Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 16

Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 16
Mikill vöxtur í starfsemi SV Aðalfundur Stéttarfélags verkfræðinga var haldinn föstudaginn 12. apríl s.l. Á fundinum lá fyrir tillaga stjómar að breyta lögum félagsins á þann veg að heimilt yrði að veita þeim sem lokið hafa B.Sc. prófi í verkfræði frá Verk- fræðideild HÍ, eða sambærilegu prófi frá öðrum skólum, inngöngu í félagið. Rökstuðningur fyrir þessari breytingu er sá að tilvonandi verkfræðingar með B.Sc. próf hafa ekki önnur stéttarfélög að snúa sér til. Tillagan var felld. Til- laga um að þeir sem hafa lokið hafa B.Sc prófi í verkfræði frá verkræðideild HÍ eða sambærilegu prófi frá öðmm skólum geti orðið aukafélagar, var hins vegar samþykt. Einnig voru lagðar fram tillögur um lagabreytingar er varða stjómarkjör. Hl að ná auknum stöðugleika í starf félagsins var lagt til að formaður verði kjörinn til tveggja ára formennsku eftir tveggja ára varafor- mannstíð og embætti fráfarandi formanns lagt niður. Tillagan var felld en fundarmenn voru sammála um að beina því til stjómar skoða bæri aðra möguleika á breytingum fyrir næsta aðalfund Helstu þættir úr ársskýrslu Fjármálin. Rekstur SV á árinu var í sam- ræmi við áætlanir. Tekjur umfram gjöld voru um 520 þúsund krónur. Að teknu til- liti til fjármunatekna var hagnaður ársins um 1,7 milljónir króna. Félagafjöldi og félagsgjöld. Á árinu hlutu alls 46 verkfræðingar inngöngu í fé- lagið. Þrír sögðu sig úr félaginu. Um 120 félagar vinna á verkfræðistofum, um 210 hjá ríkinu, 50 hjá Reykjavíkurborg og um 440 á almennum markaði. Aukafélagar em skráðir um 120. Á aðalfundinum var samþykkt að hækka félagsgjöldin um 1.200 krónur.Verða þau nú 14.400 krónur á ári. Þessi hækkun nær ekki að vega upp þær verðlagshækkanir sem orðið hafa. Þrátt fyrir að ítrasta aðhalds sé gætt í rekstri varð ekki hjá því komist að hækka félagsgjöldin. Hækkunin mun skila sér í betri þjónustu til félagsmanna SV. Kom fram að SV er eitt örfárra stéttarfélaga þar sem árgjaldið er fast en ekki hlutfall af launum, sem þýðir mun lægra árgjald en gengur og gerist hjá öðmm stéttarfélögum. Tillaga um að SV veiti sambærilegan afslátt ogVFÍ til félagsmanna sem em í báðum fé- lögunum var felld. F.v. Arni B. Björnsson framkv.stj. og Kristján M. Ólafsson formaöur. Heimasíða SV (www.sv.is) Á heimasíðu félagsins er aðgangur að miklu magni upp- lýsinga og er síðan mikið notuð af félags- mönnum. Á síðasta starfsári var byrjað á vinnu við að lagfæra og endurbæta síðuna og verður áfram unnið að því verkefni á næsta starfsári. Útgáfa. Gerður var nýr samningur við við Grafík-Gutenberg sem nær til bæði prentunar og útsendingarVerktækni. Gegn sölu auglýsinga sér prentsmiðjan nú um báða þessa kostnaðarliði. Áður greiddu fé- lögin fyrir útsendingu blaðsins en sá kostnaður er á bilinu 600-700 þúsund á ári, sem nú sparast. Kjarakönnunin er fastur liður í starf- semi SV. Svömn er áhyggjuefni en hún var óvenju léleg í síðustu könnun. Stjórn SV mun leita leiða til að bæta svömnina. Út- gáfa launatöflunnar er einn af hornsteinum starfsins og hefur löngu sannað gildi sitt. Upplýsingar í töflunni byggja á Kjarakönn- nuninni og nokkmm öðmm minni könn- unum og kjarasamningum. Markaðslauna- taflan er eitt beittasta vopn stórs hluta fé- lagsmanna í sókn að bættum kjömm. Hún nýtist sérstaklega vel meðal þeirra félgs- manna SV sem starfa á almennum mark- aði en fyrir þann hóp gerir félagið ekki al- menna kjarasamninga. Stéttarfélag tölvunarfræðinga. SV hef- ur í rúmt ár séð um rekstur Stéttarfélags tölvunarfræðinga. Nú hafa 16 tölvunar- fræðingar gengið í stéttarfélagið sem er nokkuð færri einstaklingar en stjórn fél- gasins hafði vonað. Félag tölvunarfræðinga vinnur að löggildingarmálum stéttarinnar og vonast er til að við þann áfanga aukist áhugi á stéttarfélaginu. Orlofsmál Orlofssjóður SV hefur starfað á fimmta ár. Mikill og vaxandi áhugi er á starfsemi sjóðsins. Félagar í Orlofssjóðnum em þeir félagsmenn SV sem greitt er fyrir í sjóðinn. í sjóðinn er nú greitt fyrir verkfræðinga hjá Ríki og Reykjavíkurborg auk flestra á al- mennum markaði að undanskildum verk- fræðistofum en þær skila í undantekning- artilfellum greiðslum í sjóðinn. Á síðasta starfsári tók Orlofssjóðurinn í notkun fyrsta sumarbústaðinn sem er í hans eigu. Dómsmál Lögfræðikostnaður SV á árinu var rúmar 1,7 milljónir króna. Kristján M. Ólafsson, formað- ur SV, sagði það nokkuð hærri upphæð en áður. Þetta væri til marks um góða þjónustu félagsins en málaferli vegna meintra brota á félögum í SV em algengari nú en áður. Stjórnarkjör Úr stjóm gengu Ingveldur Jónsdóttir, Jónas G. Jónasson og Elísabet Pálmadóttir. Magnús H. Gíslason gaf kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn. Auk hans vom kosin í stjóm SV Sigurður Egill Guttorms- son og Hulda Guðmundsdóttir. Aðrir í stjóm em: Kristján M. Ólafsson, formaður, Eysteinn Einarsson, varaformaður, Baldur Grétarsson, Amar Gestsson og Þórir Guð- mundsson, varamaður.

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.