Aðventfréttir - 01.10.2009, Qupperneq 7
orð Guðs, að þau læri orð hennar utan-
bókar, og þekki hvað Ritningarnar
segja um lífið og dauðann. Eg vil að
börnin mín séu grundvölluð í trú á
góðan og réttlátan Guð, og að þau sjái
fyrirmynd trúarinnar í kennurum
sínum. Opinberir skólar geta engan
veginn keppt við kristileg ígildi sem
kennd eru í safnaðarskólum, né geta
þau undirbúið börnin mín fyrir himin-
inn. Er hægt að verðleggja slíka
menntun?
Á haustin þegar skólarnir opna dyr
sínar, og nemendur hefja árlega skóla-
göngu sína, er ég agndofa yfir því hve
margir foreldrar telja sig ekki hafa efni
á að send börnin sín í kristilegan skóla,
eða halda að opinberir skólar séu betri
fyrir börnin sín. Safnaðarskólar hafa ef
til vill ekki eins marga valkosti, og þeir
geta ekki boðið upp á sterkt íþrótta
starf. En hvaða máli skiptir það þegar
Jesús kemur aftur? Hér í South Bend,
þjóna ég 500 manna söfnuði. Við
höfum yfir eitt hundrað börn á barna-
skóla aldri, en á síðastliðnum vetri voru
bara 25 nemendur í safnaðarskólanum
okkar. Við gátum ekki við þetta setið
og gerðum átak í að tala máli barnanna
og útskýra fyrir foreldrum hvers vegna
kristileg menntun væri svo þýðingar-
mikil. Núna eru 40 nemendur í
skólanum okkar, og tleiri foreldrar eru
að hugsa um að senda börnin sín
þangað. Þetta er í rétta átt, en samt eru
allt of mörg af börnum okkar sem sitja
við fætur kennara sem trúa ekki að
Jesús sé að koma aftur innan mjög
skamms tíma.
Kristnir skólar eru langt frá því að
vera fullkomnir, og ungt fólk leitar
stundum að ýmsum strákapörum.
Vandamálin geta verið stór, og unga
fólkið býr stundum við atleiðingar mis-
taka sinna um alla æfi. En það er ekkert
veganesti eins þýðingarmikið og að
þekkja Jesú Krist, og þau forréttindi að
læra við fætur þeirra sem elska Jesú.
Reykurinn af sykri og saltpétri
blöndunni lagði um alla stúlkna vistina,
og að sjálfsögðu lentum við í vand-
ræðum fyrir. Reykurinn hvarf og stein
gólfið varð ekki fyrir neinum
skemmdum. Á meðan sitja sögurnar
um Jesú áfram í hugum okkar, og trúin
á Jesú er aldrei langt undan.
Síðasta loforð Gamla Testamentisins,
og síðasti texti Gamla Testamentisins,
Malakí 4:5,6 bendir á að Guð muni
leiða börn og foreldra saman á ný, bæta
sambönd þeirra og undirbúa fjöl-
skyldur fyrir komu Jesú. Þetta gefur
mér mikla von. Alveg eins og Guð
frelsaði Nóa og fjölskyldu hans, Rahab
og fjölskyldu hennar, Kornelíus
hundraðshöfðingja og fjölskyldu hans,
og fangelsisstjórann í Filippí og fjöl-
skyldu hans, þá er ég viss um að Guð
mun efna loforð sitt og frelsa börnin
okkar einnig. Fátt er eins áhrifa mikið í
þeim undirbúningi og að senda börnin í
kristilegan skóla þar sem Jesús er
skólameistarinn.
Hvar stundar barnið þitt nám?
SDA Menntun
Eftir Frode Jakobsen
Sjálfur ólst ég upp í Noregi og gekk
þar í skóla sem var á vegum kirkjunnar
okkar, fyrst 9 ár í
grunnskóla og svo 3
ár á Tyriíjord Vide-
regáende skole þar
sem ég lauk stúdents-
prófi. Einu ári síðar
lá leiðin til Englands
á Newbold. Þar var
ég þrjú ár í skóla ef dreginn er frá einn
vetur sem ég vann með ágætu fólki á
Hlíðardalsskóla. Fyrsta reynsla mín af
skóla utan okkar kerfis var þegar ég
skráði mig í Háskóla Islands þegar ég
var orðinn 25 ára gamall. Þá var ég
búinn að læra eða vinna á menntastofn-
unum aðventista 18 af þessum 25 árum.
í dag er ég búinn að vera annað hvort
að læra eða vinna við menntastofnanir
aðventista talsvert meira.
Mér finnst það mikil forréttindi að fá
að læra í aðventistaskóla. Mér finnst
einnig mikil forréttindi að fá að vinna í
aðventistaskóla. í okkar fámenna,
kristna skóla leyfist manni að hafa
sérstakar áherslur í samræmi við okkar
trú. Á sama tíma viljum við að sjálf-
sögðu undirbúa nemendur undir fram-
haldsnám og þátttöku í lýðræðis þjóð-
félagi.
Það er alltaf ánægjulegt að hitta
fólk hvar sem er á landinu við
hvaða kringumstæður sem er, sem
hefur kynnst okkar starfi í gegnum
skólastarf okkar hér á landi. Það
var síðast í síðustu viku sem ég átti
leið inn á bílasölu hér í borginni.
Ég fór að spjalla við eigandann og það
kom fljótlega í ljós að hann hefði sjálfur
verið þrjú ár í skólanum okkar við
Ingólfsstræti fyrir mörgum árum. Með
honum í skólanum var ungur strákur sem
var nýfluttur frá Danmörku. Sá maður er
núna forstöðumaður kirkju okkar hér á
landi. Margt gott hafði hann lært þar og
góð kynni af kirkju okkar.
Skólar okkar, hvort sem þeir hafi verið
í Keflavík, Vestmannaeyjum, Ölfusi eða
Ingólfsstræti, Bauganesi
eða núna hér í Suðurhlíð-
inni, þá hafa þeir allir
gefið fólki tækifæri bæði
til að fá almenna menntun
en einnig kristna fræðslu.
Það er oft sem maður
l
1 >
sjálfur vitnar í Orðskviðurnar
þegar maður lætur orð falla um
menntun og uppeldi. Sérstaklega
nota ég oft eftirfarandi vers:
“Sá sem elskar aga elskar þekk-
ingu en sá sem hatar umvöndun er
heimskur.” (Orðskv. 12:1) og
“Fræð þú sveininn um veginn, sem
hann á að halda og á gamals aldri
mun hann ekki af honum
líta.” (Orðskv. 22:6)
Mér finnst hlutverk okkar í
skólastarfi fela í sér mikla ábyrgð
og það er mikilvægt hvernig við
stöndum að því. En þegar við
höfum ritninguna sem grunn í
okkar starfi og kærleikinn til
náungans, þá er ég sannfærður um
að Guð blessi starfið.
Megi Guð blessa skólann okkar
og allt starf sem fer hér fram um
v/ ókomin ár.
Frode F. Jakobsen
skólastjóri í Suðurhlíðar-
skóla
AÐVENTFRÉTTIR • OKTÓBER 2009