Aðventfréttir - 01.10.2009, Side 2
Kristileg menntun
Efni Aðventfrétta að þessu sinni er
® menntun, nánar tiltekið aðventmenntun.
Kirkja okkar hefur nær frá upphafi vega
lagt mikla áherslu á menntun og upp-
■BUI eldi. Háleit sýn Ellenar G. White á hlut-
I verki menntunar eins og fram kemur í
1 eftirfarandi tilvitnun var afgerandi í að
efla þessa áherslu: „í æðsta skilningi er
menntun og endurlausn eitt og hið sama. Það ætti að vera
forgangsatriði hjá kennurum og stöðugt markmið að
hjálpa menendunum að skilja þessi grundvallaratriði
þannig að þau verði stýriafl í lífi þeirra með því að þau
tengjast Kristi. Kennari sem stefnir að þessu marki er
sannarlega starfsmaður Krists, verkamaður með
Guði“ (Education bls. 30).
Skólastarf aðventista hefur aldrei verið víðtækara en nú. í
árbók kirkjunnar kemur fram að aðventistar reka um
5.600 skóla í 145 löndum heims þar sem 1.1 milljón nem-
endur hljóta menntun. Spurningin er: Er það rétt áhersla
fyrir kirkju okkar á tímum takmarkaðs árangurs kristi-
legrar boðunar í vestrænum heimi að verja slíku fjár-
magni og mannauði í skólastarf í stað annarra og beinni
aðferða til boðunar fagnaðarerindisins? í grein sinni “Af
hverju aðventmenntun?” sem birtist í Aðventfréttum fyrir
rúmu ári (maí '08) glímir George Knight einmitt við
þessa spurningu og lýsir tilgangi aðventmenntunar í 6
liðum til þess að sanna gildi hennar innan starfsáætlunar
kirkjunnar. Ég ætla að leyfa mér að nefna þessi atriði hér
stuttlega:
í grein Knights er megintilgangur aðventmenntunar og
menntastofnana kirkjunnar þessi:
(1) Að kynna nemendum Biblíuna sem ramma
hugsunar og mats frekar en að það eitt að stuðla að
þekkingu á efni hennar.
(2) Að kynna ungu fólki Jesú sem Drottin og frelsara
og leiða það til frelsunar í honum.
(3) Að leiða hina ungu til ævinlegrar þjónustu við aðra
í anda Krists, að undirbúa þá undir sálnavinnandi
starf.
(4) Að móta gildismat nemandans á biblíulegum
grunni þannig að grunnkenningar Biblíunnar móti
sérhverja ákvörðunartöku á lífsleið hans.
(5) Að félagslífið í skólanum móti í hinum ungu biblíu-
leg/kristin/aðvent lífsgildi og lífsstíl.
(6) Að fyrirmynd kristinna, guðrækilegra kennara móti
hina ungu og að tilboð um félagslíf taki mið af trúar-
afstöðu aðvent unglingsins.
I þessu blaði er sú leið farin í kynningu aðventmenntunar
að hlusta á reynslur þeiira okkar á meðal sem hafa dvalið á
skólastofnunum Kirkjunnar hérlendis sem og erlendis. Við
munum hér heyra hverjar áherslumar og áhrifin voru eftir á
að hyggja. Ég vil taka það fram að sá hópur sem hér lýsir
reynslu sinni er ekki tæmandi og að margir fleiri innan
kirkjunnar hér á landi gætu rétt eins hafa fengið að tjá sig.
Og kannski munu fleiri finna sig knúna við að lesa þetta til
að setja sína reynslusögu á blað og senda okkur sem við
getum þá birt síðar. Verið velkomin til þess. En hér eru
eldri sem yngir að tjá sig um skólavist sína, þeir sem voru í
aðventskóla fyrir löngu og svo líka einstaklingar sem enn
eru á skólabekk. Og við munum sjá að þau markmið sem
kynnt voru í grein Knights hafa oftar en ekki verið í há-
vegum höfð innan skólanna og að aðventmenntun er mikil
forréttindi og hefur haft ómetanlegt gildi í lífi þeirra sem
hennar hafa notið.
Svo sannarlega er því fjármagni vel varið sem nýtt er til
að byggja upp andlegt líf og lífsgildi unga fólksins okkar.
Það er fjárfesting til eilífðar.
Það hefur verið okkur hjónunum stórkostleg blessun að
hafa fengið að ganga í aðventskóla allt frá bamaskóla til
háskóla og að hafa haft tækifæri til að senda börnin okkar í
aðventskóla. Og að hugsa sér að í fámennri kirkjunni okkar
hér á landi eigum við frábæran skóla eins og Suðurhlíðar-
skóla sem heldur uppi merkjum aðventmenntunar á okkar
landi. Hvílík forréttindi! Við getum öll stutt þetta starf með
jákvæðu og uppbyggjandi viðhorfi og um fram allt með
bænum okkar.
Eric Guðmundsson
AÐVENTFRÉTTIR 72. ÁRG. - 8.TBL. 2009 Útgefandi Kirkja sjöunda dags aðventista á Íslandi S u ð u r h 1 i ð 3 6, 1 05 R e y k j a v i k Simi: 5 8 8- 7800 sda @adventislar.is R ITSTJÓRI & Ábyrgðarmaður: E ric Guðmundsson Uppsetning og vinnsla: J óh a n n a A ð atv eig Jóhannsdóllir J ó n a Björk Þórudó11 i r SÉRSTAKAR PAKKIR TIL: Elísu Elíasdóttur, Frode J akobsen, Kristínu Guðnadót- TUR, PÓRU JÓNSDÓTTUR, PÓRU LlLJU S1GURÐARDÓTTUR , PRÖST B . STEINPÓRSON O G VlGDÍS LlNDA JACK FYRIR EFNI OG MYNDIR Í BLAÐIÐ.
2 AÐVENTFRÉTTIR • OKTÓBER 2009