Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 18

Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 18
Knattspyrnuhúsið í Grafarvogi Miðvikudaginn 3. apríl s.l. fór um 40 manna hópur úr Byggingarverkfræðideild VFÍ í skoðunarferð í Knattspymuhúsið í Grafarvogi. Heimsóknin hófst á því að Níels Ind- riðason, yfirverkfræðingur hjá VST/kynnti þátt Reykjavíkurborgar í verkefríinu en Ní- els hefur verið eftirlitsfulltrúi leigutaka á byggingartímanum. Knattspymuhúsið var boðið út sem einka- framkvæmd á vegum Reykjavíkurborgar. Fjómm hópum var boðið að taj<a þátt í út- boðinu. Gefin var einkunn fyrír annars veg- ar tæknilegt tilboð og hins vegár verðtilboð. Eftir yfirferð tilboða reyndust fyrirtækin Jám- bending ehf. ogTrésmiðja Snorra Hjaltason- ar, sem stóðu saman að einu tilboðanna, vera með hagstæðasta tilboðið. Fyrirtækin tvö stofnuðu með sér bygging- ar- og rekstrarfélagið Fossaleyni ehf. en húsið stendur við samnefnda götu. Fossaleyni ehf. tók því að sér að byggja og reka knattspymu- hús í 25 ár ásamt annarri íþróttaaðstöðu og leigja Reykjavíkurborg í ákveðinn fjölda tíma. Fossaleyni ehf. kemur til með að leigja öðmm aðilum húsið þann tíma sem Reykja- víkurborg nýtirþað ekki. Eftir kynningu Níelsar tók Bjarni Már Bjamason til máls en hann er hönnunar- og byggingarstjóri hússins. Fyrsta skóflustunga að húsinu var tekin þann 16. mars 2001, jarðvinna hófst í maí og upp- steypa hússins hófst í júní 2001. Fullbúið samanstendur húsið af um 10.800m2 knattspymusal, 1700m2 hliðar- byggingu og 10.500m2 þverbyggingu fram- an við knattspyrnusalinn. Alls verður hús- ið um 23.000m2 að stærð. Segja má að húsið sé byggt í tveimur áföng- um. Fyrri áfanginn, sem nú er að klárast, fel- ur í sér byggingu knattspymusalar ásamt búningsklefum í hluta hliðarbyggingar. Síðari áfanginn felur í sér að ljúka um 400m2 skólaíþróttasal og gistiaðstöðu fyrir á annað hundrað manns í hliðarbygg- ingunni ásamt því að reisa þverbygg- ingu framan við knattspymusalinn. Knattspymusalurinn er 120 x 90m að stærð. Hann er með stað- steyptum veggjum og spymum en þakvjrki er byggt úr stálgitter- bitum. Ofan á þakbitana em settar gataðar trapisuplötur en þar ofan á steinullareinangmn, rakasperra og loks gúmmídúkur. Þakið er bogalaga með um tveggja metra þykkum þakkanti. Knattspymuvöllurinn er 105 x 68m með um 20m lofthæð yfir miðlínu. Á vellinum er þriðju kynslóðar gervi- gras, Monoslide 20 - 50 frá fyrirtækinu Fblytan í Þýskalandi. Um 22 mm gúmmfmotta er lögð á jafnað malarlag, því næst sjálft grasið lagt og það fyllt með Helstu aðilar hönnunar vom eftirfarandi: Arkitektar: ALARK arkitektar sf. Burðarþol og lagnir: Verkfræðistofa Er- lends Birgissonar Loftræsihönnun: Verkfræðistofan Vík ehf Raflagnahönnun: Verkfræðistofan Afl ehf Brunahönnun: Verkfræðistofa Snorra Ingimarssonar ehf Eftirlit leigutaka: Verkfræðistofa Sig- urðar Thoroddsen hf. Eftir kynningu á húsinu fór hópurinn í skoðunarferð um húsið í fylgd Bjarna Más, byggingarstjóra. Fjölmargar spurningar og umræður spunnust milli manna og var ferðin hin skemmtilegasta. Veitt var kaffi og kakó á meðan farið var yfir kynningu á húsinu. Heimsóknin stóð frá kl. 8.30 til ki, 9.45. Stjóm BVFl vill þakka Fossaleyni ehf. fyrir góðar mótttökur. Arl Guðmundsson, ritnri BVFÍ sandi og gúmmíkurli. Völlurinn stenst stærðarkröfur í öllum alþjóðlegum mótum. í þverbyggingunni verður 3000 m; skautasvell, Kkamsræktarstöð, keilusalur, svæði fyrir skotíþróttir og æfingasaiur fyrir júdó, karate, taikvondo og glímu. Einnig verður þar aðal anddyri hússins með veit- ingaaðstöðu og íþróttatengdri þjónustu, s.s. sjúkraþjálfun, nuddi, snyrtistofu, sportvöm- verslun, skrifstofuaðstöðu fýrir íþróttafélög ásamt smærri íþrótta- og danssölum. Vinna er að hefjast við þverbygginguna en hún verður að öllu leyti staðsteypt og mikið gler notað í hliðar hennar. Fyrri áfangi hússins var tekinn í notkun nýverið en síðari hlutar hússins í áföngum til haustsins 2003.

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.