Dagfari - 01.02.1979, Side 2

Dagfari - 01.02.1979, Side 2
2 Ásgeir Daníelsson: HERINN OG EENAHAGS 5RÓUH Á ÍSLAHUI Fáránleiki auðvaldsskipulagsins kemur kannski hvergi jafn skýrt í Ijós og þegar sú staðreynd er athuguð, að framleiðsla vig- véla og alls kyns drápstækja hefur nú um langt skeið verið einn af hornsteinum þessa skipulags. Hernaðarstefnan hefur ekki aðeins miðað að því að byggja upp hernaðarmátt, sem gæti verndað hags- muni auðvaldsins heima og erlendis. Hún hefur einnig haft það markmið að tryggja markað fyrir mikilvægar iðngreinar og sporna þannig gegn áhrifum offram- leiðslukreppunnar. Um síðastliðin aldamót byrja ýmsir hag- færðingar að benda á þetta nýja hlutverk hernaðarstefnunnar. Efnahagsþróunin fyrir fyrri heimsstyrjöldina einkenndist augljóslega af mikilvægi vígbúnaðarkapp- hlaupsins. Það sama kom einnig í Ijós á 4. áratugnum. Mörg auðvaldsríki náðu sér fyrst upp úr sleni kreppunnar miklu þegar viébúnaðurinn fyrir seinni heimsstyrjöld- ina var í fullum gangi. Mikilvægi vígbún- aðar fyrir efnahagslíf auðvaldsins hefur þó aldrei komið jafn skýrt í Ijós og á þeim ára- tugum sem nú eru liðnir frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Ein af undirstöðu- greinum efnahagsþenslunnar i auðvalds- heiminum 1947—65, rafeindaiðnaðurinn, á tilkomu sína og viðgang vígbúnaði að þakka. Hergagnakaup auðvaldsríkja eru afgerandi fyrir afkomu flestra stærri fyrir- tækja í Bandaríkjunum, Brellandi og víðar. Mikilvægi hergagnakaupa auð- valdsríkja fyrir þungaiðnaðinn, sem er sér- staklega viðkvæmur fyrir áhrifum offram- leiðslukreppunnar, er einnig ótvírætt. Mikilvægi hernaðarútgjaldanna fyrir efnahagslíf auðvaldsins -íapar sýnd artengsl milli vígbúnaðar og hagsmuna verkafólks. 1 mörgum auðvaldsríkjum vinnur verulegur hluti verkafólks (svo skiptir prósentum) beint við hergagna- framleiðslu, eða hjá fyrirtækjum, sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á framleiðslu drápstækja. En þessi hags- munatengsl eru einungis á yfirborðinu. í sérhverju þjóðfélagi er framleiðsla vígvéla og rekstur hers þungur baggi. Verulegur hluti af vinnuaflinu, tækjum og húsnæði, sem hægt væri að nýta til annarra og þarf ari hluta, er nýtt til að efla herstyrk, sem nota á í innbyrðis samkeppni auðvaldsríkj- anna — og gegn baráttu verkafólks. í þessu samhengi sést augljóslega að raun- verulegir hagsmunir verkafólks felast í bar- áttu fyrir því að útgjöld til hermála séu minnkuð og þeir fjármunir sem þannig sparast séu notaðir til að auka félagslega þjónustu, eða minnka skattabyrði launa- fólks; að það vinnuafl og þau framleiðslu- tæki, sem í dag er notað til framleiðslu á vopnum og til reksturs fjölmennra herja auðvaldsrikjanna, verði notúð til fram- leiðslu á vörum og þjónustu sem auka velferð fólks. Ef auðvaldið neitar að ráð- stafa þeim fjármunum, sem í dag er varið til vígbúnaðar, á annan hátt og sporna þannig gegn atvinnuleysi þeirra sem nú vinna við hergagnaframleiðslu, þá sýnir það ekki að verkafólk hafi hag af vígbún- aðinum. Slík viðbrögð af hálfu auðvalds- ins sýna þvert á móti hversu nauðsynlegt það er fyrir verkafólk að afnema auðvalds- skipulagið. Baráttan gegn vigbúnaði er'í dag bar- átta gegn voldugri þungamiðju í valda- kerfi auðvaldsins. Reynsla undanfarinna ára sýnir að auðvaldið kýs heldur að ögra verkalýðsstéttinni með niðurskurði félags- legra útgjalda og launalækkunum, heldur en að draga úr vigbúnaði sínum. Barátta gegn hernaðarstefnu auðvaldsins verður þess vegna barátta gegn auðvaldsskipu- laginu; því skipulagi, sem af pólitískum og efnahagslegum ástæðum elur óhjákvæmi- leg af sér hernaðarstefnu. Herinn og gjaldeyristekjur ís- lenska auðvaldsins Saga islensku borgarastéttarinnar unu an farin 40 ár cr að verulegu leyti saga af- ætunnar, sem nærst hefur á stríðsbrölti voldugari vina sinna. Atvinnubyltingin í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar varð möguleg vegna mikilla gjaldeyristekna í tengslum við umsvif hernámsliðsins og það okurverð sem styrjaldaraðstæðurnar i neyddu erlendar þjóðir til að greiða fyrir íslenskan fisk. „Blessunarríkum áhrifum" styrjaldarinnar var vart lokið áður en 4 djúpstæðasta kreppa eftirstriðsáranna skall á. Það var ekki fyrr en árið 1953, sem efnahagslífið tekur að rétta við á nýjan leik og þá í beinum tengslum við fram- kvæmdir á vegum bandaríska hernáms- liðsins. Á siðari árum hefur íslenska auðvaldinu vaxið nokkur fiskur um hrygg og það er ekki jafn háð hernaðarbrölti heimsvalda- sinna og áður. Mikilvægi bandarisku her- stöðvarinnar fyrir efnahagslíf íslenska auðvaldsins er þó cnn verulegt. Til þess að gera okkur grein fyrir mikil- vægi bandarísku herstöðvarinnar undan- farin ár, þá skulum við athuga nokkrar uilur um efnahagslcg áhrif hersins. Hér fyrir ncðan er tafla, sem sýnir hve stór hluti af viðskiptatekjum tslands (þ.e. samanlögðum tekjum fyrir útfluttar vörur og þjónustu) voru hreinar (nettó) gjald- eyristekjur af þjónustu við herinn. I töfl- unni er einnig sýndur fjóldi íslendinga, sem störfuðu hjá hernum, verktökum hans og þjónustufyrirtækjum hans. ^i'WXSáFN

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.