Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 11

Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 11
Fulttrúar verðlaunahafa ásamt Loga Kristjánssyni framkv.stj. VFÍ, Hákoni Ólafssyni formanni VFÍ og Pétri Stefánssyni formanni nefndarinnar sem útnefndi verkfræðiafrekin. sig bar 50 tonn. Meðal búnaðarins var eimlest, járnbrautarvagnar, járnbrautar- spor, kranar og timbur í bryggjugerð. Grjót í hafnargarðana var sótt í Öskju- hlíð en möl í Skólavörðuhæð. Lögð voru járnbrautarspor alls um 12 km. til að undirbúa efnisflutningana en við þá voru notaðar tvær eimlestir með samtals 60 járnbrautarvagna. Hafnargerðin fólst einkum í byggingu Grandagarðs, Örfiriseyjagarðs og Batteríisgarðs ásamt trébryggjum og steyptum kerjum er mynda innsiglingu í höfnina. Þá var rek- ið stálþil og gerð uppfylling meðfram Hafnarstræti og höfnin dýpkuð. Verkinu stjórnaði ungur danskur verkfræðingur N.P. Kirk. Eftirlit með hafnargerðinni hafði Knud Zimsen borgarstjóri og verk- fræðingur. Hinn 16. nóvember 1917 af- henti N.P.Kirk fyrir hönd N.C. Monberg öll mannvirki hafnarinnar. Gerð Reykjavíkurhafnar var tæknilegt þrekvirki við erfiðar aðstæður. Hin nýja Reykjavíkurhöfn gjörbreytti allri aðstöðu til vöruflutninga að og frá íslandi. Einnig tilnefnd: Holræsi Reykjavíkur og Loftskeytastöðin í Reykjavík. 1921-1930 Brú á Hvító í Borgarfiröi Uppbygging samgöngukerfis á landi varð fljótt eitt af helstu viðfangsefnum íslenskra verkfræðinga. Brýr voru fáar á landinu fram á annan áratug tuttugustu aldar og hinar stærri hannaðar og byggðar af út- lendingum. Um það bil sem Verkfræðinga- félag íslands var stofnað verður mikil breyting á þessu og flestar brýr hannaðar og byggðar af íslendingum. Brúin á Hvítá hjá Ferjukoti í Borgar- firði er byggð árið 1928. Þetta er boga- brú í tveim höfum sem hvort er 51 metri og heildarlengd brúarinnar 106 metrar. Árni Pálsson, verkfræðingur hjá Vega- gerðinni hannaði brúna og vinnuflokkur Vegagerðarinnar byggði hana. Verkið hófst í apríl og brúin var vígð 1. nóvem- ber og var byggingartími því aðeins um sex og hálfur mánuður. Kostnaður við framkvæmdina var 165 þús. kr. Hvítárbrú er sérlega fallegt mannvirki, sem setur mikinn svip á umhverfi sitt. Aðal- samgönguleiðin frá Reykjavík tilVestur- lands, Vestfjarða og Norðurlands lá um brúna í rúmlega fimmtíu ár. Brúin hefur ný- lega verið gerð upp og mun hún bera höf- undum sínum fagurt vitni um langa hríð. Einnig tilnefnd: Síldarverksmiðja ríkis- ins á Siglufirði og Ríkisútvarpið. 1931-1940 Talsamband við útlönd Tæplega þrjátíu árum eftir að ritsíma- samband við umheiminn komst á árið 1906 var farið að huga að talsambandi við útlönd á stuttbylgjum. Þegar ritsím- inn var lagður var eitt af hlutverkum hans að flytja veðurfregnir frá íslandi til annarra landa. Þessi veðurfregnaflutning- ur með sæsímanum þótti ófullkominn, einnig voru bilanir tíðar á sæstrengnum eða loftlínum beggja vegna hafsins og engin varaleið. Því var óskað eftir að ís- land reisti öfluga radíóstöð. Fyrsta ágúst 1935 var talsamband við útlönd opnað á einnar rásar stuttbylgju- sambandi við London og Kaupmanna- höfn. Tvær radióstöðvar voru byggðar, sendistöð á Vatnsenda og móttökustöð í Gufunesi. Reist voru fimm loftnet á hvor- um stað. Lot'tnetin þurftu að vera þetta mörg vegna þess að skipta varð um loft- net eftir því á hvaða bylgjulengd var sent, í hvaða átt og á hvaða tíma. Afgreiðslan sjálf fór fram í Landssímahúsinu við Austurvöll sem tengdist radíóstöðvunum með jarðstrengjum. Umsjón með verkinu höfðu verkfræðingamir Guðmundur Hlíðdal og Gunnlaugur Briem. Með talsambandinu við útlönd var stigið risaskref í samskiptum við umheiminn. Ný samskiptaleið opnaðist til útlanda til ómælds hagræðis fyrir fréttastofur, við- skiptalífið og einstaklinga. Einnig tilnefnd: Sundhöllin í Reykja- vík og Ljósafossvirkjun. 1941-1950 Hitaveita Reykjavíkur Talið er að um 1830 hafi notkun heits vatns í Þvottalaugunum verið orðin nokkuð almenn. Það er svo nokkru eftir 1920 að farið var að huga að frekari notkun fyrir heimilin í borginni að á- eggjan Jóns Þorlákssonar verkfræðings, en hann tengdist flestum tækniframför- um í landinu á fyrsta þriðjungi aldarinn- ar, ýmist sem verkfræðingur eða stjórn- málamaður. Árið 1928 em hafnar tilraunaboranir við Þvottalaugarnar, sem gáfu góða raun. Árið 1933 samdi bæjarstjóm um kaup hitarétt- inda að Reykjum í Mosfellssveit og var byrjað að bora það ár.

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.