrsiðu: Rafn Sigurbjörnsson • Aðstoð við útgáfu: Hænir sf. Simi: 533 1850 ■ Fax: 533 1855 utgafa@haenir.is

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.