Aðventfréttir - 01.01.1990, Page 14

Aðventfréttir - 01.01.1990, Page 14
negrasálminum: ,,Guð minn er stöðugt við skriftir. Hann sér allt, sem þú gerir og heyrir allt, sem þú segir. Guð minn er stöðugt við skriftir." Þetta er sá alvarlegi boðskapur, sem við verðum að flytja heiminum. Þetta er sá alvarlegi raunveruleiki, sem verður að stýra málunum á heimilum okkar, vera ráðandi afl í samskiptum manna í söfn- uðinum og sömuleiðis er við höfum sam- band við fólk um víða veröld — á vinnu- stöðum okkar og í hverfinu, sem við bú- um í. Ytra útlit hrífur fólk. Sjöunda dags að- ventistar mega ekki láta heillast af um- búðum nútíma þjóðfélags — framgangi, stöðu, auði. Við megum ekki láta glepjast af lífsstíl hinna ríku og frægu. Við erum lærisveinar hins hógværa Galíleumanns. Við verðum að vita, hvað er ekta, hvað er raunverulegt, hvað er varanlegt. Það er lyndiseinkunn, sem við erum að tala um núna og lyndiseinkunn sprettur upp af fræi. Sáðu hugsun, uppsker athöfn. Sáðu athöfn, uppsker vana, Sáðu vana, uppsker lyndiseinkunn. Uppskeran birtist í fullmótaðri lyndis- einkunn, óbreytanlegri, ævarandi, óhagganlegri. „Hinn rangláti haldi áfram að fremja ranglæti og hinn saurugi saurgi sig áfram og hinn réttláti stundi áfram réttlæti og hinn heilagi helgist áfram.” (Op. 22,11). „Kornskurðurinn er endir veraldar” (Matt. 13,39). Uppskeran A meðan er kornið að þroskast. I raun- inni er um það að ræða að skorið er upp tvisvar. í fyrsta lagi er uppskera réttlætis- ins í hjarta barna Guðs. I öðru lagi er það uppskera ranglætisins, hinir vondu ávextir syndarinnar, sem ná að þroskast í hjarta hinna þverúðugu „sona ríkisins" (Matt. 8,12). ,,Og annar engill kom út úr musterinu. Hann kallaði hárri röddu til þess, sem á skýinu sat: „Ber þú út bitru sigðina þína og sker þrúgurnar af vínviði jarðarinnar, því að vínberin á honum eru orðin þrosk- uð." Og engillinn brá sigð sinni á jörðina, skar af vínviði jarðarinnar og kastaði honum (þeim=vínþrúgunum) í reiðivín- þröng Guðs hina miklu" (Op. 14,15—19). Gæðakorn annars vegar og eitraðar vínþrúgur hins vegar. Tvisvar skorið upp. Alvarlegt íhugunarefni. „Kristur sjálfur mun ákveða hverjir eru þess verðugir að dvelja hjá fjölskyldu Guðs á himnum. Hann mun dæma sér- hvern mann eftir verkum hans og orðum. Starfsstétt mannins vegur ekkert á vogar- skálunum. Það er lyndiseinkunnin, sem ákvarðar eifífðarörlögin" (Christ's Object Lessons, bls. 74). Eg tel að Jesús vildi að við næmum einn lærdóm til viðbótar. Ríki Guðs kemur ekki sem afraktur erfiðis manna — ekki fyrir nákvæma könnun, ekki með neinu státi hið ytra. Ríki hans er andlegt og ósýnilegt nú sem stendur. Það er ekki háð neinu mannlegu skipulagi eða framtaki. Við megum ekki leggja að jöfnu söfnuð- inn og ríki Guðs. Við erum ekki kölluð til að skapa útópíu, syndlaust og fullkomið þjóðfélag hér á jörðu. Það er Guðs að sjá til þess. Við eigum að prédika fagnaðarer- indið og fyrir náð Guðs að fara eftir meg- inreglum ríkis hans. Við héldum að í söfnuðinum fyndum við skjóf hœli, vörn, undan- komuleið frá öllu því illa, sem blasir við z heiminum. En þess í stað uppgötvum við okkur til mikillar undrunar, að það eru syndarar í söfnuðinum. “ En hvað sem við gerum til að útrýma synd úr söfnuðinum, mun hún vera þar fyrir hendi allt til þess að Kristur kemur. Við sættum okkur ekki við hana. Við prédikum og kennum gegn henni. En við höldum því fram að mögulegt sé að sigra og þá fullvissu eigum við, að við getum náð að sigra synd í lífi okkar. Samt sem áður kennir Kristur okkur, að við verðum allt fram að endalokunum að búa við hin- ar skaðlegu afleiðingar af sáningu óvinar- ins. „Og vegna þess að lögleysi magnast, mun kærleikur flestra kólna" (Matt.24,12). Stundum er útlitið dökkt. En verið ekki áhyggjufull, systkini mín. Málið er í höndum okkar ástkæra föður. Hann reyt- ir illgresið úr garði sínum á sinn hátt og með sínum aðferðum. En hvers konar fólk ættum við þá að vera? „(Yður ber) að ganga fram í heilagri breytni og guðrækni, þannig að þér vænt- ið eftir og flýtið fyrir komu Guðs dags." „Með þvi að þér nú, þér elskuðu, væntið slíkra hluta, þá kappkostið að vera flekk- lausir og lýtalausir frammi fyrir honum í friði" (2. Pét. 3,11.14). Spurningar til umræðu 1. Kemur þú auga á eitthvað það, sem kalla mætti misræmi á milli þess boð- skapar, sem felst í dæmisögunni um ill- gresið og hveitið, annars vegar og þeirrar ábyrgðar safnaðarins hins vegar, að upp- ræta synd okkar á meðal? Hvernig er hægt að jafna slíkt hugsanlegt misræmi? 2. Að hvaða leyti eru dæmisögurnar um illgresið og netið skyldar? Hvaða mikla andlega lærdóma ættum við að nema af þeim? ÍCharles E. Bradford var forseti fyrir Norður-Am- eríku deild Sjöunda dags aðventista, áður en hann hœtti störfum og £ ■[ fór á eftirlaun íjúlí í ár. 14 Aöventfréttir 1. 1990

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.