Aðventfréttir - 01.01.1990, Qupperneq 2

Aðventfréttir - 01.01.1990, Qupperneq 2
Sögur, sem Jesús sagði um endalokin Avarp embœttismanna heimssambandsins egar senn rennur upp sú af- drifaríka stund, er jarðarbúar safnast saman frammi fyrir skapara sínum, biður Drottinn söfn- uð sinn heitt og innilega að bregðast við þeirri staðreynd á þann hátt, að hver safnaðarmaður búi sig gaum- gæfilega undir þennan alvarlega at- burð og fylgi málefni Drottins af kostgæfni. Á nýafstöðnu heimsþingi aðvent- ista kom fram sterk áskoruri til alls heimssafnaðarins að fullna starfsskipun Krists. Hartnær helmingur jarðarbúa hefur enn ekki einu sinni heyrt nefnt nafn Jesú. í Indianapolis skuldbundum við okkur sem söfnuð- ur að ná til þeirra með lúðurhljómi boðskapar englanna þriggja, sem enn hefur ekki náðst til. Alheimsboðun er okkar hlutverk. En slík áskorun til alls heimsins krefst persónulegrar helg- unar, því án persónulegs undirbúnings getur ekki orðið um að ræða árangur í neinni áætlun um að ljúka verkinu. Efni þessarar bænaviku, líkingar, er varða lokaviðbúnað, hvetur okkur öll til að grannskoða, hversu varið er viðbúnaði okkar til að finna frelsara okkar augliti til auglitis. Megi Heil- ur andi leiða okkur fyrir boðskap þessara daglegu lestra til nánara samfélags við Drottin okkar, sem senn kemur. R. J. Kloosterhuis R. J. Kloosterhuis er einn af varaforsetum heimssambands Sjöunda dags aðventista. AÐVENT- FRÉTTIR 53. árgangur Nóvember 1990 (áður Bræðrabandið) Útgefendur: Samtök safnaða Sjöunda dags aðventista á islandi Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Eric Guðmundsson íslensk þýðing og tölvusetning: Sigurður Bjarnason Prentun: Prenttækni hf. 2 Aöventfréttir 1. 1990

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.