Aðventfréttir - 01.10.2009, Page 9
Guð vissi svo sannarlega hvers ég þarfnaöist-
Iflbfweiiiil 1 ■ • 1 1 t u t • Takk fyrir menntun í Rúmeníu
Ég var svo heppin að fá að verja
hálfu ári á heilsutrúboðsskóla í
Rúmeníu sem nefnist Herghelia. Á
þessu hálfa ári fórum við yfir ótrúlega
mikið og vítt efni eins og líffærafræði,
lífeðlisfræði, meðferð sjúklinga og
náttúrulegar aðferðir til lækninga. Við
lærðum einnig margt um Biblíuna,
lásum rit Ellen G. White, lærðum mat-
reiðslu og sitt lítið um framkomu og
ræðuhöld, auk skipulagningu heilsu-
tengdrar útbreiðsluverkefna. Námið var
strembið en skemmtilegt. Við unnum
einnig mikið með skólanum, fjóra tíma
á dag og það var góð reynsla. Besta við
skólann var svo að fá tækifæri til að
nota það sem við vorum að læra. Ég
fékk að vera með hópi sem stundaði
trúboð og samfélagsþjónustu í nær-
liggjandi sígaunaþorpi. Þetta var líf-
reynsla sem ég á aldrei eftir að gleyma
og breytti mér til frambúðar.
Þessi tími var líka einstaklega mikil-
vægur fyrir mitt persónulega trúarlíf og
tengsl mín við minn himneska föður.
Ég þurfti nauðsynlega á því að halda að
vera svona kippt út úr mínu umhverfi
og ös þess, og fá að vera í afskekktri
sveit í ókunnu landi þar sem ég var
eingöngu að huga að himneskum mál-
efnum. Ég lærði mikið af samnem-
endum mínum og kennurum og upplifði
meiri nærveru við Guð en ég hef áður
upplifað. Þessi tími á Herghelia var
hreint út sagt gulls ígildi fyrir mig og ég
þakka Guði fyrir að hafa leitt mig
þangað. Guð veit svo sannarlega alltaf
hvers við þörfnumst, við þurfum bara
að hlusta betur á hann! Nú bið ég þess
að ég fái að nýta það sem ég lærði í
skólanum frekar í þágu hans.
Við erum einstaklega lánsöm sem
Með fjölskyldu úr sígaunaþorpi
söfnuður að hafa svona margar mennta-
stofnanir á okkar vegum. Þetta er
blessun frá Guði sem okkur ber að nýta
vel.
Kær kveðja
Þóra Lilja
Aö læra viö Newbold háskóla
eftir Þóru Jónsdóttur
Það er auðvitað erfitt að gera saman-
burð á einhverju sem ekki hefur verið
reynt, og staðreyndin
er auðvitað sú að ég
hef ekki lært við guð-
fræðideildina hér á
íslandi. Ég hef, aftur á
móti, lært við þá deild
á Newbold, sem er
háskóli okkar deildar í
Evrópu. Það hvarflaði
samt oft að mér í nám-
inu hvað það hefði verið mér snaut-
legra að læra við Háskóla íslands
vegna þess hve okkar kirkja er örlítið
brotabrot í samanburði við þjóð-
kirkjuna. Það segir sig sjálft að á-
herslurnar í náminu er þar af leiðandi
aðrar og kirkjusagan sem kennd er
talsvert frábrugðin sögu Aðvent-
kirkjunnar.
Að fá tækifæri til að kynnast fólki,
aðventistum, frá mörgum ólíkum
löndum var annað sem gerði náms-
dvölina ómetanlega. Þeirra sýn á
hlutina og reynslusögur eru svo sannar-
lega eitt af því merkilegra sem að við
komum með heim í farteskinu. Vin-
skapur, hjálfýsi og sam-
staða eru orð sem koma
upp í hugan þegar ég hugsa
til þeirra, hvort sem það
voru kennarar, nemendur
eða aðrir.
Þetta sérstaka samfélag
aðventista var þó ekki
einungis stuðningur fyrir
okkur þrjú sem lærðum á
Newbold heldur líka fyrir unglinginn
sem fann strax nýja vinkonu í kirkjunni
áður enn kom að fyrsta
skóladeginum. Það var
svo stór hópur af ungl-
ingum frá kirkjunni sem
beið hennar í hverfis-
skólanum, krakkar sem
svo héldu öll saman bæði
í hvíldardagsskólanum
og í öflugu unglingastarfi
kirkjunnar.
Það má samt ekki
halda að allt sé þarna
dans á rósum. Menningarmunur og
önnur viðmið eru meiri en ég bjóst við
að myndu mæta mér í þessu vestræna
þjóðfélagi. Það er jú auðvitað svo að
Newbold er í reynd alþjóðlegur skóli,
frekar en að hann sé einungis enskur
þótt svo að stjórnun og umhverfi sé
enskt.
Námslega séð þá var sérstakt að
koma frá hinu hátæknivædda Islandi
þar sem við stöndum flestum þjóðum
framar í þeim efnum. En gæði
námsefnins voru frábær, þótt svo að
það væri borið fram með kennslu-
leiðum sem þættu gamaldags
hjá okkur.
Nálægðin við London,
ströndina og enska sveit gera
dvölina þarna auðvitað að
skemmtilegu ævintýri, hvað
sem fólk fer þangað til að
læra.
AÐVENTFRÉTTIR • OKTÓBER 2009