Aðventfréttir - 01.10.2009, Page 3
Námskeið á vegum Boðunarstarfs Reykjavíkursafnaðar
Eftir Vigdísi Lindu Jack
í síðustu viku ágústsmánaðar byrjuðu
námskeið í Suðurhlíðarskóla á vegum
Aðventkirkjunnar í Reykjavík. Þau
voru haldin með það að markmiði að ná
til fólks, hjálpa því, kynnast því og að
það kynnist okkur
sem söfnuði.
Margir voru
tilbúnir að rétta
hjálparhönd bæði
við kennslu og að
undirbúa veitingar
sem boðið var upp á
í frímínútum.
Námskeiðin voru
af ýmsum toga og
nýttist vel þekking
safnaðarmeðlima á margvíslegan hátt.
Boðið var upp á enskukennslu,
spænskukennslu, slökunarnudd, heilsu-
fæðismatreiðslu, mexíkanska mat-
reiðslu, prjónakennslu og heimilisfjár-
mál.
Almenn var ánægja á meðal nemend-
anna og áhugi fyrir áframhaldandi
námskeiðahaldi. Því var ákveðið að
halda áfram með enskukennsluna en
hún fer nú fram í safnaðarheimili
kirkjunnar í Reykjavík tvisvar í viku.
Boðið verður upp á áframhaldandi
spænskukennslu síðar í vetur. Einnig
var brugðið á það ráð að bjóða þeim
sem komu á prjónanámskeiðið að vera
með í prjónaklúbb sem er oft haldinn af
konum á öllum aldri innan safnaðarins.
Svo hefur myndast stór hópur útlend-
inga sem hefur mikinn áhuga á námi í
íslensku og hafa myndast a.m.k. tveir
hópar sem eru að fá kennslu í safnaðar-
heimilinu á Ingólfsstræti.
Hópar nemenda hafa komið saman
um helgar og hefur aðstaðan í Suður-
hlíðarstofunni nýtist vel þar sem hópur-
inn spilar borðtennis og billjard. Hópur-
inn skellti sér líka á
Hlíðardalsskóla þar sem
þau spiluðu blak. Vegna
eftirfylgninnar hafa þeir
sem tóku og eru að taka
þátt í námskeiðunum náð
að kynnast og myndað
vinatengsl, bæði við
starfsfólk og samnem-
endur.
Auk þess að kenna mat-
reiðslu, hannyrðir og
tungumál er einnig boðið upp á
námskeiðið "Boðskapur Biblíunnar"
sem verður haldið í Suðurhlíðarskóla
n.k. vikur en mun það byrja 14. og
15.okt. Námskeiðið er haldið til að út-
skýra grunnkenningar Biblíunnar og til
að hvetja fólk til lesturs á henni.
Safnaðarmeðlimir eru hvattir til að
bjóða vinum og kunningjum að koma á
það námskeið. Ef einhver hefur áhuga á
að hjálpa til á
námskeiðinu er sá hinn
sami beðinn um að
hafa samband við Vig-
dísi Lindu Jack í síma:
867-1640.
Það er mikill áhugi
fyrir að bjóða því fólki
sem hjálpað var með
garðahreinsun og
gluggaþvott í sumar og þeim sem tóku
þátt í námskeiðunum að koma í
kirkjuna okkar í súpu og brauð. Von-
andi mun það verða að veruleika í
október eða nóvember.
I lokin má ekki gleyma að minnast á
það sem er næst á döfinni en það er
hjálparhönd í vetrarskammdeginu.
Miðum mun vera dreift í húsin í
kringum kirkjuna okkar og fólki boðið
upp á geymsluhreinsun og að snjórinn
verði hreinsaður af bílum fólks eld-
snemma morguns. Markmiðið er að
hjálpa fólki og leyfa þeim að kynnast
okkar söfnuði. Allir eru velkomnir að
taka þátt í þessu átaki.
Við biðjum allan söfnuðinn um að
biðja fyrir þessum verkefnum svo Guð
leiði okkur og gefi okkur tækifæri til að
tengjast fólki svo það mætti tengjast
Jesú Kristi.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í
þeim verkefnum sem framundan eru
hafi samband við: Tómas og Dovile
eða Adrian og Vigdísi
„ T-fírm vítri fifýðír á oj eyfor
íær/óm sírrn, ocj finn fijjjjní
nemur fioffar fífsreyfur." öf //j?
AÐVENTFRÉTTIR • OKTÓBER 2009
3