Aðventfréttir - 01.01.1990, Qupperneq 31
og breiddi skikkju sína yfir bakið á
Pétri.
Það var komið myrkur þegar þeir komu
til Jeríkó. Samverjinn fór með hann í
gistihús og hjálpaði gestgjafanum til að
hátta Pétur. Hann var hjá honum um
nóttina og gaf honum vatn að drekka þeg-
ar hann vaknaði. Hann svaf svo óværum
svefni. Morguninn eftir lét Samverjinn
gestgjafann fá tvo silfurpeninga: „Lát þér
annt um hann," sagði hann. „Þegar ég
kem aftur skal ég borga þér það sem þú
kostar meiru til."
Þegar Jesús var búinn að segja þessa
sögu, spurði hann: ,,Hver þessara þriggja
sýnist þér hafa reynst náungi þeim
manni, sem féll í hendur ræningjum?'1
(Lúkas 10,36).
Sérstakt verkefni: 1. Rœðið merkingu
orðsins ,,náungi“ eins og Jesús notaði það.
2. Útskýrið hvers vegna það var svo óvenju-
legt að Samverji hjálpaði Gyðing. 3. Látið
hvert barn fá pípuhreinsara. Látið hvert
barn fyrir sig móta hann þannig, að hann
sýni hvernig við getum reynst sannir ,,ná-
ungar" Inágrannar). 4. Gefið dœmi um ein-
hvern sem er í mikilli neyð. Látið börnin
segja frá því, hvernig þau gœtu verið góðir
náungar í slíkum aðstœðum. Fœrið það inn
á þeirra vettvang.
Hvíldardagur
Brúðar-
meyjarnar
10
Biblíutexti: Matt. 25,1—13
llir hafa mikið yndi af að vera við-
staddir brúðkaup, að minnsta kosti
stúlkur. Þegar Jesús var á jörðinni voru
brúðkaup stórmál og mikið um að vera,
miklu meira en nú er. Brúðkaupshátíða-
höld ríks fólks gátu staðið dögum saman.
Þið munið að Jesús gerði sitt fyrsta
kraftaverk í brúðkaupi. Brúðkaupsveisl-
an stóð svo lengi að vínberjalögurinn
dugði ekki.
Jesús sagði sögu um annað brúðkaup
eða réttara sagt um 10 ungar stúlkur, sem
voru brúðarmeyjar við brúðkaup. Jesús
sagði, að það sem kom fyrir þær, skýri
hvernig fólk muni taka því, þegar hann
kemur aftur.
Tíu brúðarmeyjar klæddar í sitt feg-
ursta skart fóru til móts við brúðgumann.
Það er undarlegt. Þegar par giftir sig nú til
dags, fara brúðarmeyjarnar ekki inn í
borg eða bæ til að bíða komu brúðgum-
ans. En það var gert á dögum Jesú. Það
var þáttur í hátíðahöldunum — ungu
stúlkurnar að bíða komu brúðgumans.
Og hann lét alltaf bíða eftir sér.
Hver stúlka hélt á lampa af því það var
komið kvöld. Fimm stúlknanna voru
hyggnar. Þær vissu að brúðguminn gæti
verið seint á ferðinni og að olían á lömp-
um þeirra gæti klárast. Þess vegna höfðu
þær með sér litla könnu með olíu í.
En hinar stúlkurnar fimm sáu enga
ástæðu til að vera að bera með sér auka-
olíu. Kannski var það af leti. Það var
ósköp dapurlegt því auðvelt var að halda
á dálitlu af aukaolíu.
Fornleifafræðingar (fólk, sem grefur
upp hluti sem legið hafa í jörðinni mjög
lengi) hafa fundið sams konar olíukönnur
og hyggnu stúlkurnar báru með sér. Þær
eru litlar, aðeins 8—10 sm háar. Þær taka
rétt nóg af olíu til að fylla lítinn lampa.
Fólk bar þessa litlu könnu bundna við
úlnliðinn með skinnþveng. Það er at-
hyglisvert að tapparnir í þessar könnur
voru oft skornir út með ýmsu móti, t.d.
voru sumir í laginu eins og höfuð á ein-
hverju dýri.
Jæja, tíminn leið og það var orðið áliðið
og enn var brúðguminn ókominn. Stúlk-
urnar þreyttust á því að standa og bíða
svo þær settust niður. Þá fór þær að
syfja. Þær fóru að geispa hver á fætur
annarri. Og svo — sofnuðu þær allar.
En um miðnætti kvað við hróp úti í
myrkrinu: „Brúðguminn kemur!”
Allar stúlkurnar 10 risu á fætur. Þær
nudduðu augun og löguðu til á sér hárið
en, nei, eitthvað var að. Það heyrðist tor-
kennilegt hljóð í lömpunum þeirra. Þær
löguðu til kveikinn og hölluðu lömpun-
um til þess að kveikurinn gæti náð síð-
ustu olíudropunum. En það var um sein-
an. Lamparnir voru eiginlega alveg
tómir.
Stúlkurnar fimm, sem höfðu haft með
sér aukaolíu, helltu henni nú í skyndi á
lampa sína. Eftir smástund logaði aftur
glatt á lömpum þeirra.
Þá sögðu fimm fávísu stúlkurnar í bæn-
arróm: „Gefið okkur af olíu ykkar, það er
að slokkna á lömpunum okkar."
Þær hyggnu svöruðu: „Nei, hún nægir
aldrei handa öllum. Farið heldur til kaup-
manna og kaupið handa ykkur" (Matt.
25,9).
Það var um ekkert annað að ræða en að
hraða sér niður í miðborgina til að finna
einhvern, sem gæti selt þeim olíu. En
meðan þær voru í burtu kom brúðgum-
inn, ásamt fylgdarliði, þjótandi eftir göt-
unni. Það var hlegið og sungið. Fimm
hyggnu brúðarmeyjarnar flýttu sér að
slást í för með þessum glaðværa hópi.
Þau fóru öll inn í veislusalinn og dyrum
var lokað.
Nokkru seinna komu fávísu meyjarnar
fimm til baka. „Hleypið okkur inn," köll-
uðu þær fyrir utan lokaðar dyrnar. „Opn-
ið dyrnar fyrir okkur."
En dyravörðurinn svaraði: „Sannlega
segi ég ykkur, ég þekki ykkur ekki."
„Vakið því," sagði Jesús, „því að þið vit-
ið hvorki daginn né stundina (þegar Jesús
kemur aftur)" (13. vers).
Finnst ykkur ekki þessi orð vera með
þeim dapurlegustu í allri Biblíunni — „Ég
þekki ykkur ekki"? En gleðitíðindin eru
þau að Jesús sagði þessa sögu til að hjálpa
lærisveinum sinum til að vera viðbún-
um, er hann kæmi.
Jesús kemur brátt. Við vitum ekki dag-
inn eða stundina, en við vitum að hann
kemur brátt. Hann mun taka þá til sín til
himins, sem viðbúnir eru. Og það eru
mestu gleðitíðindin í öllum heiminum!
Sérstakt verkefni: Hvernig getið þið verið
viðbúin komu Jesú? Leggið áherslu á, að
hlýðni og hið góða og vingjarnlega, sem við
gerum sýni að við höfum meðtekið fórn
Krists og lifum fyrir hann.
Útbúið litla bókfellsrúllu eða eitthvað
svipað og skrifið á það Jóh. 3,16. Leyfið
börnunum að taka það heim með sér. Eldri
börnin hafa gaman af að útbúa sjálfhanda
sér.
Skiptið börnunum í hópa og leikið söguna
um brúðarmeyjarnar 10.
Skiptið börnunum í hópa. Úthlutið hverj-
um hóp einni dæmisögu sem við höfum
skoðað í vikunni og látið hvern hóp leika
hana í hljóði. Þegar hver hópur er búinn að
leika sína dæmisögu eiga hinir að segja til
um hvaða dœmisaga þetta var.
Ræðið um himininn. Reynið að kafa
dýpra en svo að nema staðar við að ,,ríða á
Ijóni" eða eitthvað í þeim dúr. Talið um fyr-
irgefningu. Talið um að lifa óttalaus. Allir
eru hrœddir nú á dögum. Rœðið það hvernig
'megi tala við ókunnuga óttalaust; um að
fara í ferð og vita að bíllinn ykkar mun ekki
bila og að enginn muni fá kvef eða flensu
meðan þið eruð í burtu. Haldið umrœðun-
um á stigi barnanna, en hjálpið þeim til að
leggja sig öll fram um að hugsa um blessanir
himinsins á nýjan hátt.
Penny Estes Wheeler
starfar á ritstjórnar-
skrifstofu forlagsins
Review and Herald.
Aöventfréttir 1. 1990 31
EG'STtA
Bara fyrir krakka