Dagfari - 01.02.1979, Blaðsíða 7

Dagfari - 01.02.1979, Blaðsíða 7
7 að fara út í þessa baráttu núna. Við gerum það ekki í fullri vissu um neitt. þetta er cins og hver önnur ákvörðun um að leggja út i verkefni sent ntaður veit ekki alveg hvernig endar, maður vcrður að taka áhættuna. Aðalatirðið er það, að þetta mundi rífa málið upp úr þeirri deyfð sem það er í núna, og lífga það við i vitund fólks. Bragi: Já 6g vil taka undir það sem Þor steinn sagði þarna síðast, ég held að við höfum alltaf i SH A haft nokkuð Ijós mark- ntið, þ.e.„lsland úr NATO herinn burt”. Hinsvegar höfunt við ekki haft nægilega fastmótaða stjórnlist. Hún hefur vcrið til, cn ómeðvituð, og miðast við pressu á hið þingræðislcga apparat. Þetta hcfur staðið yfir i 30 ár eða svo og herinn er hér enn. Við þurfum því að huga að hvort við getum ekki bætt þessa stjórnlist. Ef við litum á þingið og þá möguleika sem eru til að konia hernum af landi brott I gegnum þingið, þá eru þeir því ntiður ákaflcga litl ir. Það cr aðcins einn flokkur sem er heill og óskiptur i andstöðu sinni við herinn og NATO. Ljóst er að þess er langt að bíða að styrklcikahlutföllin á þingi brcytist. Þess vegna vcrðum við að taka upp aðrar bar- áttuaðferðir og þjóðaratkvæði unt herinn og NATO var 'cinmitt sú krafa sem bar hæast 30. niars 1949. Við eigunt að taka hana upp og hefja á loft á ný. Kosturinn við þessa kröfu er ckki síst að hún kemur til með að vera lyftistöng fyrir Samtök her- stöðvaandstæðinga. Hér er ákveðin bar áttuaðferð lögð fram, ntenn vita þá hvernig þcir eiga að fara að þvi að berjast fyrir sinum markmiðum. Það er ckki nóg að ítreka aðeins baráttukröfurnar öðru hvoru, það þarf að marka einhverja lcið. Varðandi það hvort spyrja eigi um hvort tveggja, herinn og NATO í þjóðar- atkvæðagreiðslu, þá er afstaða mín sú, að við eiguni að krefjast hvors tveggja. Eg get skilið þær efasemdir, sem Þorsteinn gat um hér áðan. En við getum ekki krafist þess að aðeins verði kosið um herinn, og haldið því frant unt leið að þessi mál séu aðeins tvær hliðar á sama pening. En það er grundvallaratriði að þessar tvær spurn- ingar verði aðskildar. Nokkuð hcfur komið fram af röksentd- um gegn þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefir m.a. verið bent á að spurningar og orðun þeirra kunni að hafa áhrif á úrslit. Ég tel að þarna sé um tæknilegt atriði að ræða, seni engan veginn geti orðið til þess, að við eigunt að láta baráttu fyrir þjóðarat- kvæðagreiðslu liggja niðri. Nú ntenn eru hræddir við að þjóðaratkvæðagreiðsla kunni að tapast, og svo getur farið. En við getum einnig litið til þjóðaratkvæða- greiðslna um ýmis mál, sem hafa farið frant um ýmis mál víðsvegar um Evrópu á undanförnum árum — úrslit i þeint hafa iðulega komið á óvart, og verið í andstöðu við þau öfl sem eru ríkjandi i þessum þjóðfélögum, og ráða yfir pressunni. Guðntundur: 1 stuttu niáli byggist af- staða min til þjóðaratkvæðagreiðslu á því, að mér sýnsit halla undan fæti á þingi um okkar mál. Það er ekki einungis að þing- mönnurn fækki, sem eru andvígir herset- unni, heldur og að þetta ntál hefur orðið að víkja til hliðar fyrir öðrum málum. Ég held þvi að tíminn vinni þarna gegn okk- ur. Þvi sýnistmér rétt að taka þessa bar- áttuaðferð upp núna. Svo er hitt að fólk kýs ekki cftir þessu eina ntáli i kosningum og það er ekki óeðlilegt. 1 sambandi við hvenær eigi að bera fram þessa kröfu þá vil ég benda á að undanfarin tvö ár hefur sennilega verið meiri blómi yfir starfi her- stöðvaandstæðinga en í annan tíma. Áróðurslega ættum við að standa betur að vígi en oft áður. En það er greinilegt að það er farið að draga úr áhuganunt og bar- áttuþrekinu. Hallgrintur: Við þurfum að fá eitthvað til að berjast fyrir scm cr nálægt okkur, það gengur ekki til lengdar að vera að berj- ast fyrir einhverju sem ekki er fyrirsjáan legt að náist. Öll urnræða um málið er auðvitað jákvæð. Þcgar VL-ntálið var á dagskrá, þá var læðst nteð veggjum og engin opinber umræða fór fram um málið. Ef þjóðaratkvæðagreiðsla yrði, þá yrðu umræður og það er okkur í hag, það hafa dæmi sannað. Þorsteinn: Tvö atriöi, það er fyrst þctta um aðra kröfuna eða báðar. Ég er vissu- lega því hlynntur að Samtökin berjist fyrir þessum málurn, og hef sjálfur talað fyrir því og stuðlað að því að þau vóru bæði tekin á dagskrá. En af því leiðir ekki beint, að rétt sé að hafa báðar spurningarnar. um hvad skalspurt Það er einföldun að því að hafa bara aðra spurninguna, og sú einföldun er okkur í hag. Þannig hefur það verið úti i löndum, ein spurning. Spurningin er því hvort við eigum ekki að láta andstæðingunum eftir að krefjast þess að báðar spurningarnar verði settar frani. Við getum ekkert grætt á þvi að fá fram i beinhörðum tölum að það sé miklu minna fylgi við úrsögn úr NATOen brott- för hersins. Hitt atriðið er þessu skylt. Ég hef álitið að allt sem við fengjum umfrarn 40% í þjóðaratkvæðagreiðslu væri sigur. Jónas. Já, ég er í sjálfu sér ósammála þessum rökum sem hér hafa komið fram' Það er nú einu sinni svo í málum að til eru rök með og á móti. Þetta er spurning um taktík, hvort það sé rétt núna að berjast af sérstakri hörku fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu. Það hefur verið á verkefna- skránni, en ekki fengist. Nú eru nienn að segja það, að krafan um þjóðaratkvæðagreiðslu verði til þess að efla okkur i baráttunni. Við verðurn að efla baráttuna, vissulega, en mundi það eiga sér stað fyrir en búið væri að ákveða þjóðaratakvæðagreiðslu? Það er ein spurning. Höfum við nægan dugnað til að konta baráttunni í gang? Nú ef andstæðingamir ákvæðu að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu til að drepa málið, þá yrði það ekki dautt þótt hún tapaðist — það yrði hægt að taka málið upp aftur og cndurtaka atkvæðagreiðsluna, ég vil taka það frant. En það cr mikið verk að fá i gang þá baráttu sem þarf, til að þetta geti heppnast. Bragi: Eg hcld að það taki ráðantenn nokkur ár að fallast á þetta. Ég tel engar likur á að andstæðingarnir taki þessa kröfu upp, enda ekki þeim i hag að efna til umræðu um það. Jónas: En það er allt í lagi að setja möguleikanna fram og velta málinu fyrir sér. Bragi: Já, já, en þjóðaratkvæðagreiðsla leiðir til þess að hermálið verður að ein- hverju pólitisku niáli, fólk fer að hugsa um það. Ég held að það sé mikill munur á her- stöðvaandstæðingum annarsvegar og t.d. þeim.s.em á sínuni tíma skrifuðu undir VL-víxilinn — því fólki er eiginlega alveg sama. Það hugsar ekki um þessi mál, það er til i að skrifa undir eitthvað svona fyrir áhrif frá vinunt og kunningjum. Jónas: Já, stór hluli. Bragi: Já, sennilcga meirihluti. Þorsteinn.: Þetta er nú hæpin félags fræði.

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.