Aðventfréttir - 01.01.1990, Side 30

Aðventfréttir - 01.01.1990, Side 30
Bara fyrir krakka ,,Ég verð kominn heim eftir þrjá daga," sagði hann við hana. ,,í mesta lagi fjóra. Skyggnstu eftir mér á kvöldin." Hann teygði fram höndina og strauk henni um síða, svarta hárið. Svo rauk hann af stað. Vegurinn frá Jerúsalem niður til Jeríkó var bæði ósléttur og mjór. Hann lá í upp- þornuðum árfarvegi, árgljúfri, sem stór- flóðin höfðu skorið niður fyrir löngu. í hverju skrefi færðist hann neðar í dalinn. Hann gekk rösklega og raulaði lag fyrir munni sér. Þetta yrði ekki auðveld ferð, en hann þurfti að sinna erindi. Hann bara vonaði, að konan hans hefði ekki áhyggj- ur. Sterk harðfisklykt barst að vitum hans og það varð til þess að hann fór að skellihlæja. Steinar voru á víð og dreif á veginum og öðru hverju varð hann að sneiða hjá malar og grjóthrúgum. Sólin gægðist nú yfir sjóndeildarhringinn, svo að skyndi- lega urðu nöktu hæðirnar í Júdeu rauð- glóandi í gullnu Ijósi. Pétur hraðaði nú för sinni enn meira. Hann var að vonast eftir að finna einhvern samferðamann. Þetta var svo hættuleg leið, alkunn fyrir, að þar höfðust við stigamenn og ræningj- ar. En hann hafði engar áhyggjur. Hann var bæði maður sterkur og klár. Sólin steig stöðugt hærra upp á himin- inn. Skæra og hvíta ljósið frá henni varð þess valdandi, að eyðimerkurhæðirnar urðu litdaufari en ella. Hann pírði augum upp í ljósið og dró um leið höfuðklútinn sinn niður til að skýla augunum. I hæð- unum var fjöldi smáhella.Þeir líktust einna helst svörtum, blindum augum, sem hann skelfdist. Maður gæti auðveld- lega verið í felum í einhverjum hellinum og stokkið svo út þaðan til að ráðast á einhvern ferðamanninn ræna hann. Stund- um földu sig villidýr en hann hafði nú engan beyg af þeim. Ekki svona um hábjartan dag- inn. Hann sá eðlur vera að sóla sig með- fram veginum. Oðru hverju skaust ein og ein yfir veginn og þá tók hann víxlspor til að verða ekki valdur að því að stíga ofan á hana. Skyndilega og án nokkurs fyrirboða, umkringdi hann hópur ræningja. Einn stökk upp á bakið á honum, annar barði hann í magann. Þeir rifu fötin utan af honum, tóku nestispakka hans og pen- ingapyngju, spörkuðu í hann og börðu aftur og aftur. Svo skildu þeir við hann dauðvona í brennheitri eyðimerkur- sólinni. Hann hafði alls enga hugmynd um, hve lengi hann lá þarna. Enginn heyrði stun- urnar í honum. Enginn sá flugnamergð- ina, sem flaug suðandi yfir sárunum á honum, sem logblæddi úr. En svo heyrði hann loksins fótatak. Hann reyndi að hrópa, en var þurrari í hálsinum en svo, að það tækist. Fótatakið nálgaðist, en hægði aldrei á sér. Þetta var prestur, sem þarna var á ferð, maður, sem þjónaði Guði í musterinu. En presturinn virti hann ekki viðlits. Hann bara hraðaði sér áfram sína leið. Pétur missti meðvitund. Hann vissi ekki, hvenær aftur heyrðist fótatak. Hann sá ekki levítann, auðugan mann, lyfta upp skikkjunni sinni og hraða sér í burtu. Pétur komst til meðvitundar aftur, þeg- ar einhver var að hella vatni upp í munn- inn á honum og yfir andlit hans. Hann fann fyrir vingjarnlegum höndum, sem voru að hreinsa sár hans. Hann fann fyrir olíu, svo að dró úr sviðanum í skrámun- um og rispunum á hörundi hans. Hann heyrði þýða rödd mæla uppörvandi orð. Hann reyndi að opna augun og tala, en það var sem hann gæti það ekki. Hann fann að sér var lyft upp, vera settur á bak asna. Svo héldu sterkar hendur við hann og vingjarnlega röddin bauð asnanum að halda af stað. Hann verkjaði í allan líkamann við hverja hreyfingu asnans og hann fann að hann var að komast til fullrar meðvit- undar. ,,Hver ert þú?" sagði hann loks. Maðurinn sagði þægilegri rödd: ,,Jæja, svo þú ert að vakna. Það var kominn tími til, býst ég við." Hann sagði til nafns síns og bætti svo við: ,,Ég er frá Samaríu. Heppinn ertu að ég er einmitt á leið til Jeríkó. Þú verður að hvíla þig aðeins áður en þú ferð aftur í ferðalag." Oðru hverju stöðvaði maðurinn asnann til að athuga hvort færi þægilega um Pétur og kostur var. Hann hellti meira af olíu í sárin Biblíutexti: Matt. 10,30—37 Farðu nú varlega," sagði hún Jóna við manninn sinn, hann Pétur. ,,Ég verð ekki í rónni fyrr en þú verður kominn aftur." ,,Þú hefur alltof miklar og óþarfar áhyggjur," sagði hann við hana. ,,Ég fer varlega. Kannski get ég orðið samferða einhverjum." Jóna andvarpaði um leið og hún stakk svolitlum pinkli í lófa hans. ,,Ég útbjó svolítið nesti handa þér," sagði hún við hann. ,,Hafðu nú ekki á móti því. Þrjátíu kílómetrar er löng leið að fara fótgang- andi og þú verður feginn að hafa það meðferðis þegar sólin er komin hátt á loft." Hann gat ekki stillt sig um að hlæja. „Þetta sýnir mér að það skuli nú í mig. Hvað hefurðu þarna?" „Aðeins fáeina fiska og flatkökur. Og svo lét ég þarna að sjálfsögðu ávaxtasafa og dálítið af fíkjum. Farðu nú gætilega og hraðaðu þér svo heim.” Þau gengu til dyra. Sólin var enn ekki búin að lyfta sér yfir hæðirnar í Júdeu- eyðimörkinni en það var komin hreyfing á í Jerúsalem. Hanar göluðu. Kýr bauluðu. Götusalarnir voru komnir á kreik. Sumir báru þunga sekki á bakinu. Föstudagur Miskunn- sami Samveijinn bJlSlOJ'' I 30 Aöventfréttir 1. 1990

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.