Dagfari - 01.02.1979, Side 8

Dagfari - 01.02.1979, Side 8
8 Bragi: Almenningur hugsar ákaflega lítið um pólitík alla jafna, fólk hugsar unt sitt einkalif og þess háttar, en ekki unt pólitík nema við einstök tækifæri. Her stöðvaandstæðingar myndu standa betur að vígi ef til þjóðaratkvæðagreiðslu kæmi. Þeir hafa öll vopnin í hendi sér. Þeir eru miklu betur undirbúnir en andstæðingam- ir. Jónas: Mér dettur i hug að ef við hefðum eina spurningu, mundi fylgja henni tímasetning? Bragi: Já, það er varla hægt að koma hernum úr landi í einni svipan svoeinhver tímamörk yrðu að vera. Það er vel hugsan- legt að hafa þau í spurningunni. Þorsteinn: Eins mætti hugsa sér að í samþykkt Alþingis yrði þess getið hvenær brottför hersins yrði framkvæmd, ef hún hlyti samþykki. Guðmundur: Mig langar til að vikja að eins að því sem Jónas minntist á áðan, hvort krafan um þjóðaratkvæðagreiðslu yrði til að efla starfsemina, áður en ákvörðun um hana yrði tekin, eða bara eftir að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði ákveð in. Ég var einn af flutningsmönnum tillög- unnar um þjóðaratkvæðagrciðslu á lands- fundinum, og þótti slæmt hversu illa hann var sóttur. Ég hafði svo hugsað mér dæmið þannig, að miðnefnd beitti sér af alefli fyrir því að kynna þetta mál sem allra best, meðal allra starfshópa og út um allt land, áður en mikið væri farið aðsetja þessa kröfu fram opinberlega, og tryggð yrði samstaða um hana. Það er stundum sagt að ef þessi krafa um þjóðaratkvæða- greiðslu næði fram að ganga, og tillagan um brottför hersins felld, þá væri búið að festa málið. En ég held að það yrði veru legur sigur ef við lengjum eitthvert fylgi að marki umfram það sem þingfylgi gefur tilefni til að ætla. Það myndi ýta við fram- sókn og krötunum sem yrðu að hugsa þessi mál út frá sínu kjörfylgi. Jönas: Já, og kannski kollvarpa stefnu Alþýðuflokksins. Bragi: Ef hægt er að tala um að hann hafi stefnu. Jónas: Hann er alveg hreinn á móti okkur. Guðmundur: En það eru menn þar i flokki, sem lýst hafa yfir stuðningi við málstað okkar og jafnvel i þingliði flokksins. Það virðist nú vera þannig á þeim bæ að menn megi gera bara það sem þeim sýnist. Þorsteinn: Það er reyndar gömul hefð í Alþýðuflokknum að ungkratarnir séu á móti hernum. Jónas: Svo aftur sé vikið að þvi, að hér er ekki hefð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, ekki er gert ráð fyrir henni i lögum. Það mundi breyta afstöðu minni ef það breytt- ist og ég er þvi fylgjandi. Þá væri væntan- lega auðveldara að koma kröfunni fram. En heldur þykir mér leiðinlegt að hafa þetta mál í spyrðu með öli og prestskosn- ingum. Guömundur: En hvaða líkur er þá til þess eins og þing er samsett nú að koma þessu i gegn? Hallgrimur: Það er mjög ólíklegt, það eru mjög skiptar skoðanir hjá Alþýðu- bandalaginu um þetta mál og hinir flokk- arnir munu ekki beita sér fyrir því. Ef við bregðum fyrir okkur bjartsýni, þá er kannski hægt að hugsa sér að þetta náist fram eftir 4 eða 8 ár, og þá fyrst byrjar aðalslagurinn. En fram að þeim tima, ef samtökin setja þetta á oddinn, þá hlýtur að fara fram þessi uppbygging sem við þurfum. Þá munum við ná tengslum við verkalýðshreyfinguna, ræða þennan möguleika um friðlýsingu Norður- Atlantshafsins og gera okkur grein fyrir því, hvað gerist þegar herinn fer. Þess vcgna er gott að koma fram með kröfu um þjóðaratkvæði. Hún setur okkur vissa ábyrgð á herðar — að byggja upp sam- tökin. Guómundur: Já heldur að aðdragandinn veðri svona langur. Hallgrimur: Það hlýtur að vcra. Styrk- leikahlutföllin á alþingi núna eru alls ckki þjóðaratkvæði í vil. Þorsteinn: Það sem skiptir ntáli nú, er að koma málinu almennilega á flot. Þar reynir á samtökin sjálf. Hvcrnig meta mcnn möguleika samtakanna á því að koma þessu á flot, inn í almenna umræðu. Guðmundur: Það er erfitt, sérlega vegna þess að þessi flokkur, sem annars hefur stutt okkar mál er því andvígur. Það tor- veldar okkur að koma þessu inn i almenna umræðu. Bragi: En það er Ijóst að við erum rétt að byrja þessa baráttu, en það er trú mín að eftir því sem menn ræða þetta betur og fleiri hugsa þetta mál, þá muni þessi krafa hljóma víðar og víðar. En við þurfum að kynna hana vel innan samtakanna, á fundum á þeirra vegum og annars staðar þar sem við getum tekið til niáls. Guðmundur: Þess má geta, að þó að þetta hafi verið fámenn landsráðstefna þá var hún sótt einkum af því fólki sem hefir verið virkast i samtökunum og það var það sem samþykkti þessa tillögu. Mér hefur líka sýnst, þegar ég hef farið á fundi m.a. uppi á Akranesi og þegar þetta mál hefur verið reifað, og það væri ansi góður hljómgrunnur fyrir þessu. Bragi: Það er greinilega ckki nóg að semja starfsáætlanir, ef þær falla ekki inn í einhverja heildarbaráttuaðferð. Maður heyrir fólk segja „Þetta gengur ekki. Það cr búið að stússast í þessu i 30 ár og ekkert gengur. Það væri getra að beina kröftum sinum á einhvern annan vettvang”. Þessu verður að brcyta. Þessi stjórnlist sem hér er til umræðu ætti að geta breytt þessu og gefa fólki von um að eitthvað sé hægt að eera. Jóíias: Já, ég hefi nú mínar efasemdir. Hins vegar má það gjarnan koma fram að ég tel að allar umræður og jafnvel átök um þetta mál innan SHA og jafnvel utan geti verið málefninu til góðs — ég hef það mikla trú á málefninu. Við þurfum þó að vinna jarðveginn töluvert betur, áður en við getum verið vissir um, að það sé rétt að

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.