Aðventfréttir - 01.10.2009, Síða 5
hann hefur gefið okkur í rituðu Orði sínu.
Heilög Ritning er fullkomin mælikvarði
sannleikans, og ætti því að skipa æðsta sess
í menntun. Til þess að eignast menntun sem
stendur undir nafni verðum við að eignast
þekkingu á Guði skaparanum, og Kristi,
frelsaranum eins og þeir eru opinberaraðir í
heilögu Orði.
Kraftur til að hugsa og gera
Hverri einustu persónu sem sköpuð er í
Guðs mynd er gefin kraftur í líkingu við
kraft Guðs sem gerir henni kleift að hugsa
og framkvæma. Menn og konur sem taka
ábyrgð, eru í forsvari og hafa áhrif á lyndis-
einkunn annarra eru þau sem hafa þroskað
með sér þennan kraft. Sönn menntun eflir
þennan kraft og þjálfar ungt fólk til þess að
hugsa sjálfstætt fremur en að endurspegla
skoðanir annarra. Leiðum nemendur til
uppsprettu sannleikans í náttúrunni sem
opnar óendanlega möguleika til rannsókna,
og til sannleika opinberunarinnar. Látum þá
hugleiða staðreyndir um skyldu þeirra hér
og um eilífðina. Þannig verða þau víðsýnni
og hugur þeirra styrkist.
í stað þess að útskrifa menntaða örvita
geta mennlastofnanir útskrifað menn og
konur sem eru sterk í hugsun og verki,
einstaklinga sem hafa stjórn á kringum-
stæðum sínum en láta
þær ekki stjórna sér,
einstaklinga sem búa
yftr víðfeðmi hugans,
skýrri hugsun, og
hugrekki til að fylgja
sannfæringu sinni.
Þess konar menntun
styrkir lyndiseinkunnina
þannig að sannleikanum
er ekki fómað fyrir
sjálfelska löngun og
veraldlega framagimi. í
stað þess að leyfa ástríð-
unum að hafa eyðileggj-
andi áhrif er hver
löngun og tilgangur sett
í samræmi við megin-
reglu réttlætisins. Þegar
við dveljum við full-
komna lyndiseinkunn
Guðs verður hugur
okkar endumærður og andinn endur
skapaður í mynd hans.
Námskeið í vetur
Kirkjan í Reykjavík mun bjóða upp á hvíldardagsskóla í vetur fyrir fólk sem er utansafnaðar.
Hvíldardagskólinn verður í umsjón Birgis og Halldórs. Dagskráin verður auglýst víða í nágrenni
Reykj avíkurkirkj u.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir ykkur að bjóða vinum og áhugamönnum þar sem kennslan
verður kerfisbundin og auðskilin með áherslu á gmnnatriði trúar okkar og mikilvægi þess að
ganga með Guði.
Hvaða menntun getur verið æðri
þeirri sem hér er lýst? Hvað getur
verið jafn verðmætt?
„Hún fæst ekki fyrir
skíragull,
og ekki verður silfur reitt
sem andvirði hennar.
Eigi verður hún Ófírgulli
goldin...
Að eiga spekina er meira
um vert en perlur" (Jb
28:15-18).
Hugsýn Guðs l'yrir okkur
Hugsýn Guðs fyrir börn sín er
æðri en æðsta hugsun
nokkurrar mannveru. Guð-
rækni er markmiðið sem
stefnt er að. Nemendum er
opnaður farvegur fyrir
stöðugar framfarir, takmark
sett til að sækjast eftir, staðall
sem inniheldur allt gott,
fagurt og fullkomið. Nem-
endum fer fram eins hratt og
mögulegt er í hverri grein sannrar þekk-
ingar. En viðleitni þeirra mun verða stýrt til
markmiða sem eru miklu æðri en sjálfhverf
og jarðnesk markmið vegna þess að himin-
inn er æðri en jörðin.
Kennarar eru að gera gott og göfugt starf
með því að vinna að því guðdómlega á-
formi að miðla ungu fólki þekkingu á Guði
og móta lyndiseinkunn þeirra í samræmi
við eðli hans. Með því að vekja löngun
nemendanna á að sækjast eftir hugsýn Guðs
veita þeir menntun sem er eins há og himin-
inn og víð eins og alheimurinn. Slíku
menntunarferli verður ekki lokið í þessu lífi
en haldið áfram á himnum. Þessi menntun
tryggir farsælum nemendum vegabréf frá
undirbúningsskólanum á jörðinni til æðra
stigs, skólanum á himnum.
Skóli sérhannaður fyrir þig um málefni sem allir tala um en fáir hafa
kynnt sér nánar. Á laugardögum klukkan 11-12 verða valin erindi úr
Bibliunni tekinn og rannsakaðir. Opið öllum.
Staður: Hliðarsalur Aðventkirkjunnar, Ingólfsstræti 19,101 Rvk.
24/10 - Sköpun: Móðir náttúra eða Guð Faðir?
31/10 - Er Guð þögull eða hefur Hann talaö?
7/11 - Reis Jesú virkilega upp frá dauðum og af hverju skiptir það mig máli?
14/11 - Getur Guð veriö góður en heimurinn vondur?
21/11 - Endurkoma konungsins
28/11 - Hvað er frelsun?
5/12 - Ritað í stein (lög Guðs)
12/12 -Að skilja Gamla Testamentið - Helgidómur gyðinga, fyrsti hluti
16/01 - Hin óverðskuldaöa gjöf Guðs til þín (náðin)
23/01 - Að skilja Gamla Testamentið - Helgidómur gyðinga, annar hluti
30/01 - Hvíldardagurinn
6/01 - Himnarlki er alvöru staður
13/01 - Það sem Faróamir vissu ekki (ástand hinna dauðu)
20/02 - Að upplifa lífið til fullnustu (heilsa)
27/02 - Að þekkja vilja Guðs í lífi þínu
Úrtak úr bókinni Tnie Education
(Sönn Mennliin) Eflir Ellen G.
White, bls. 9-13.
Þýtt af Jóhönnu Jóhannsdóttur
og Eric Guðnumdsson
Ellen G. White
fæst í Frækorninu
í bókarforlagi okkar
aðventista, Frækominu, er
I hægt að nálgast bækur Ellen
G. White ásamt mörgum
öðrum kristilegum bókum
I bæði fyrir fullorðna, ungl-
inga og böm.
Einnig er til sölu annað efni. Til dæmis
mynddiskar (dvd), bæði fyrirlestrar og
bamaefni, sálmabækur, tónlistardiskar (cd),
biblíulexíur og fleira.
Bókaforlagið er á sama stað og skrifstofa
kirkjunnar, eða Suðurhlíð 36 (neðri hæð).
Opið er frá 8- 4 alla virka daga.
Allir velkomnir!
AÐVENTFRÉTTIR • OKTÓBER 2009
5