Verktækni - 01.04.2002, Blaðsíða 6
/ / /
Avarp Hákonar Olafssonar á 90 ára afmælishátíð VFI:
Lögöu
grunn aö allsnægta þjóöfélagi
Ráðherrar, aðrir gestir, verkfræðingar.
Níutíu ár eru liðin frá stofnun Verkfræð-
ingafélags íslands. Félagið var stofnað
19. apríl 1912. Þá voru níu íslendingar
útskrifaðir úr verkfræðinámi en auk
þeirra voru tveir byggingameistarar og
tveir erlendir verkfræðingar aðilar að
stofnun félagsins. Fyrsti formaður var
Jón Þorláksson, síðar forsætisráðherra,
en auk hans var Thorvaldur Krabbe,
landsverkfræðingur á sviði hafnamála
aðal hvatamaður að stofnun félagsins.
Ytri aðstæður fyrir verkfræðinga á ís-
landi á þessum tíma voru erfiðar: litlir
peningar til framkvæmda, takmarkaður
skilningur á störfum þeirra og léleg
laun. Það var heldur ekki auðvelt fyrir
íslendinga að klára slíkt nám, einkum
vegna lélegs undirbúnings í raungrein-
um í menntaskóla. - Stærðfræðideild var
ekki komið á við Menntaskólann í
Reykjavík fyrr en 1919 og fyrstu nem-
endurnir ekki útskrifaðir fyrr en 1922.
Verkfræðingafélagið hélt þó strax frá
byrjun uppi öflugri starfsemi og var sá
vettvangur þar sem tæknileg málefni
voru kynnt og rædd og útgáfa Tímarits
Verkfræðinga hófst fljótlega.
Þróun félagafjölda íVerkfræðingafé-
laginu segir mikið um velmegun þjóðar-
innar á hverjum tíma en fjármagn til
framkvæmda og þróunar er undirstaða
starfa verkfræðinga. Þannig voru félagar
enn undir 100 þegar seinni heimstyrjöld-
in hófst en 1970 voru þeir orðnir 400 og
í dag eru félagar alls 1060.
Með stolti fyrir hönd stéttarinnar full-
yrði ég að verkfræðingar öðrum fremur
hafa lagt grundvöll að því allsnægta
þjóðfélagi sem við þekkjum í dag. Þótt
menn hafi ekki gert sér í upphafi aldar
Hákon Ólafsson form. VFÍ.
glögga grein fyrir nytsemi verkfræðinga
er öldin önnur nú. Starfssviðið hefur
stöðugt breikkað og hafa verkfræðingar
haslað sér völl á öllum sviðum þjóðfé-
lagsins. Þannig gefur verkfræðimenntun
góðan grunn fyrir nánast hvaða starf
sem er hvar sem er í heiminum. Verk-
fræðingar eru eftirsóttir í fjármálaheim-
inum vegna þess að þeir geta reiknað og
þeir ná gjarnan árangri í fyrirtækja-
rekstri. Nýlega var skýrt frá góðri af-
komu eins stærsta útgerðarfyrirtækis
landsins. Með fréttinni var mynd af for-
stjóra og framkvæmdastjóra fyrirtækisins
en báðir eru verkfræðingar og annar
gullmerkishafi Verkfræðingafélagsins.
Ýmislegt sérstakt verður gert á stóraf-
mælisári. Eitt af því, sem ákveðið var að
gera, var að fá vísa menn með góða yfir-
sýn og þekkingu tif að líta yfir farinn veg
og meta, hvað verkfræðingar hafa afrek-
að á seinustu öld. Seinasta öld spannar
nánast allt þróunarskeið íslendinga frá
örbirgð til alsnægta. Seinasta öld var
tímabil tækniþróunar á íslandi sem og í
öðrum löndum. Skipuð var nefnd til þess
að líta yfir þróun á íslandi á seinustu öld
og meta hvaða afrek, þar sem verkfræð-
ingar áttu verulegan hlut að máli, þættu
athyglisverðust. Þar sem aðstæður á ís-
landi hafa breyst mjög með hverjum ára-
tug var nefndinni falið að velja það verk-
fræðiafrek sem þætti athyglisverðast á
hverjum áratug. Nefndin hefur lokið
störfum og mun Pétur Stefánsson, for-
maður nefndarinnar, kynna niðurstöð-
urnar hér á eftir. Með Pétri í nefndinni
voru: Helgi Hallgrímsson, vegamála-
stjóri, ÓlafurTómasson, fyrrverandi
póst- og símamálastjóri, Valdimar K.
Jónsson prófessor og nýkjörinn heiðurs-
félagi VFÍ og fyrrverandi borgarstjóri Eg-
ill Skúli Ingibergsson. Vil ég þakka
nefndarmönnum fyrir það mikla starf
sem þeir hafa innt af hendi við þetta
vandasama verk og bíð spenntur eftir
niðurstöðunum.
Auk vals verkfræðiafreka seinustu ald-
ar mun Verkfræðideild Háskóla íslands
verða afhent gjöf en VFf er stuðningsað-
ili deildarinnar og telur hana gegna lyk-
ilhlutverki fyrir félagið og stéttina. Að
lokinni formlegri dagskrá verður boðið
upp á léttar veitingar.
Góðir gestir. Ég vona að við getum öll
átt ánægjulega stund hér í Listasafni
Reykjavíkur. Ég þakka ykkur fyrir að
koma og fagna 90 ára afmæli félagsins
og þakka tónlistarmönnunum fyrir þeirra
framlag.
Ég vil þá biðja Pétur Stefánsson að
koma hingað og skýra frá niðurstöðum
nefndarinnar varðandi verkfræðiafrek á
seinustu öld.
CAD ehf. - Skúlagata 61 A -105 Reykjavik - s: 552 3990 - www.cad.is - cad@cad.is
autodesk
authorlztd dealer
mechanlcal