Aðventfréttir - 01.10.2009, Side 15
Barnasíðan
Upphafið
í upphafi var jörðin auð og tóm
Myrkur grúfði yfir öllu.
En Guð var þar og hann var með
áætlun.
„Verði ljós“, sagði hann.
Og skyndilega birti yfir öllu.
Guð kallaði ljósið „dag.“
Hann kallaði myrkrið „nótt.“
Þannig Ieið hinn fyrsti dagur.
A örðum degi sagði Guð,
„Verði mikil víðátta.“
Guð skapaði víðáttuna, djúpa og háa.
Guð kallaði hana „himin“.
A þriðja degi skapaði Guð árnar og
sjóinn. Hann skapaði fjöllin og eyði-
merkurnar, eyjarnar og strendurnar.
Hann skapaði stór tré, grös og blóm í
öllum regnbogans litum.
Á íjórða degi setti Guð ljós á himininn,
sólina fyrir daginn, bjart tungl og glitr-
andi stjörnur fyrir nóttina.
Á fimmta degi fyllti Guð vötnin fiskum
af öllum gerðum og stærðum. Hann
skapaði fuglana til að svífa um himin-
inn.
Á sjötta degi skapaði Guð dýrin: loðin
dýr, hreistrug dýr, lipur og glæsileg
dýr. Þennan sama dag skapaði Guð
manninn. Þegar hann hafði lokið verk-
inu, sá guð að allt sem hann hafði
skapað var mjög gott.
Á sjöunda deginum hvíldist hann.
Meðhjálpin
Guð skapaði manninn, Adam.
Hann hafði mikilvægt verk að vinna.
Hann gaf öllum dýrunum nafn.
Þarna voru mörg dásamleg dýr.
En samt var Adam einmana.
Þá sagði Guð: „Það er ekki gott fyrir
Adam að vera einn“.
Þess vegna skapaði Guð...
konu.
Adam nefndi hana Evu.
Eva var hjálpin sem Adam þurfti.
Sorgardagur
Núna áttu Adam og Eva heima í fal-
legum garði sem hét Eden. Á mörgum
trjám í garðinum uxu gómsætir ávextir.
Guð sagði Adam og Evu að þau mættu
borða alla þá ávexti sem þau vildu
nema einn. Hann sagði: ,d>ið megið
ekki borða ávöxtinn af skilningstré
góðs og ills.“
Dag nokkurn kom höggormur til Evu.
Hann sagði: „Sérðu hvað ávöxturinn á
skilningstrénu er fallegur? Hann er
bragðgóður. Hann gerir þig vitra.
Hlustaðu ekki á Guð. Taktu þér ávöxt
og bragðaðu á honurn."
Ávöxturinn var fallegur. Eva fékk sér
bita af honum og færði síðan Adam.
Hann fékk sér einnig bita, þó hann
vissi hvað Guð hafði sagt.
Þetta kvöld gekk Guð gegnum garðinn.
Adam og Eva reyndu að fela sig. Guð
kallaði: „Adam, hvar ertu?“
Adam svaraði: ,Ég er í felum. Ég var
hræddur.“
Þá spurði Guð: ,JFékkstu þér af
ávextinum sem ég bannaði þér að
smakka á?“
Adam svaraði: ,d2va fékk sér fyrst.“
Eva sagði: „Höggormurinn sagði mér
að það væri í lagi.“
En Guð var hryggur.
Hann sagði við höggorminn: „Héðan i
frá verður þú að skríða á kviðnum.“
Hann sagði við Adam og Evu: ,J>ið
hlýdduð mér ekki, þið verið að yfirgefa
garðinn."
Það var sorgardagur þegar Adam og
Eva fóru. Guð sendi einn af englum
sínum til garðsins. Engillinn var með
logandi sverð. Hann sveiflaði því fram
og aftur svo að enginn kæmist aftur inn
í garðinn.
Biblía litlu bamanna er gefin út af
Veginum, kristnu samfélagi. Þetta er
birt með góðfúslegu leyfi þeirra.
Hvað gerði Guð í lok sköpunarinnar?
tJB'véMs&b ?t>(3)C3) é©\Z>$ G)<?$ <*)&é
W(3)(3) 0^ $£} 0 PfrQltéF é^SíJ
AÁBDÐEÉFGH I í JKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
AÐVENTFRÉTTIR • OKTÓBER 2009
15