Verktækni - 01.04.2002, Qupperneq 13
Búrfellsvirkjun.
1981-1990
Flugstöö Leifs Eiríkssonar
Allt frá upphafi millilandaflugs íslendinga
á árinu 1947 og fram á 9. áratug 20. aldar
bjó millilandaflugið við mjög ófullkomnar
aðstæður hvað varðar þjónustu við farþega
og afgreiðslu flugvéla. Fyrstu árin var far-
þegaafgreiðsla í hermannabragga á
Reykjavíkurflugvelli en síðan í flugstöð
Bandaríkjahers í Keflavík.
í byrjun árs 1980 hófst hönnun nýrrar
flugstöðvar í Keflavfk, en þá lá fyrir sam-
komulag milli íslenskra og bandarískra
stjómvalda um hönnun og byggingu flug-
stöðvarinnar. Samið var við embætti
Húsameistara ríkisins um mótun mann-
virkisins í samvinnu við bandarískt ráð-
gjafafyrirtæki varðandi fyrirkomulag og
flæði í byggingunni. Önnur tækniþjónusta
var unnin af innlendum verkfræðistofum.
Hin nýja flugstöð er kjallari, tvær hæðir og
þakhæð ásamt Iandgangi og sex flugvéla-
brúm. Byggingin er formsterk, með svip-
miklu þaki og voldugum þakbörðum. Hún
þykir í senn taka mót af hlutverki sínu og
fara einkar vel í auðninni þar sem hún er
staðsett. Flugstöð Leifs Eiríkssonar var
vígð og tekin í notkun árið 1987.
Rugstöðin gjörbreytti allri aðstöðu fyrir
millilandaflug íslendinga. Hún er glæsilegt
mannvirki og gott dæmi um verkmenn-
ingu þjóðarinnar.
Einnig tilnefnd: Nesjavallavirkjun og
Sundahöfn.
1991-2000
Hvalfjarðargöng
Hvalfjörður hefur löngum verið farartálmi í
augum fólks.Tengingyfir utanverðan fjörð-
inn var því á dagskrá með reglulegu mUli-
bili. AthuganirVegagerðarinnar 1987- 1990
leiddu í Ijós að jarðgöng undir fjörðinn væri
vænlegur kostur. Um sama leyti var hlutafé-
lagið Spölur stofnað að frumkvæði nokkurra
aðila norðan Hvalfjarðar. Félaginu var síðan
heimilað að fjármagna, hanna, grafa og reka
veggöng undir Hvalfjörð gegn gjaldtöku af
vegfarendum um tiltekinn tíma.
Spölur hf. hófst þegar handa við undirbún-
ing verkefnisins, sem var bæði margþætt og
flókið. Framkvæmdir hófust 1996 og göngin
voru opnuð fyrir umferð í júlí 1998. Verktaki
var Fossvirki sf., sameignarfélag Skanska AB,
E. PhU & Sön AS og ístaks hf, en það fyrir-
tæki stjómaði ffamkvæmdum. Lengd ganga
er 5,77 km að vegskálum meðtöldum. Göng-
in fára dýpst 165 m undir sjávarmál. Kostnað-
ur við göngin og fjármögnun þeirra varð
4.630 milljónir króna á verðlagi í febrúar 1996.
Hvalfjarðargöng em mannvirki í hæsta
gæðaflokki, sem gjörbreytti samgöngu-
möguleUcum mikils hluta landsmanna.
Vegfarendur kunna vel að meta jarðgöng-
in, og hefur umferð vaxið mun meira en
reiknað var með. Gerð ganganna er fyrsta
einkaframkvæmd í samgöngum á íslandi
og ein hin fyrsta á Norðurlöndum.
Mörg nýmæli vom reynd við undirbún-
ing og framkvæmd verksins.
Einnig tilnefnd: Perlan og Stafræn fjar-
skiptakerfi.